Frækorn - 05.07.1906, Qupperneq 8
216
FRÆKORN
Drengur beið bana
af slysi upp í Borgarnesi á föstudag-
inn var. Hann hét Haukur, sonur Ás-
geirs kaupmanns Eyþórssonar í Rvík, 8
ára gamall. Hann var að fara til bæjar
í nágrenninu með öðru fóiki, sat í söðli
og var bundið um hann svo að hann
félli ekki af baki. Hesturinn fældist og I
snaraðist söðullinn. Var drengurinn dá-
inn, þegar hesturinn náðist.
Meiðsli
hlutu tveir menn á »Vestu«, er hún
var á Djúpavogi um daginn. Misti ann-
ar flesta fingur af annari hendi, en hinn j
höndina neðan við olboga. Rað var 1
stýrimaður og timburmaður.
Pýzkt botnvörpuskip
strandaði nýlega á Skeiðarársandi. Menn
björguðust allir, 10 í land, en -fjórum
var bjargað í annað botnvörpuskip.
Ásgeir Blöndal
héraðslæknir hefir sótt um lausa frá
embættisstörfum um tíma sakir heilsu-
brests. Hann ætlar til útlanda um miðj-
an þennan inánuð. Ouðmuudur Tómas-
son stud. med. 'gegnir störfuni hans a
meðan.
Konungkjörinn
þingmaður er Steingrímur Jónsson
sýslumaður orðinn í stað Jóns Olaíssonar.
„Mjölnir“
gufuskip Thore-félagsins kvað hafa
strandað á Vopnafirði síðla í f. m. á
leið til útlanda frá Akureyri, hafði skeð
um nótt, í þoku. Menn björguðust allir
við illan leik
Tíðarfar
er nú hið bezta. Sláttur byrjaður á tún-
um í Reykjavík.
Áskrifendatal blaða.
Tvö Reykjavíkur-blöðin eru að met-
ast á um hvort þeirra hafi meiri út-
breiðslu. Annað segist nú hafa 2,633
kaupendur. Hitt álíka marga. En blöð
þessi standa þó skör lægra en »Fræ-
korn«, hvað útbreiðslu snertir. Upplag
hvers tölublaðs hefir, síðan nýár, ver-
ið 4,450, en áskrifendur eru
um 4,000, og fjölga þeir stöðugt.
Auglýsendur ættu að hafa það hug-
fast, að »Frækorn eru óneitan-
lega bezta auglýsingablaðið
SAMKOMUHÚSIÐ BETEL.
Sunnudaga :
Kl. 2 e. h. Sunnudagaskóli.
Kl. 61/2 e. h. Fyrirlestur.
Miðvikudaga :
Kl. 81/4 e. h. Bibliusamtal.
Laugardaga:
Kl. ll.f. h Bænasamkorna og biblíulestur
xit9 íS
ytr Jfr
Sjómenn ættu að muna
eftir að liftryggja sig í
Dan. Tryggingar i Dan
eru ódýrastar og beztar.
Skrifstofa félagsins er í
F’ingholtsstræti 23. Rvík.
BRÚKUÐ ÍSLENZK kaj
FRiMERKI OG ^
BRÉFSPJÖLD ^ =%
kaupir >
D. ÖSTLUND. ^