Fréttir

Tölublað

Fréttir - 15.09.1918, Blaðsíða 3

Fréttir - 15.09.1918, Blaðsíða 3
FRÉTTTR 3 Theodór Sími 231 Árnason lO o 3 3 lO QJ C3 •00 C '3 -iíi • rH o> etí Sfr & rí Austurstræti 17 RITFÖNG: Mikið úrval af allskonar pappír, bleki og öllum öðrum ritföngum. Visitkort, margar tegundir Vasabækur Ritblý Slílabækur Litakassar Teiknipappír Skólalöskur Bréfspjöld BÆKUR: Guðm. Gamalíelsson Simi 231 Bókaverzlun Guðm. Gamalíelssonar er ílutt í Austurstræti 17. Allar nýjustu íslensku bækurnar fyrirliggjandi. Allar innlendar og útlendar bækur Nótur: Með Botníu von á miklu úrvali Allar íslenskar og erlendar nótna- bækur útvegaðar. útvegaðar. n> <—<• C/J n> $£ Hamingjuóskaspjöld Fréttir. Kosta 5 anra eintakið í lausasölu. Fyrir fasta kaupendur 1 kr. á mánnði. Auglýsingaverð: 50 aura hver centimeter í dálki, miðað við Qórdálka blaðsíður. Aígreiðsla í Anstnr- stræti 18, sími 310. Við augiýsingnm er tekið á af- greiðslnnnl og f prontsm. Gntenberg. Útgefandi: Félag í Reylíjavlk. Ritstjóri: Giiðm. Gnðmundsson, sbáld. Simi 448. Pósthólf 286. Viðtalstími venjulega kl. 4—5virka daga á Óðinsg. 8 B uppi á lofti. (Frarahald af 1. síðu.) dreymdi sannorðan mann, er eg þekti persónulega, en nú er látinn, að kunningi hans, einn þeirra er á bátnum fórst, kæmi til sín dap- ur í bragði og kvæði vísu þessa: Sil eg út við Suörtu-sker, sól að mari líður, þar sem úti eftir mér einum dauðinn bíður. Eigi vissi sá er drcymdi til þess að nokkurt örnefni á sjó, sem í vísunni er nefnt, væri á þeirn slóð- um, er slysið varð, en sker voru þar mörg. G. G. Trú og- töfrar. Eftir Edu. Westermarck prófessor. Trúin fæst alt af við eitthvað yfirnáttúrlegt. Svo er henni farið, hvort sem um hinar lægstu trúar- hugmyndir er að ræða eða hinar hæztu. Villimaðurinn Iítur öðruvísi en vér á hlut þann, er hann til- biður. Kletturinn og tréð, er hann færir fórnir, er ekki klettur og tré í venjulegum skilningi. Hann eign- ar þeim önnur öfl en vér eignum þeim, — ekki eðlileg, heldur yflr- náttúrleg öfl, sem eru' voldug að hans áliti, af því að þau eru dul- ræn og óskiljanleg með öllu. Nefna má ýms orðatiltæki eða heiti, er ýmsar þjóðir tákna með guði sína, sem dæmi þess, að þær telja guðdómsmátt þeirra falinn í dulrænu þeirra. Þannig tákna Indí- ánar í Dakota aðaleinkenni guða sinna með orðinu wakan, sem þýðir »óskiljanlegur«. — Villimenn á Fiji-eyjum nota orðið katu ekki að eins til þess að lýsa æðstu guðshugmynd sinni, heldur og til þess að tákna eitthvað, er þeim þykir kynlegt. — Ellis trúboði segir, að eyjarskeggjar á Mada- gaskar tákni með orðinu ndria- manitra sem þýðir »guð«, alt það er skilning þeirra er um megn, alt sem er nýstárlegt og óvenjulegt; þeir nefna eigi að eins þrumur og eldingar, heldur og bækur og pen- inga Norðurálfuþjóða y>ndriaman- itraa eða »guði«. Einkenni og lögun þess, er villi- þjóðir lilbiðja, bendir og á orsakir t)g uppruna tilbeiðslu þeirra. Tré sem eru óvenju tnikil vexti eða fáránleg að lögun, geysistór og fá- ránleg »grettistök« eða gnípur, steinar með óvenjulegri þyngd, gjósandi eldfjöll, flúðir og hverir, — slík fyrirbrigði ieggja villimenn venjulegast átrúnað á og veita til- beiðslu. í Marokko má nærri því ganga að því vísú, að hver sá staður eða hlutur, er stingur í slúf við um- hverfið á einhvern veg, — t. d. lundur í hlíð eða á tindi fjalls, sem ella er gróðurlaust, — lind, er óvenju-mikill og fagur jurta- gróður er umhverfis, — tré á beru- rjóðri, — skrítinn kleltur við sjó frammi, — hellir eða holur klettur, — sé settur í samband við ein- hvern dáinn dýrling, er dulsagnir einar kenna, einhvern, er þar á að vera grafinn eða hafa hafst þar við í lifanda lífi og skilið þar eftir einhvern snefil af helgi sinni. Indiánar í Norður-Ameríku dýrk- uðu tóbakið, Aztekarnir í Mexíkó vínið, vegna hinna einkennilegu áhrifa þessara nautna-efna. — Af náttúru-fyrirbrigðunum er þrumu- dýrkunin algengust, — af dýrunum er höggormurinn einkum dýrkaður vegna einkennilegs svips, og eigi síður þess, hve skjótur hann er og lipur í snúningum og bit hans banvænt. Sumstaðar í Afríku bera villimenn dýrkunar-lotningu fyrir hananum, sem galar að kvöldi, og trönu, er sezt á bæjarburst. Menn eru dýrkaðir, þegar þeir gera kraftaverk. Dýrlingar Múha- meðsmanna sanna helgi sína með kraftaverkum, eins og dýrlingar kaþólskra manna. Þeir fljúga í lofti, vaða eld að ósekju, fara óra- vegu á einni svipstund og lækna banvæna sjúkdóma. — Dýrlingur nokkur í Marokkó, dómari frá Wazzan, sem dó fyrir nokkrum árum, kom einu sinni ríðandi á klárnum sínum yfir Njörfasund, og enn þann dag i dag er helgur maður nokkur á lífi, og á heima hér um bil dagleið frá Tanger, sem getur mettað hungur 200 manna með einum diski af banka- byggsgraut. Fólkið stendur á þessu fastara en fótunum. Frh. t Sigurður Sigurðsson búfræðingur, sonur Sig. Eiríksson- ar reglnboða andaðist í nótt í Landakotsspítala. Fráfalls þessa unga efuismanns er sviplegt mjög og tildrögin sorgleg. í gærdag hafði hann verið að hand- leika skambyssu austur á Kotströnd í Ölvesi, er liann vissi eigi að var hlaðin. Hljóp skolið úr byssunni í kvið honum og fór kúlan gegn- um hann. Símað var þegar til læknis og Halldór Hansen læknir fór austur á vélhjóli, var þá bif- reið á leiðinni suður með Sigurð og mætti læknir lienni á Hellis- heiði. Var Sigurður þá með þján- ingum miklum; var svo haldið á- fram ferðinni til Reykjavikur og gerðu þeir læknarnir Matth. Einars- son og Halldór þegar holskurð á Sigurði, og sáu skjótt að eigi mundi lífsvon sökum líífæraskemda af skotinu. Varð og sú raunin á, því að Sig. andaðist kl. 3 í nótt. Er harmur mikill kveðinn að aðstandendum hans, föður hans, er nú dvelur hjá séra Sigurgeiri syni sínum á Isafirði, systkinum hans og unnustu, Sólveigu Daníels- dóttur i Sigtúnum. Hvað er í fréttum? Illviðri hin mestu eru sögð af Vestur- og Norðurlandi undanfarna daga, frost og snjókoma, svo að alhvítt er sumstaðar ofan í flæðarmál. Trú og töfrar ritgjörð sú, er nú hefst í »Frétt- um«, er eftir Edv. Westermarck prófessor; höfundurinn er mjög merkur rithöfundur og hefur verið háskólakennari í hagnýtri heim- speki við háskólann í Helsingfors og síðan í þjóðfélagsfræði við Lun- dúna-háskóta. Hafa Svíar gefið hana út í alþýðuútgáfu. Margir munu hafa ánægju af því að lesa hana, — þykir oss hlýða að birta hana, þótt eigi séum vér hinum háttv. höf. sammála í öllum skoð- unum hans um uppruna trúar og dulræn efni. Nýlátin er húsfrú Guðríður Vig/úsdóttir, kona ísleifs bónda á Flókastöðum í Fljótshlíð, einhver hin merkasta gáfu- og gæðakona þar í sveit, á fimlugsaldri. Banameinið var maga- sár. »Gey8ir« kom úr Englandsför í nótt með ýmsar vörur. Hafði komið fyrst upp til Vesturlandsins. Mjólburverðið hefur Mjólkurfélagið enn þá hækkað úr 50 aurum upp í 80 aura pr. líter. Sárt og þungt mun sú ráðstöfun koma niður á fátækl- ingum með Qölda ungbarna, en eigi tjáir þar að »deila við dómar- ann« sem Mjólkurfélagið er. Jón Halldórsson bankaritari hefur fengið veitingu fyrir landsféhirðisstarfinu.

x

Fréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir
https://timarit.is/publication/179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.