Fréttir

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttir - 31.10.1918, Qupperneq 2

Fréttir - 31.10.1918, Qupperneq 2
2 FRETTIR Fréttir. Kosta 5 aura eintakið í lausasöla. Fyrir fasta kaupendur 1 kr, á mánnði. Aufílýtsin^avorð s 50 aura hver centimeter i dálki, miðað við fjórdálka blaðsíður. Aí^reiðala í Amstur* Straetl V?, tsími 831. Við augrlýsingrnm er tekið á af- greiðslnnni og í prentsm. tíutenbergr. Útgefandi: Félag í Beykjavík. Ritstjóri: Guðm. Guðmundsaon, skðld. Sími 448. Pósthólf 286. Viðtalstími venjulega kl. 4—5 virka daga á Óðinsg. 8 B uppi á lofti. Ný bók. írland, eftir dr. G. Ch. Hill, Guðbrandur Jóns- son þýddi. Þessi bók er nýlega komin út hjá Ársæli Árnasyni bóksala. Er hún söguleg lýsing á menningu íra og undirokun þeirra frá því er afskifíi tókust milli þeirra og Englendinga. — Bók þessi er í litlu átta blaða broti, 150 bls. að lengd, og hefur mikinn fróðleik að geyma um þjóð, sem er oss íslendinguin nákomin, því að eigi allfáir forfeðra vorra eru þaðan komnir. — Er þar fyrst lýst hinum langa og glæsilega menningarferli íra, sem voru frið- söm öndvegisþjóð í Vestur-Evrópu um 1000 ára skeið og lengur. En þeir voru meiri mentamenn en hermenn og fengu fljótt að kenna á hnefunum á Engilsöxum, er veldi þeirra hófst á Bretlandi. Hefur síð- an svo að segja ekkert lát orðið á hörmungum íra fram á þennan dag. Og þótt nú virðist ætla að rofa fyrir betra degi, þá mun þess vart að vænta, að forn frægð lands- ins verði vakin aftur til fulls, á meðan veldi Breta er í fullum krafti þar við hliðina. — Bókin varpar allskýru ljósi á framkomu Breta gagnvart smærri þjóðum, eins og hún er, þegar þeir eru ekki einir til frásagna. Þýðandinn hefur samið fróðleg- an kafla um írland og ísland, er hann hefur skotið inn í bókina sem II. kapítula. Er hann um af- skifti íra og norrænna manna og landnám hinna fyrnefndu á ísiandi. Kemst hann að þeirri niðurstöðu, að »vér eigum írum að þakka menningu þá og bókmentir sem þjóð vor er frægust fyrir enn í dag.« Viðkunnanlegra hefði verið að hafa þennan frumsamda kafla sem formála eða eftirmála. Um sjálfa bókina er það að segja, að hún er ef til vill full stutt, þar af leiðandi fljótar yfir sögu farið og frásögnin þurrari en annars yrði. En fróðleikur er þar mikill saman kominn og má mæla hið bezta með bókinni. H. J. Loftskeyti. £íjlát Rússakeisara. I. Brezkar íréttir 30. okt kl. 15. Bretum hepnaðist vel loftárás í gærmorgun við Englefontaine og tóku þeir 70 fanga. — Her Debeney hershöfðingja er kominn í úthverfi Guise, en sá bær er grimmilega varinn. Sunnar hefur hann farið yfir Peron. — Her Guillomats hersh. átti í orrustu mikilli vestan Chateau Porcien og tók 850 fanga. Loftorrustur voru yfir vígstöðvum Breta síðastl. mánudag. Voru 32 þýzkar flugvélar eyðilagðar og 10 gerðar óstjórnfærar. Breta vantar 8 af sínum flugvélum. — Loftfloti Breta hefur ráðist á fjölda þýzkra þorpa og sömuleiðis hervígja í Mannheim, Treves, Saarbriicken, Long- uyon, Escourez og Thionville. Sókn bandamanna er ágæt á ítöisku vígstöðvunum á 30 mílna svæði. Er sagt að sýnilega dragi þar úr við- náminu. Hafa bandamenn tekið Pianar og Parlo-fjall, austur af Piava, er hefur afarmikla hernaðarþýðingu, því að af hæðum þessum stóð skothríð Austurríkis- manna yfir Feneyja-sléttuna. Sjá nú ítalir yfir alt svæðið norður af Grappa-hliðum alt til Quermo, en brestur á því hefur til þessa hindrað sókn norður á bóginn. Verða Austurríkismenn að hörfa úr línum sínum þar í nánd. ítalakonungur er nýkominn heim frá herstöðvunum þar sem bæði hersveitir ítala og herteknir Austurríkis- menn fögnuðu hjartanlega komu hans. Fangar og heríang llreta. »Le Temps« telur brezka herinn einan saman hafa tekið á tímabilinu 3. ágúst til 10. okt. 140.000 fanga og 1600 fallbyssur. ‘V opnalilé. Innanríkisráðherra Breta sagði í gær á þingi, að eitt skilyrðanna fyrir vopnahléi yrði að vera að allir brezkir fangar yrði þegar í stað látnir lausir og sendir heim, og annað það, að hegnt yrði þeim, er sekir væri um ódáða- verk, svo að löggild sönnun væri fyrir. Á Flandrí er aðstaðan óbreytt. Hersveitirnar á Flandri hafa tekið frá 14.—27. október 18.493 fanga (þar á meðal 331 liðsforingja). Af þeim hafa Belgir tekið 7962, annar her Breta 6364 og Frakkar 6177. — Herfangið er svo gífurlegt, að eigi verður tölú á komið, nema fallbyssur 609, sumar afar miklar. Auk þess hafa bandamenn tekið á sama tíma yfir 1000 hríðskotabyssur. IX. X?arís 30. október kl. 15. Norðan Guise hafa Frakkar sótt fram að ánni norð- an Oise og tekið Beaufort-bæ austan Lesquilles. Ný sókn við Peron austan Monceau-le-Neuf og fangar tekn- ir. í Lothringen hafa Pjóðverjar gert árángurslaus áhlaup. Stórskotahríðar við Doná í Vidin-héraði. Serbar hafa hrakið óvinina og er herlína þeirra um Stragari- Rakar-Riviere-Resava (20 kilóm. norður frá Kragujevatz) (Frh.) »Hvers vegna talar þú ekki?« spurði sjötti dómarinn — fyrirver- andi vikadrengur eins af herberg- isstjórum keisarans. »Ákæran er lýgi. Eg hef aldrei gert samsæri gegn þjóð lands míns — aldrei. Síðan útlegð min hófst hef eg verið undir strangri gæzlu °g — 0g(<» sagði keisarinn og orð- in dóu í hálsi hans. Tilfinningar hans yfirbuguðu hann alveg. Dóm- ararnir litu hver til annars með þýðingarmiklu augnaráði. Það leyndi sér ekki, að keisar- inn var í mestu hugaræsingu og yfirkominn sökum þeirrar með- ferðar, er hann varð nú að sæta. Hann hugaði í kring um sig eins og hann væri að skygnast eftir sæti. »Vill nokkur ykkar, félagar góðir, vera lögmaður fyrir Nikulás Romanofi?« spurði timburverzlar- inn feiti með uppgerðar tilfinn- ingasemi, eins og til að sanna, að þessi dómstóll fólksins væri hinn réttlátasti. Hermenn llauðu varðsveitar- innar öskruðu hver í kapp við ann- an og einhver á meðal áhorfend- anna svaraði: »Pessi fyrverandi einveldisstjóri ætti að kunna lögin og geta varið sig án lögmanns«. — »Bravó!« hrópuðu aðrir. »Herra Romanoff, ef þú hefur ekkert meira aö segja, er þýöing- arlaust fyrir okkur að eyða tíma yfir þér. Við erum hér eingöngu til að úrskurða í þessu máli og að tilkynna dóminn«, sagði yfirdóm- arinn, baðaði út höndum í ákafa og hrækti yfir borðið á gólfið. Fimti dómarinn skipaði þá ein- um þjóninum að færa sér fiösku af víni og nokkrar brauðsneiðar, og eftir að hafa fengið ósk sinni fullnægt, tók hann að snæða með góðri lyst við réttarsals borðið. Hvisluðust nú dómararnir á um stund, og risu svo á fætur og fóru inn í hliðarstofu salsins. En á meðan var keisarinn látinn standa á milli íjögra hermanna, er um- kringdu hann með brugðnum sverð- um. Áhorfendurnir voru teknir að verða hávaðasamir. Raddir hér og hvar hrópuðu: »Hengið harðstjór- ann! Niður með einveldisstjór- ann!« Keisarinn virtist finna á sér, að eitthvað ilt væri i aðsigi, athugaði hin glottandi andlit í kring um sig og um hann fór eins og kulda- hrollur. Eftir nokkur augnablik komu dómararnir allir til sæta sinna, talandi og tyggjandi eða reykjandi vindlinga. Þegar þeir voru komnir í sæti sín, sióð yfirdómarinn á fætur aftur, barði hnefanum í borðið og hrópaði: »Herra Nikulás Alexandrovitch Romanoft! Þar sem dómstóll fólks- ins í Viatka-héraði hefur athugað vandlega kærurnar gegn þér og

x

Fréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir
https://timarit.is/publication/179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.