Frækorn - 19.02.1904, Qupperneq 8
24
F R Æ K O R N.
/VUw-
# ] FRÉTT I R
e)
Se ðisfir'M 15. feb. 1904.
1 miiljón pd. af nöglum
voru send frá Kristjaníu í n<)vember mán-
uði í fyna, ou í desember er áætl’ð, áð enn
þá meira hali verið sent þaðan.
Qufuketill
sprakk á ensku skipi í jan. og 43 menn
biðu bana af.
Austur-Asía.
Far hefur um tfma verið róstu amt. Til
ófriðar horfði milli Rússlands og Japan. Síð-
ustu fréttir gefa þó von um, að friður muni
komast á.
Veturinn
hefur verið einstaklega harður í Ameiíku.
í NewYork var kuldinn í janúar meiri en
hann hefur orðið á síðustu 25 árum.
1000 pund steri.
er sagt, að verðið sé fyrir eitt frímerki -
»Post Office Mauritius« -. (Stv'er. Aften-
blað).
Kristján konunsur
vor hefur v°rið sjúkur, en er betri, er síð-
ast frétt;st.
Sophia
Svíadrottning er mjög sjúk.
Falska 100 kr seðla
fyrir 25,000 kr. hefur timburmaður í Svend-
borg gjört. 14,000 kr. voru seldar bönkum
í Danmörku.
Æíilegir brunar.
Sjónleikahús í Chicago brann um áramótin.
Á sýningu stóð, og húsið var troifullt. Um
700 manns fórust í brunanum.
Bærinn Aalesund í horegi brann algerlega
22 -23 f. m Um 12,000 manns eru húsviltir.
Verð bess, setn brann, er lauslega metið til
20 millj. króna. Stórkostleg hiálpsemi hefur
verið auðsýnd fólki í þessum ólánssama bæ ;
bæði í Noregi og öðrum lönduin hata sam-
skot verið gerð og eins Irafa einstakir menn
sýnt sig fáheyrilega stórgjöfula.
I Gcfle, Svíþjóð, brann hús n.jan. 5 manns
brunnu inni.
I nánd við Stavanger brann nýl jga fátækra-
hús. 1 maður fórst.
Björnstjernl Björn3son.
Vinstri blöðin norsku eru ákaflega bitur í
garð B örnsons, sérstaklema nú eftir að hann
fékk Nobelsverðlaunin. í'au bríxla honum
oþinberlega um, að hann sé fallinn frá því,
sem hann hefur barist fyrir alla æfi sína, og
hafi svikið föðurland sitt í baráttunni við Sví-
þjóð,
Kattarskírn.
Frönsk blöð eru uppvæg út af því, að
skipstjóri einn franskur á skipinu Vaurtour í
Konstantínopel hefur látið skíra kettling.
Skipstjórinn er þjóðkunnur maður, að nafni
Pierre Lote, og fleiri háttstandandi menn
hafa verið boðnir til að vera við »athöfnina.«
Dreyfusmálið
verður að líkindum efni dómstólanna enn
um tíma. Upp nefur komist, að skjöl, sem
dæmt var eftir, hafa verið fölsk.
Kanada vill kaupa land.
Stjórn Kanada er nú sem stendur að gera
ráðstafanir til að fá keypt Newfoundland, og
eins um að kaupa Grænland af Danmörku.
Síldarveiðar
við ísland 1903. Reknetaveiðiskip voru alis
um 120, þar af hér um bil 100 norsk. Norskir
veiðimenn um 1000. Verð síldarinnar mun
vera alls 6 til 700,000 kr. »Stavanger Avis«
segir, að norskir veiðimenn álíta lagnetaveið-
ar óhugsandi framvegis.
Vilja ekki fara til íslands-
Fiskimenn í Dunkerque, sem höfðu verið
ráðnir til fiskiveiða umhverfis íslar.d, neita
að fara, =f því kröfum þeirra um hærri laun
hefur ekki verið sinnt.
„Fram“
heitir félag, sem nýstofnað er meðal verka-
manna hér á Seyðisfirði. Nálægt 30 munu
vera í því. Tilgangur þess er að gaita hags-
muna verkamann51, stuðla að sparnaði og sjálf-
stæði þeirra yfirleitt. Form. félagsihs er Herm.
skósmiður Rorsteinsson.
Mannslát
Þann 15. þ. ni. andaðist hér í bænum hús-
frú Rannveig Sigurðardóttir, um áttrætt, hjá
einkadóttur sinni, frú Elísabetu Wathne, sem
hún hafði dvalið hjá 19 síðustu árin. Húsfrú
Rannveig var mesta ágætiskoná, gjörfdeg, í
framgöngu, prýðilega vel greind og hugljúfi
allra, er þekktu hana.
Prentsmiðja Seyðisfjarðar,