Frækorn - 14.08.1901, Síða 8
128
FRÆKORN.
viku sem stríðið stendur yfir, kostar
það Englendinga um 22x/2 millión
króna.
— A Þýzkalandi er bankaástand-
ið framvegis voðalegt. Svik svo
100,000,000 kr. skiítir hafa átt sér
stað.
— Norska bindindisfélagið (Det
norske totalafholdsselskab) er vold-
ugast allra bindindisfélaga þar, og
margfalt fjölmennara en I. O. G. T.
Bindindisfélagið norska telur nú um
119,000 meðlimi, að því er skýrt var
frá á síðasta ársfundi þess, er haldinn
var í Tromsö nýskeð.
— Arsgróðinn i Noregi verður í ár
óvenjulega góður.
— í Kína hafa trúboðar aftur orð-
ið fyrir ofsóknum. Fleiri eru myrtir
í Sionkalpan.
— Tekjnr Englands frá Indlandi eru
árlega um 350 millionir króna.
— Hitinn í Kristíaníu var i Júlí
suma daga 40° Celsíus. Hitinn í
vatninu í Kristíaníu-firðinum hefur
verið 23° C.
— Vatnsflóð hafa gengið yfir Ki-
angsi í Kína; 4,000 menn fórust.
Draumurinn 03 þ^ðing líana.
Maður á Skotlandi, sem var heldur
ákafur elskari flöskunnar, sagði frá
því á heimili sínu, að sig hefði dreymt
draum, og sá hann í draumi fjórar
rottur; hin fyrsta var feit, önnur og
þriðja voru mjög magrar og aumleg-
ar; fjórða rottan var blind. Maður-
inn hugsaði mikið um, hvað draum-
urinn ætti að þýða; því að bæði hann
og kona hans voru sanufærð um, að
hann táknaði eitthvað sorglegt. Loks-
ins bauðst sonur þeirra til að þýða
drauminn. „Hin feita rotta.,“ sagði
hann, „er vertshúshaldarinn. Hinar
mögru rottur eru móðir og eg. Blinda
rottan ertu sjálfur, faðir minn. Það
er meir en komið mál til þess að
gæta að þessum rottum, og laga það,
sem aflaga hefur farið.“
ÚTGr. OG ÁBYBGBABM.: DAVID 0STLUND
AIiDAK-PKBNTSMIBJA.