Fréttir

Issue

Fréttir - 29.10.1918, Page 1

Fréttir - 29.10.1918, Page 1
DAGBLAÐ 180. blað. Eeykjavík, þriðjndaginn 29. október 1918. 2. árgangnr. Leikhúsið. Nú er svo langt um liðið, síðan .Páll Steingrímsson lét oss sjá inn til sín, að það er verulegt nýnæmi að hitta hann aftur. Hann lætur litið yfir sér, en hann sígur á, og sízt er það ágóði fyrir oss leikhús- gesti, að langt líði milli þess, er leikrit eru sýnd eftir hann. Kvöldið í gær var með hinum beztu leikkvöldum, leikritin ný- næmi og leikurinn góður og sam- hent fólk. Bónorð Semings er spegill og iangt frá því að vera spé-spegill. f þeim spegli má sjá einn þátt jnenningarinnar á ættarnafna og andríkisöld þessa lands. Þó lætur höf. smáskrítni og góðlátlegt gaman gera mönnum sýnina aðgengilegri. Geta menn því rólegir farið og séð þessa aldarfars ádeilu, að þeir -eiga víst, að geta brosað oft og einatt og farið síðan glaðir heim -og gleymt — ekki. Guðrún Indriðadóttir leikurgamla, drykkfelda konu og tekst verulega upp, svo að áhorfandinn gleymir ekki þeirri kerlingu í hráðina. — Soffia Guðlaugsdóttir leikur dóttur hennar, heimtufreka daðursskjóðu, prýðiiega og er oft hlegið að til- svörum hennar. — Jón Vigfússon leikur biðilinn skemtilega og hlógu menn dátt að honum. Gesturinn var mér hin hugnæm- asta skemtun. Þvi að samkend skáldsins við sorgmædda einstæð- inga hlýtur að veita yl og verma menn nú á þessari kaldrifjuðu matar-öld. Telpa ein, niðursetn- ingur, er fjarskygn og sér fylgju gestsins, sjálfs hans æfiharm og kvíða. Verður þetta tilefni til þess, að áhorfendur sjá inn i hug hjón- anna. Hann er latur, heimskur, huglaus og illviljaður, en hún þvert á móti. Myrkfælnin er tilefnið til að þetta kemur alt fram og verður margt hlálega skrítið í viðskiftum ■öúanda við konuna og sveitar- ómagann. Þegar svo gestur guðar á gluggann, þá vill bóndi ólmur úthýsa honum og reynir að hræða konu sina lil þess, en telpan fer á meðan og lýkur upp fyrir gest- inum. Hann er fjörgamall maður •og telpan fær hann með spurning- um sínum til þess, að segja frá æfiharmi sínum. Hann hefur leitað konu sinnar í 50 ár, og er hann sýnir telpunni mynd af konunni, þá kennir hún, að þar er konan, •sem hún sá á undan gestinum. Loftskeyti. I. Brezkar fréttii* 28. okt. Siðasta svar þjóðverja til Wilsons. Síðasta svar Pjóðverja til Wilsons forseta hljóðar svo: »Pýzka stjórnin viðurkennir móttöku á svari forseta Bandaríkjanna. Forsetanum eru kunnar hinar róttæku breytingar er gerðar hafa verið og enn er verið að gera á stjórnarfyrirkomulagi Lýzkalands. Friðarsamninga mun hafa með höndum þjóðræðisstjórn, sem hefur af- gerandi löglegt vald samkvæmt stjórnarskipun ríkisins, og hermálavaldið verður einnig háð. Þýzka stjórnin bíður nú eftir uppástungum um vopnahlé, sem leitt geti til réttláts friðar, slíks sem for- setinn hefur lýst í tilkynningum sínum. Solf. utanríkisráðherra.« Auglýst er að þeir Lloyd George og Balfour haíi báðir farið með herfylgd til Frakklands. House hershöfðingi er kominn til Parísar. Fra Austurríki-Ungverjalandi virðist svo, eftir ýms- um heimildum, að hin ýmsu riki þar, þar á meðal þýskir Austurríkismenn, hafi haldið ráðstefnu undir for- sæti Karoiyi greifa, til þess að búa undir vopnahlé og friðarsamninga óháð öllum öðrum þjóðum. Karl keisari er farinn til Ungverjalands og ætlar að dvelja þar um sinn. IX. París 25. október kl. 15. b'rakkar hafa barist í nótt við Pjóðverja og sótt fram milli Oise og Serre, tekið De la Wlotte-bæinn vestan Giese, farið fram hjá Monceau-de-Neuf, og fært víglín- una fram til Lisieres vestan Bargny-skóga. Hjá Serre tóku þeir 123. hæð norðan Crépy-sur-Serre. Austar hafa þeir náð fótfestu í skotgröfum Pjóðverja norðan Froid- mont-Cohertille og tekið þær, þrátt fyrir mörg gagn- áhlaup, og fanga sömuleiðis. Austan Rethel hafa þeir og Bandaríkjamenn unnið ágæta sigra og sótt fram í skóg- inum austan Attigny, — tóku þeir þar 172 fanga, þar af 47 liðsforingja. Hvar fást Teiknibólur og Bréfaklemmur? Hvergi í bænum — nema í Ritfangaverzlun cheoðórs ^rnasonar Austurstræti 17 Spyrjist fyrir þar, áður en þér leitið annað, um það sem yður vanhagar um af ritföngum og þvi um líku. bar eru gefin skjót og greið svör og fæst þar flest sem um er spurt, — og allir fara þaðan á- nægðir, því að verðið er yfirleitt sanngjarnara en annarsstaðar. t Gat hún því frætt gamla manninn um, að konan hefði drekt sér í ánni. En þá vill gesturinn ekki dvelja lengur, heldur fara í ána, sem þar er skamt frá, en ekki hefur hann brjóst i sér til þess, að skilja svo góða og greinda telpu eftir á miskun sveitarinnar, heldur tekur hana með sér. Leikfólkið er . hið sama sem í hinum leiknum. Guðrún Indriða- dóttir leikur telpuna ágætlega og hefur merkilega gott vald á svip sínum, er dá-sýnirnar koma yfir hana. Soffia Guðlaugsdóttir og Jón Vigfússon leika bjónin all-vel og þykir oft gaman að sjá og heyra viðskifti þeirra. Ullarkambar eru ekki mikilvægir, en gömlum sveita- mönnum þótti þeim ekki beitt sem bezt. — Helgi Helgason lék gest- inn, var leikur hans góður, sam- ræmur og yfirlætislaus. Fótti leik- húsgestum gaman að sjá hann aftnr á leiksviðinu. Bjarni Jónsson frá Vogi.

x

Fréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir
https://timarit.is/publication/179

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.