Frækorn - 01.06.1904, Page 6

Frækorn - 01.06.1904, Page 6
86 FRÆKORN hið sama, bannfæra, pína og ske,-a nið- ur hvern þann mann eða konu, sem sýn- ir mótþróa og þeir eru ekki hræddir um að hefnt verði fyrir í bráð? Þriðji flokk- urinn fetar í fótspor hins annars flokks, sá fjórði keppir við þriðja flokkinn, og svo koll af kolii endalaust. Og allir for- dæma þeir hvern annan hátíðlega, lim- lesta hvor annan grimmilega og myrða hvor annan miskunarlaust í nafni þeirrar meginreglu, að allir skulu hafa sömu trú og þeir sjálfir og enga aðra. Og þrátt fyrir þetta eru trúflokkarnir ótal margir; og þeir, sem játast undir eina trú, beita ofbeldi við þá sem afneíta henni. í fyrstu varð eg forviða á því að þetta — svona bersýnilega fjarstætt og í sjálfu sér bein mótsögn — skyldi ekki hafa orðið til þess að gjöreyða allri trú. »Er það ekki skrítið — svo eg hafi ekki sterkara orð —,« sagði eg hvað eftir annað við sjálfan mig, »að menn skuli geta haldið áfram að trúa þvert ofan í þessi býsn, og þeir skuli geta trúað þessum ánalegu blekkingum?« Frá almennu sjónarmiði er það bein- línis óskiljanlegt og óræk sönnun fyrir réttmæti þeirrar setningar heimspeking- anna, sem nú er rlkjandi í heiminum, að öll trú sé blekking, og alt, sem stafar af henni, hjátrú. Þegar eg skoðaði málið frá þessu al- menna sjónarmiði, hlaut eg að sjálfsögðu að komast að þeirri niðurstöðu, að allar trúarjátningar sé mannleg blekking; en um leið varð eg líka að stíga einu skrefi lengra og draga þá ályktun, að blekk- ingin, sem er svo bersýnileg hverjum manni, er einn.itt fólgin í fjarstæðunni, og það, að mannkynið yfirleitt og í meg- inatriðunum lætur blekkjast þrátt fyrir alt, það bendir einmitt ljóslega á, að á bak við þessar blekkingar, lengst undir yfiirborðinu, felst eitthvað, sem er eilíft, satt og verulegt. Þessi setning er ekki einungis afleið- ing af vissum forhendum, heldur má skoða hana sem eðlilega staðhæfing, er leiðir af sjálfu sér; annars væri blekk- ingin svo frámunalega lftilsigld og frá- sneidd jafnvel hinum einfaldasta hugs- unargangi, að það yrði með öllu óskilj- anlegt, að hún gæti leitt nokkra skyn- semi gædda veru af réttri leið. Það eitt fyrir sig, að allir þeir sem lifa sönnu, verulegu lífi, láta undantekn- ingarlaust leiðast af þessari blekkingu, neyddi mig til að viðurkenna hina afar- miklu þýðinguþess, er hér liggur á botn- inum, og í meðvitundinni um þessa þýð- ingu fór eg að rannsaka þær kenningar í hinni kristnu trú, er geta skoðast að- alundirstaða blekkingarinnar —að minsta kosti að svo miklu leyti sem þær hafa haft áhrif á alla kristna menn og kon- ur. Af þessum rannsóknum mínum komst eg að þeirri niðurstöðu, að svomikil fjar- stæða sem ofbeldi eða nauðung í trúar- efnum er alment, þá er það þó ólíkt meiri fjarstæða, skoðað frá sjónarmiði ein- staklingsins, sem vill lifa í veruleika og sannleika og þarf því að eiga trú sem skilyrði fyrír því að geta lifað. Crúir þú upprisu framliðinna ? »Mér finst það órýmilegt að trúa upp- risunni*, sagði ungur maður einu sinni við prest. »Eg haíði líka einu sÍKni sömu hugs- un«, sagði prestur, »þangað til eg kom til að sá svo litlu af baunum í garðinn minn. Er það hugsanlegt? sagði eg við sjálfan mig, aðþessar þurru, hörðu baun- ir geti orðið lifandi. Eg trúði samt sem áður á upprisu þeirra, enda þótt eg sæi ekki orsökina til þess og skildi ekki, hvernig þær gátu farið að spíra.« »Já, sagði ungi maðurinnn, svona get- ur það gengið með baunirnar, en þegar mennirnir verða grafnir í jörðu, þá verða þeir liggjandi þar, sem þeir eru lagð- ir.« »Haldið þér þá, að guð beri meiri umhyggju fyrir baununum en sínum dýr- keyptu börnum hér í heimi?«

x

Frækorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.