Frækorn - 19.02.1904, Qupperneq 6

Frækorn - 19.02.1904, Qupperneq 6
ii FRÆKORN. landi og annarstaðar. í*ví árnar hafa vana- lega sínar uppsprettur á fjöllum og hálendi eins og sést á landkortinu. Hvað það snertir að fjöllin geta gefið afrennsli fyrir ár, er vegna þess, að nægilega mikið vatnsmagn flyzt þang- að úr skýjunum sem snjór eða regn. Það er kuldinn, sem brevtir vatn' í snjó og þannig gjörir það mögulegt að færa upp á fjöllum næstum ótæmanlegan forða af vatni í þeim sjávarfúlgum, er safnast þar á vetr- um. Maður getur þannig sagt, að um vetr- artímann gengur áin frá sjónum til fjallanna og sumartímann frá fjöllunum til sjávarins. Það eru lika árnar, sem koma inörgum af vorum hieyfivélum af stað. Og þegar maður getur sagt, að veturinn sé að nokkru Ieyti framleiðand’ vatnanna, getur maður einnig sagt, að hann sé framleiðandi þeirrar vinnu, sem unnin er með vatnsafli. Veturinn framleiðir ekki einungis hinar stóru ár, helclur og líka hina smærri lækja, sem til samans með hinum sundurleysta snjó á vorinu vökva jörðina og gera hana frjót sama. Með vetrinum fáum vér ís, og ísinn kemur að miklum notum við geymslu á matvælum, og við verksmiðjur, miólUuroú og fleira. An snjóa og íss mundu ekki sleðar, skaut- ar eða skíði verða að gagni, og þá mundu íþróttairenniiRir missa af stórri ánægju, og ferðarraðurinn góðum fararflýti. Og eins og veturinn er tími svefnsins fyrir ýms dýr, tré og jurti-, er hann líka mönnun- um hvervctna Ijúf endurnæring eftir hinn ann- ríka sumartíma. Hann heftir fyrir marga í för með sér bæði hvild og umskifti á vinnu. Fiskimaðurinn verður þá að leggja upp árarn- ar og taka til netnálarinnar, og landbóndinn verður að leggja frá sér jarðyrkjuverkfæri sín og taka fyrir aðra vinnu. Vetuiinn hefur einnig í för með sér, að ein- staklingurinn verður að nota útreikning og umhugsun til að safna að sumrinu til nægileg- um forða til lífsins viðurhalds á hinum langa og kalda vetrartíma. Vér höfum nú þegar að nokkru leyti íhug- að hvað veturinn þyðir. Og þó að vér gætum ekki bent á allt hið góða, sem veturinn leiiir af sér, höfum vér samt séð. að hann er til mikillar blessunar. Vér höfum sannarlega ástæðu að færa drottni lof og þökk fyrir veturinn. Og þótt vér get- um ekki séð upphaf og enda á öllu guðs verki, verðum vér samt að taka undir og segja: »AUt sem hann (guð) hefur gert, er harla gott.« Níels Andrésson. Traust til Ioforða guðs Einusinni vitjaði mjög lærður prestur deyjandi manns. Maðurinn var af lágum stigum og hafði fengið mjög litla fræðslu í kristindóminum. Presturinn liafði yfir þessi orð drottins: »Eg skal aldrei sleppa minni hendi af þé' og aldrei yfirgefa þig,« en gat þess jafnframt, að orð þessi væru tekin langt um skýrara fram á frum- máli ritningarinnar en þýðingunum, því að á frummálinu væiu þau fimin sinnum enduriekin. Presturinn vild' með þessu styrkja trú hins deyjanda manns á fyrir- heiturn guðs náðar. Sjúkhngurinn svaraði þessu blátt áfram: »Eg efast tkk1 um, að þér hafið rétt fyrir yður, prestur minn, en eg get full- vissað yður um það, að þóit guð hefði aðeins heitið þessu einu sinni, þá hefði eg eins vel trúað því, eins og þótt hann hefði sagt það fimm sinnum s'e) a® Vertu ætíð hughraustur. Einu sinni var maður nokkur á ferð norðarlega á í'landi. Ko n hann þá að c*ál tlu húsi, er stóð við veginn. Innan úr húsinu hijómuðj barnaiaddir margar, þóttist hann þá vita, að þetta mur.di | skólahús vera, svo hann gekk þar inn. Sá hann þá, að dtengirnir vóru í óða önn að le«a lexíur sínar, rema einn dá- lítill drengur, sem stóð út í horni og sýndist mjög hnugginn og kjarklaus. »Hví stendur þú þarna, drengur minn,« sagði gestuiinn. »Hann er ekki í neir.u nýtur; eg get aldrei gert neitt úr hon- um; hann er hreint sá einfaldasti t bekkn- um,« sagði kennarinn. Gestuiinn varð j alveg h ssa á slíku svari. Plann sá, að I kennarinn var bæði harður og óþjáll við | börnin, og börnin voru hnuggin og kjark- j laus að sjá; hann talaði því vingjarnlega við börnin og hvatti þau við námið, og | gekk síðan til drengsins, sem stóð einn

x

Frækorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.