Frækorn - 19.02.1904, Blaðsíða 7

Frækorn - 19.02.1904, Blaðsíða 7
FRÆKORN. 23 sér, lagði höndina á kollinn á honum og mælti vingjarn'ega við hann: »Látfu aldrei hugfallast. Með tímanum getur þú lært mikið og orðið menntaður maður. Reyndu aðeins, drengur minn. Vertu j ætíð hughraustur og reyndu aftur, svo vinnur þú það.« Það glaðnaði yfir drengnum við þessi Orð gestsins Gáfur hans, sem sýndust eins og liggja í dái, vöknuðu. Drengur- inn fékk nýtt hugrekki og byrjaði aftur. Hann varð iðinn og kappsamur við nám- ið. Seinna varð hann mikill maður og elskaður og virtur af mörgum, og höf- undur hinna nafnkunnu biblfuskýringa. Drengurinn var Dr Adam Clarke. Hann hefur sagt, að það, sem hann hafi komist áfram í lífinu, eigi hann að þakka þessum orðum gestsins: »Láttu aldrei hugfallast! Reyndu aftur!« Hinir hreinhjörtuðu Einusinni var lítil stúlka í sunnudags- skólanum Iátm Iesa hjá Matth. 5, I —12. vers. Síðan spurði kennarinn hafia hverja sæluna hún vildi he'zt kjósa sér, er nefnd helði verið í hinum upplesna kapitula. Hún svaraði eftir dálitla þögn: »Eg vildi helzt vera hreinhjörtuð.* »Hví vildir þú það helzt,« segir kennarinn. »Ef eg væri hreinhjörtuð, þá hefði eg öll þau gæði, sem nefnd eru í þessum kapitula,« sagði stúlkan. Tóbak, uppruni bess. Hjá Aröbum gengurþessi þjóðsaga um upp- runa tóbaksins, og gefur hún tilefni til um- hugsunar, þótt þjóðsaga sé: Spámaðurinn Múhamed fór einn dag út og fann þá höggorm, sem var stýfur af kulda. Spámaðurinn varð snortinn af meðaumkun, t.ók orminn upp og hitaði hann. Þá er ormurinn aftur kom til sjálfs sín, sagði hann: ♦ Guðdómlegi spámaður! Veiztu að eg ætla að bíta þig.« »Og því?« spurði spámaðurinn. »Af því að ætt þín ofsækir mína, og le’tast við að uppræta hana.« »En er ekki einnig |>ín ætt að berjast móti minni?« anzaði spámaðurinn. »Og hvernig getur þú verið svo óþakklátur, að þú gleym- ir bví, að eg hef frelsað líf þitt?« »Þakklæti er ekki til hér í þessum heimi. Eg sver við Allah, að eg mun bíta þig « »Nú, þegar þú hefur svarið við Allah, þá máttu bíta,« sagði spámaðurinn og rétti fram hönd sína móti orminum. Ormurinn beit hann á hendinni. En hann saug eitrið út úr sáriuu og skirpti því ájörðr i na. En — á þessum stað skaut upp jurt, sem sameinaði í ?ér eitur höggormsins og mildi spámannsins. Menn kalla jurtina — tóbak. t Katrín Húlmfríbur Jónsdóttir (Mælt fram við gröfina). Lú ert dáin, horfin! Harmafregn Hjörtu vina nístir sárt í gegn — Svo ung, svo ung, er engill dauðans hjó, Eftir skilur dýra minning þó. Andans hárri göfgi gædd varst þú Gáfum, dyggð, og heitri’ og sterkri trú; Lví er von, þó svíði sorgarund Sár og djúp á skilnaðarins stund. Lolinmóð á þrauta sárri tíð, Lreyttir sjúkdóms hart og langvinnt stríð. Aðra gleðja æ þín hugsnn var, Eins þá sorg þitt hjarta sundur skar. Grátum ei, þó skarð sé höggvið hér, Helgur drottins vilji skeður er. Dauðinn slítur ekki ástarbönd Áður tengd af drottins náðar hönd. Látum huggast, þó að svíði sár, (Sólin Ijómar gegn um skýja-tár); Ei er löng til endurfunda hið, Öðlast hjörtun þreyttu hvild og frið. Fram til grafar fylgjum allir þér.— Fram ei lengra stíga leyft oss er. — Vinir, frændur, ástmenn á«tar-þökk Inna þér með hjörtu sorgarklökk. Vertu sæl! og sofðu vært og rótt Svartri' í gröf, því tíminn Iíður skjótt, Unz að rennur lífsins dagur dýr. Dauða og sorg í líf og fögnuð snýr. Nú þig kveðjum hinnsta sinni hér Hryggir burt frá leiði göngum vér. Þína gröf nú væta vina tár, Vertu sæl! já sæl um eilíf ár! (Vinir hinnar látnu).

x

Frækorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.