Frækorn - 15.01.1902, Qupperneq 1

Frækorn - 15.01.1902, Qupperneq 1
Heimilisblað með m.yndu RITSTJÓRI: DAVID ÖSTLUND. 3. árgansur. Seyðisfirði 15. janúar 1902. 1. töiublað. Nýárssöngur. —o — Aftur að sólunni sveigir nú heimsskautið kalda: sonurinn týndur í átthagann girnist að halda. Sólnanna sól, sál vor er reikandi hjól, snú þú oss, alfaðir alda. Móðir vor jörð, þú sem mj'rkrið og helkuld- inn þjáir, mun þér ei lengjast, að aftur þitt brúðarskart sjáir ? Er þá ei von, útlægi himinsins son, guðs-mynd og guðs-náð þú þráir? Flýt þér, ó hnöttur, að fjörgjafa þínum að snúa; flýt þér, ó jörð, þig með skínandi klæðnaði búa — En þú, mín önd, undir guðs lífgandi hönd flýt þér að tilbiðja’ og trúa. Áfram með sólunni ; ýngjast skal veröldin kalda ; áfram til guðs-ríkis, látum ei myrkrin oss halda. Sólnanna sól, sértu vort lifandi skjól.'™ Dýrð sé þér, alfaðir aldal M. J. » y -rvjj£ —Vér stöndum allir úti í hinumjmikla straumk tímans, en hversu lítið tökum vér samt efðr því, hver áhrif tímans eru. Vér lítum á blóm- ið og hverfum frá því. Löngu seinna kom- uft vér aftur, og þá furðar oss á því, að það skuli vera fölnað. Vér finnum þá, er vér þekktum sem börn, og getum varla umgcng- ikt þá sem menn. Tíminn er óstöðvandi breyting. Tökum eftir, lærtim, fylgjumst meðí Yggdrasill. — o— Gegn um allt etfiði og stríð fyrir því, að gera hið yfirstandandi líf Ijúft ög gott, gengur djúpur undirstraumur af þörf í mannshuganum eftir einhverju, sem meira er en það, sem vér sjáum, meira en það, sem veröldin getur veitt. Og þessi þörf cr hið sanna sérmerki vort meðal alls þess, sem hefur við mold að sælda, hinn rétti prófsteinn þess, að vér séum »guðs ættar«, komnir af Íífi hans, og að vér verðum áð lifa, hraérast og vera til í honum. Israelsþjóð var stcrk- ari og heilli í þessu en 'nokkur önnur þjóð; hún var einnig »hin útválda þjóð«. En engin þjóð hefur verið alsnaúð að þessu, því að allir menn hafa hið sáma upphaf og takmark. Ilinir gömlu forfeður vorir báru einnig þessa þörf í huga sínum, og þeir súngu með sterkum orðum um lífsins þrá og lækning hennar, og aidrei fann nokkurt skáld stórslegnari mynd al þfcssu en þá, sem höfundur Völuspár teiknar, þeg’ar hann syngur um Yggdrasil, eskitréð,’ sem nær frá djúpi þokuheimsins og upp und- ir hæsta himinhvolf, þar sem Ijóminn frá Baldur og Breiðabliki allt af er. Tréð líður óségjanlegár kvalir, meiri en menn þekkja. Níðhögg liggur og nagar af rótinni og vætir bitið með eitri, og hirtir bíta í blað og börk, svo það blæðir. Tréð mundi deyja, ef nornirnar litu eigi til þess. f’ær sitja við bezta brunninn í veröldu, Urðárbrunninn í uppheimi, og hinú’ óviðjanarilcga vatni ausa þær yfir tréð ; þá llnnir Verkurimr, og stofninn verður hvítur. Mynd þessi er framvaxin af tilfinning- unni um það, að mannshug.urinn hlýtur ...’.4- »f«

x

Frækorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.