Frækorn - 15.09.1905, Page 6
142
FRÆKORN
Því skal sýna mátt, og á hermanns hátt,
reka harðstjórn braut, sem að landið særir,
þá niun lifna brátt það, sem horfir hátt,
það sem heill og blessun í garðinn færir.
Upp því, íslands þjóð, meður orku’og móð,
unz þú af þér slítur hið síðsta bandið.
Pú skalt halda fram, til þess hámarks fram,
sam að hjartað þráir, að frelsa landið.
heill og blessun í garðinn færir.« Rá
»frelsast landið«. Gefi oss guð, að það
yrði hlutskifti íslands. Ritstj.
Friður
* *
*
Vér tökum ekki undir með skáldinu,
ef hann kallar hina innlendu stjórn vora
»harðstjórn«, »sem landið særir«, og að
hana eigi að »reka braut«, því að enda
þótt ýmislegt megi að henni finna, þá
væri sagan of sögð, ef ofan greind orð
hins unga skálds ætti að skiljast um hana.
Rað er á annan veg, að vér lítum á aðal-
hugsun þessa undurfagra kvæðis, og vér
skulum stuttlega gjöra grein fyrir þessari
skoðun vorri:
Rað »byrjar smátt alt, sem horfir hátt*,
en sérstaklega er þetta satt um verk guðs
í hjarta mannsins og alt hans verk í heim-
inum. Að þessu líkist það hinum litla læk,
sem vex og loks brýzt fram með óstöðv-
andi afli.
»Andans eilíf þrá« er sannarlega víð-
tækari en svo, að hún fái fullnægju með þvf
að koma á pólitískum byltingum. Hún
er í insta eðli sínu þrá eftir hinum lif-
anda guði, eins og hið forna guðinn-
blásna skáld kemst að orði: »Eins og
hjörturinn kallar eftir rennandi vatni, svo
kallar minn sál, guð, til þín.« I sam-
einingu við hann fáum vér þann kraft,
»sem sigrar alt lágt og hefst svo hátt,
sem hæst má.«
Og »máttarorðið, sem fer yfir storð«
og kennir »sannleikans boðskap með
afli«, það er hið eilífa orð lífsins, sem
kemur frá frelsara vorum Jesú Kristi.
En »harðstjórnin«, sem »særir landið«,
er þrældómur syndarinnar, harðstjórn
lasta og spillingar. En »ef að sonurinn
gefur yður frelsi, þá eruð þér sannarlega
frjálsir. - Jóh. 8, 36.
Ef vér sigrum þessa harðstjórn
og rekum hana á braut, »þá mun
lifna brátt það, sem horfir hátt, það, sem
er loksins kominn á milli Rússa og
Japana. Gerðist það í byrjun þessa mán-
aðar.
En svo urðu um hríð innanríkisóeirðir
hjá Japönum. Reir fóru að saka stjórn
sína um ofmikla tilslökun gagnvart Rússum
| Loftskeyti 8. þ. m. segir, að róstur hafi
orðið út af friðarsamningnum f Tokio (höf-
uðborginni). 2 menn hafi beðið bana og
500 orðið sárir. Nokkur híbýli ráðgjaf-
anna voru brend, og all-ófriðlega var
látið útifyrir bústað Jutaro Kumora, eins
friðarhöfðingjans, en lögreglan gat spornað
við frekari spjöllum.
/ Kákasus
er ástandið voðalegt og fer dagversn-
andi. Menn hafa verið myrtir þúsundum
saman og tugir þúsunda særðir.
/ Armeníu
hafa verið framin voðaleg hryðjuverk
nú hina síðustu daga, að því er biskup
einn símritar. Borg sú, þar sem hann
hefir aðsetur, er öll í rústum. Bardagi
hefir staðið 5 daga milli Tartara og Ar-
meníu manna. A götunum liggja menn,
svo hundruðum skiftir, bæði deyddir og
særðir.
Jarðskjálftar
hafa gengið f suðurhluta Italíu. Hálft
fjórða hundrað manna hefir farist, að því
er frézt hefir.
Sogsbrúin
nýja var vígð af ráðgjafanum 9. þ. in.
að viðstöddum 1000 manns, þar af um
200 úr Reykjavík. Ræða ráðherrans kvað
hafa verið mjög góð. Hann mintist að
maklegleikum mjög svo hlýlega á fram-
taksemi Grímsnesinga að því er fyrirtæki