Frækorn - 01.06.1904, Síða 3

Frækorn - 01.06.1904, Síða 3
F R Æ K O R N. 83 innar, lýsist betur, er vér gefum gaum að því, að þessi hegning kemur yfir óguðlega á dómsdegi. Pétur ér ekki þeirrar skoðunar að óguðlegir myndu engin afdrif (endalok) hreppa, því hann spyr: »Hvíiík munu þá afdrif þeirra verða, sem ekki vilja trúa guðs gleðiboðskap.« Pét. 4, 17. og heilög ritning svarar þeirri spnrningu með skýrum orðum. fieir óguð/egu munu fgna lífinu. I byrjun hvers fræðikafla viljum vér tilgreina þýðing þeirra orða, sem fyrir koma í heilagri ritningu, þessu efni til skýringar. Líf. Tilvera, lifandi ástand. »Hver sém trúir á soninn, sá hefur eilíft líf, en hver sem ekki hlýðnast syninum skal ekki sjá lífið, heldur varir guðs reiði yfirhonum.« Jóh. 3, 36. Þeim trúuðu veitist eilíft líf, en hinir óguðlegu hreppa ekki eilíft líf. Þeir eru margir sem kenna, að til sé dauði sem aldrei deyr. Það er að skilja: hinir óguðlegu deyi að sönnu, en það tákni það, að þeir lifi og kveljist eilíf- lega. Þetta er þversagnarlegur orða- leikur. Dauði, sem aldrei deyr, er eng- inn dauði, fremur en líf sem aldrei lifir er líf. Ef það er skynsamlegt að segja um þá óguðlegu, að þeir muni deyja dauða, sem aldrei deyr, þá væri allt eins mikil skyrisemi í því að segja um þá réttlátu, að þeir muni lifa lifi, sem aldrei lifir. En jafn fávísar og þversögl- islegar framsetningar finnast ekki í heil- agri ritningu. »Guð hefur gefið oss eilíft líf, og þetta lff er í hans syni. Sá sem hefur soninn, hefur lífið; sá, sem ekki hefur guðs son, hefur ekki iífið.« 1 Jóh. 5, 11. 12. Hér er talað um hið eilífa líf, sem hlotnast eftir upprisuna. Þeir trúuðu öðlast ei- líft líf þegar sonur guðs opiuberast, en þeim óguðlegu mun ekki hlotnast lífið. Þeir munu týna lífinu eða deyja. Nokkrir bera fram þau andmæli gegn þessu, að eilíft líf tákni eilífan fögnuð. Vér játum það, að eilíft líf hafi eilífan fögnuð í för með sér; því þegar guð skapar nýjan himin ogj nýja jörð, finnst þar ekkert utan gleði og fögnuður. Sorg og mæða mun ekki framar til vera. Opinb. 21. 4. Eilíft líf hefur því að sjálfsögðu eilífan fögnuð í för með sér. En líf og fögnuður. eru sitt hvað. Ritningin nefn- ir eilíft líf yfir 40 sinnum. Ef guð hefði átt við fögnuð, þá hefði hann nefnt fögn- uð. Hann á við líf, því nefnir hann líf. En líf merkir: tilvera, lífhreyfing. Eilífur fögnuður (evig glæde — gleði) er þrisvar sinnum n;efndur á nafn í ritn- ingunni. Es. 35, 10; 51, 11; 6r, 7. Það, að eilíft líf er áyallt tengt við umb- un réttlátra eftir upprisuna, er í. sjálfu., sér öflug sönnun fyrir því, að guð vildi gjöra þetta svo Ijóst, að engin þyrftiað misskilja það. Guð gefur þeim réttlátu eilíft líf, en hinir óguðlegu geta ekki öðlast þá gáfu. Þeir munu ekki sjá lífið, ekki öðlast eilífatilveru, en þeir munu deyja. »Hver sem hyggst að forða lífi sínu, mun þú týna, en hver sem týnir því. fyrir mína skuld, mun fá því(lífinu) borgið.« Matt. 10, 39. Sá, sem hættir lífi sínu í þjónustu Jesú, fær borgið lífinu, það er að segja hinu eilífa lífi í upprisu rétt- látra, en hver sem lætur sér minkun þykja að Jesú orðum og afneitar honum til þess að forða lífi sínu, mun týna því. Hann mun deyja. »Því hver sem hygg- ur að forða lífi sínu, mun því týna, en hver sem týnir því fyrir mína skuld, mun fá því borgið.« I.úk, 17, 33. Sá, sem elskar líf sitt, mun missa það, og sá sem hatar líf sitt í þessum heimi, mun varðveita það til eilífs lífs.« Jóh., 12, 25. »En þér vitið að enginn manndrápari hefur eilífa lífið í sér varanda.« 1 Jóh. £, 15. Sá, sem hefur ekki eilífa lífið í sér, getur ekki heldur lifað eilíflega. »Rannsakið ritningarnar, því í þeim hugsið þér að þér hafið eilíft líf, og þær eru það, sem vitna um mig. Og samt viljið þér ekki koma til mín, svo þér hafið lífið.« Jóh. 5, 39, 40. Margir lesa í ritningunni, en vilja þó ekki koma til Jesú svo að þeir læri að elska hann og hlýða honum. Slíkir geta ekki haft lífið. Þegar þeir rísa upp af gröf sinni, þá rísa þeir upp til upprisu dómsins. Þeir munu týna lífinu eða deyja.

x

Frækorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.