Frækorn - 15.01.1902, Qupperneq 4

Frækorn - 15.01.1902, Qupperneq 4
Leiðréttinq. ---------. *-ys,-— Akureyri þ. 23. nóv. 1901. Kæri bróðir í Kristi! Með því að eg hef verið utan í allt sumar, sá eg ekki fyr en í gær greinir þær, sem birtust. í >Frækornum« 2. árg., 8. og 9. tbl. viðvíkjandi mér og starfi mínu á Íslandí. Uíh leið og eg þakka þér þá velvild, sem téðar greinir bera vott um, vil eg biðja þig að gera svo vel að leiðrétta eitt atriði í þeim> sem kann að valda misskilningi, — nefnilega að eg sé »Baptista trúboði«. - Eg verð að skýra frá, að eg hefi ekkert saman að sælda við »baptistana« fremur en við aðra trúarfiokka, sem því miður éru nú svo sorglega margir á Englandi og víðar. i. Ekki var eg sendur til íslands af neinu fé- lagi, ekki heldur kom eg hingað upp til að stofna nýan trúarflokk, heldur vildi eg styðja að því að. kristnum mönnum tækist að nálgast meira hið upphallega ástand íkirkjunni,— nefni- lcga,þegar »allir,sem trúaðirurðu, héldu sam- an «. (Post. g. 2, 44.) Það er engin ný kenning, sem eg ætla að útbreiða, heldur eingöngu »Krists fagnaðar- erindi, því það er kraftur guðs til sáluhjálpar sérhverjum, sem trúir« (Róm. 1,16). Bróðurlegast þinn Freðk. H. Jóncs * * * Oss er Ijúít að leiðrétta það, sem hér að framan hefur verið óskað eftir. Með því að nefna vin vorn Freðk. H. Jónes »baptista trúboða« höfum vér ekki viljað hafa sagt, að hann tilheyri hinni ensku baptista kirkju eða sé erindreki hennar, því að oss er kunn ugt, að svo er ekki. En hins vegar vitum vér, að hann ásamt trúbræðrum sínum á Brétlandi fylgir trúarskoðunum nefndrar kirkju í því efni, sem nafnið baptisti sérlega bendir á, nl. skírninni; hann er baptisti að þvíleyti, að hann er skírður tullorðinna manna skírn og álítur, að hún sé hin eina rétta biblíulega skírn. ,Vér getum heldur ekki skilið þessa leið- rétting hans þannig. að hann befi ú móti því. Hann er líka allt of vandaður rnaður til þess að kannast ekki við trú sína, ef til þess kemur. Ritstj. Merkilegt handrit. Hið einkennilega handarrit, sem Fræk. i þetta skifti flytja mynd af, er syrlenzkt. Efni þeirra orða, sem hér eru prentuð, er 2. Mós. 13,515 — 16, en ritið allt eru ~ ^ aif * ^ '•Cvo, hinar 4 fyrstu bækur Móse. I’að heyrir til British Museum og er elzta biblra- handrit, sem menn þekkja. Það er ritað í Amid árið 464 e. Kr. ,, — Mótlæti reynir trúna, en meðlæti reynir kærleikann.

x

Frækorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.