Frækorn


Frækorn - 31.05.1906, Blaðsíða 2

Frækorn - 31.05.1906, Blaðsíða 2
170 FRÆKORN það ekki, muntu án tillits til hvort það er bannað eða ekki láta vera að gjöra það aftur. En sé það nokkuð, sem hon- um þóknast, muntu gjöra það án þess að bíða eftir skipun. Jesús segir: »Eg gjöri ætíð það, sem er honum þóknanlegt.* Framh. »ÖII synd -hversvegna þá ekki mín?« »Pegar eg var á 20. árinu«, segir David Ferris, »lagðist eg í þungan sjúkdóm, svo eg og þeir sem voru kring um mig höfðu litla von um bata. Dauðinn horfðist í augu við mig, og skelfileg mynd af eymd og angist blasti við mér. Rað var mér Ijóst, að ef eg dæi þá, mundi eg óhjákvæmi- lega glatast. í hinni stærstu sálarneyð bað eg drottinn um hjálp, og lofaði aftur- hvarfi, ef hann hjálpaði mér og gæfi mér frest. Forsjóninni þóknaðist að bænheyra mig, svo eg fékk heilsuna aftur, eftir hér um bil mánuð var eg kominn á fætur. Eftir að eg var orðinn frískur mint- ist eg, hvílíkri neyð eg hafði verið í, og hverju eg hafði lofað, meðan eg lifði í hinum voðalega ótta fyrir ei- lífri glötun. Eg sá það var nauð- synlegt að efna trúlega loforð mitt; eg fann að eg varð eitthvað að gera, og ef eg nú ekki héldi loforð mitt mundi eg aftur verða að líða sömu sálarkvöl, eða aðra þyngri. En þegar eg hafði ákveðið, að byrja nýtt líf, freistaði óvinurinn min, til að halda það væri of seint að hugsa um að öðlast frið við guð; af því að þegar sá tími gæfist, að menn gætu fundið frelsun, en þeir þá sleptu tæki- færinu, þá væri ofseint að gjöra til- raun seinna. Frá þessum tíma, og svo mánuð- um skifti leitaði eg ekki náðar og lifði í hinni dýpstu örvænting. Einu sinni á þessum örvæntingar- tíma, réð eg það af, að yfirgefa föð- urland mitt, og ferðast til útlanda, og lifa þar, það sem eftir væri æfinnar, óþektur, og til þess að enginn af skyldfólki mínu eða kunningjum, skyldj vita hvað orðið væri af mér. Þessi dagur var hinn mesti sorgar og reynsludagur, sem eg hafði lifað. Um kvöldið þegar eg gekk eftir plóg- inum, vaknaði eftirtekt mín við blíða raust, sem sagði: »Blóðið Jesú Krists hans sonar, hreinsar oss af allri synd.« En eg gaf þetta frá mér, og sagði í hjarta mínu: »Pað er of seint, það hefir verið sá tími að eg gat orðið hreinsaður; en því miður! Rað tæki- færi er glatað fyrir mig.« Nokkru siðar, er eg var að hugsa um, til hvaða lands eg skyldi flýja, komu sömu orð fyrir mig með meira krafti en áður; en eg sló þeim frá mér aftur og fanst eg hafa mist all- an rétt, til þess að heimfæra þau upp á mig, og fór svo aftur að hugsa um að flýja til útlanda. Meðan eg var að hugsa um eymd- arástand mitt, komu sömu orðin, ó- vænt í huga minn, með meira krafti og valdi enn nokkru sinni fyr: »Blóð- ið Jesú Krists hans sonar, hreinsar oss af allri synd.« (1. Jóh. 1, 7). Nú er eg heyrði þessi orð, fyltist sál mín með gleði. Eg fann dyr vonarinnar opnar, og sagði við sjálfann mig: »Ö1I synd, hvers vegna þá ekki mín?« Lifandi von spratt upp í hjarta mínu. Eg sá miskunarfaðminn op- inn, til að taka á móti mér; eg sá veginn skýrt, eins og veg gegn um þéttann skóg.

x

Frækorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.