Frækorn - 19.02.1904, Page 1

Frækorn - 19.02.1904, Page 1
Páfadæmið. 6- Konstantínus mikli 03: kirkjan. A ríkisstjórnarárum Konstantínusar mikla varð kristnin gerð að ríkistrú, og þar sem keisari þessi hefur haft mjiig mikla þýðingu í tilliti til mjmdunar páfakirkj- unnar, á vel við að geta hans með nokkr- urn orðum Afstaða kirkjunnar til ríkisins breytt- ist til muna á st|órnarárum hans. Frá postulanna dögum höfðu kristnir menn næstum því stöðuglega fengið að kenna á ofsóknum af hendi heiðingjanna, en skæðast geysaði ofsóknin á stjórnartíma Diokletianusar. Hann vildi endurli'fga heiðnina og þreytti því strið upp á líf og dauða við kristnina. Arið 304 gaf hann út þau lög, að allir kristnir menn skyldu með öllu móti neyðast til að færa guðum Rómaríkis fórnfr, og ofsóknin stóð yfir þangað til árið 311, þá er Kon- stantínus og Liciníus voru orðnir svo voldugir að þeir gátu gefið út sína mik- ilvægu tilskipun um trúarbragðafrelsi, sem gerði það að verkum, að kristindómur- inn fékk jafnrétti við hin heiðnu trúar- brögð Rómaríkis. Frá þeim tíma leið heldur ekki á löngu, fyr en kristindóm- urinn náði valdi yfir hin gömlu ríkistrú- arbrögð, enda stuðlaði Konstantínus á margan hitt til þess. Hann varð vernd- ar- og fremdarmaður kristindómsins, en, vel að merkja, eins og hann þá var orð inn : — veraldlegur og ummyndaður frá því, sem hann var, er hann kom frá hin- Um mikla höfundi sínum, því að hlut- fallslega voru þeir fáir, sem á þessum tíma héldu sér stöðuglega við »þá trú, sem heilögum einu sinni var kennd.« Mikið hefur verið talað og skrifað um »kristnitöku« Konstantínusar. — Eigum vér áð skoða hann sannkristinn og afstöðu haris gagnvart kristninn: sannarlega gæfu- sama fyrir málefni fagnaðarerindisins? Það bezta sem hægt er að segja um hann, eftir því, sem sagan vitnar, virð- ist vera, að hann að líkindum hafi álitið kristindóminn betri, skynsamari og gxtn- ari en heiðindóminn, um leið og hann eflaust hafi álitið . — eins og fleiri á hans tíma, að heiðni og kristindómur gætu undurvel staðið jafnhliða. Sagnaritarinn Gibbon segir um hann: »Samkvæmt hinum strángasta dómi kirkjunnar var.sá fyrstí af hinum kristnu keisurum allt til h:ns síðasta augnabliks lífs síns óverðugur tii að bera þetta nafn ; því það var eigi fyr én í banalegu sinni, að hann, sem nýuppfræddur í krist- indóminum, undirgekkst handa-uppálegg- ingu og með skírninni innvígðist í tölu hinna trúuðu. . . . Slægðarlega hélt hann von og ótta þegna sinna í. jafnvægi með tveimur tilskipunum, sem hann gaf út á einu ári (321). I annari ákvað hann helgihald sunnudagsins, í hinni sagði hann fyrir um það, að leita ráða hjá þeim, sem spáðu í inníflum dýra (aru- spices) . . . En Konstantínus beindi að- allega dýrkun sinni til anda sólarinnar, til Apollós hinnar grísku og rómversku goðafræði. . . Ölturu Apollos fylltust af fórnargjöfum Konstantínusar.« —‘De- cline and Fall of The Roman Empire, IV., 20. kap.

x

Frækorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.