Fréttir - 29.10.1918, Side 3
FRETTIR
3
var nú fölur og tekinn ásýndum.
Hann hafði eins og elzt um tutt-
ugu ár siðan hann var burtnum-
inn og ger útlægur. Var hann
klæddur i gráan einkennisbúning
óbreyttra rússneskra hermanna,
með knéhá stigvél á fótum ogí víð-
um buxum.
Eftir að hafa klætt sig með
mestu erviðismunum, yfirbugaðist
hann alveg allra snöggvast og hné
máttþrota út af á rúmstokknum.
Að nokkrum augnablikum liðnum
tók bann að ná sér aftur, og skip-
aði lögreglustjórinn varðmönnun-
um að setja á hann handjárn á
meðan hann væri leiddur til rétt-
arsalsins.
Frh.
Trú og töfrar.
Eftir Edv. Westermarck prófessor.
(Frh.)
í Síraks-bók er frumhugsunin
mjög greinileg í þessu efni:
»Heiðra þú foreldra þína í orði
og verki, svo að blessun þeirra
hríni á þér. Því blessun föðursins
byggir hús barnanna, en bölvun
móðurinnar rífur það að grunni.«
Meðal ýmissa annara fornaldar
þjóða — Egypta, Indverja og Az-
tekanna í Mexikó — er heitorðið
um langlífi gefið sem laun fyrir
hlýðni við foreldrana, sennilega af
sömu ástæðum. I riti sínu um
lögin fer Plato mörgum orðum um
mikilvægi hlýðni barna við foreidra
sína: Bölbænir föður og móður eru
máttugri öllum öðruin bölbænum,
og eigi er minni máttur.blessunar-
óska foreldranna til handa börn-
unum. Að skoðun Grikkja stóðu
refsinornir að baki foreJdranna, er
hefndu ranginda, sem börn beittu
foreldra sína, og þessar refsinornir
foreldranna voru vafalaust ekki
annað en persónugervingar á böl-
bænum þeirra. Stundum er þessi
starfsemi tengd við æðsta guðinn,
sjálfan Seif. Hesíódos segir, að ef
einhver geri sig sekan i óhæfilegu
framferði við aldraðan föður eða
móður, þá reiðist Seifur og refsi
fyr eða síðar syni þeim eða dóttur,
er svo fer að raði sinu.
Rómverjar áttu sína divi parent-
um — foreldraguði — er einnig
ber að telja persónugervinga af
bölbænum foreldranna. í fornum
lögum, er sagan eignar Servius
Tullius, er svo fyrirmælt, að ef
sonur slær annaðhvort foreldri sitt
og þau kvarta undan honum,
kemur hefnd foreldraguðanna yfir
* bann.
Frh.
RITFANGAVERZLUN
Theódórs Árnasonar,
Sími 231
Sími 231
17 AUSTURSTRÆTI 17
Alls konar psppír:
Póstpappír, Embættisbréfapappir, Þerripappír,
Teiknipappír, Umbúðapappír,
Umslög.
Reikningaeyðublöð, Reikningabækur, Vasabækur, Visitkort.
Ritblý.
Bréfspjalda-albúm, Smámynda-albúm, Myndabækur, Bréfspjöld.
Litarkassar.
1 heildsölu til kaupmanna op böksala:
----- Vasabækur margar tegundir. ---
Mun lægra verð en hjá heildsölnm hér.
Nokkrir fyrirlestrar
og ritgerðir eftir Jjarna 3ðnsson frá Vogi.
Galdra-Loftur.
Mál og menning.
Sjálfstæði íslands.
Bundinn er bátlaus maður.
Menningarstraumar og ómenska.
Viðhaldsdygðir þjóðanna.
Stjórnarskráin á Alþingi 1915.
Fæst í bókaverzlun
Guðm. Gamalíelssonar.
Hvað er í fréttum?
FreijiMtir oj Freyjnfár
eftir
Steingrím Matthiasson
er endurprentað og fæst hjá öllum bóksöium.
Afgreiðsla „Frétta”
er 1 Austurstrœti 17, ^íuii 231
Auglýsendur geri svo vel að snúa sér þangað.
Kaupendur geri svo vel að snúa sér þangað.
Par er tekið við nýjum áskriíendum.
„cTr£ttiru eru Sezfa auglýsingaBlaéié.
Spánsha veikin.
Almenn er hún ekki orðin enn
Prentsmiðjan Gutínberg.
þá, en með þvi að hún er miklu
næmari en í sumar, þá má búast
við skjótri útbreiðslu.
Stjórnarráðinu barst í gær skeyti
frá Kaupmannahöfn og var þar
sagt, að það sem hættulegast væri
við veikina, væri lungnabólgan,
sem hlypi í suma sjúklingana. Af
þeim sem hana fengju, dæi til jafn-
aðar fimti hver maður.
Eins og sjá má af erlendum
fregnum, er veikin sjálfsagt ekkert
skæðari þar en inflúenza hefur
oft verið hér á íslandi. Veturinn
1893—4 gekk hún hér um landið
og var víða mjög mannskæð. —
Austur á Héraði var sagt að dáið
hefðu alt að 100 manns. í einni
sókninni dóu 26.
Læknarnir í Kaupmannahöfn
hafa þá reglu, að skipa fólki í
rúmið jafnskjótt og það kennir sér
meins, og svo verði það að liggja
tvo daga eftir að hitinn sé horfinn
til að varast lungnabóiguna.
Kötlugos í Keyhjavík.
Stórkostlegt Kötlugos sézt í dag í
glugga verzl. »Vísis« á Laugav. 1.
— Er það mynd eftir Einar Jóns-
son málara. Sést þar eldgosið pg
jökulhlaupið með jakaburði mikl-
um. Einar er fæddur og uppalinn
þar eystra, hefur áður málað myndir
af eldstöðvunum, en hefur nú að
eins bætt við eldstróknum og hlaup-
inu. Myndin er áhrifa-mikil og
ægileg.
I næsta glugga á sömu búð er
uppdráttur mikill og prýðilegur af
Kötlu og grendinni við hana eftir
Sam. Eggertsson skrautritara, eftir
nýjustu uppdráttum.
Saltskip
þrjú hefur landsverlunin fengið
nýlega frá útlöndum.
Borg
er nú á Akureyri að skipa upp
kolum. Mun taka þar fiskfarm til
Englands. Kemur liklega hér við
áður en hún fer út.
Willemoes
er væntanlegur til Akureyrar i
dag. Á að skipa upp steinolíunni
þar og á Vestfjörðum, snýr siðan
við austur á Húnaflóa og tekur
þar kjötfarm til Noregs.
Frances Hyde
liggur nú hér við Bakkann og
er að skipa upp kjölfestu. Tekur
siðan fiskfarm til Englands, en fer
þaðan til Ameríku.
Gnllfoss
fór frá New-York hingað á léið
núna fyrir helgina.
Sterling
Var á Vopnafirði í gær. Hefur
tafist talsvert vegna óveðurs.
Kveikingartími
fyrir bifreiðar og reiðhjól í
Reykjavík kl. 6.