Frækorn


Frækorn - 11.07.1906, Blaðsíða 3

Frækorn - 11.07.1906, Blaðsíða 3
FRÆKORN 219 sem honum eru þóknanlegir, að leita þess, sem tapað er. --------*♦*------ Hjalp við svefnleysi. (Sönn saga.) Eftirfarandi saga er af dr. Forbes Win- slow (eldra), frægum lækni í Lnndúnum. Háttstandandi frakkneskur maður kom til Lundúna að finnadr. Winslow; hafði hann með sér meðmæli frá merkum frakk- neskum mönnum, og jafnvel frá Napo- leon III., sem þá var keisari, og var beð- ið um hina beztu hjálp handa hinum unga manni. Maðurinn hitti dr. Winslow og sýndi honum bréf sín. Læknirinn sagði: »Hvað gengur að yður?« Hann svaraði: >Dr. Winslow, eg get ekki sofið. Eg hefi ekki haft góðan nætursvefn í tvö ár, og nema eitthvað sé geit, sem hjálpi mér, missi eg vitið.« Læknirinn spurði : »Hversvegna getið þér ekki sofið?« »Það get eg ekki sagt yður«, svaraði maðurinn.« »Hafið þér orðið fyrir fjármissi ?« »Nei, eg hef ekkert fé mist.« »Hafið þér mist vini?« »Nei, eg hefi ekki mist vini um lengri tíma.« »Hafið þér orðið fyrir einhverri van- virðu ?« »Nei, ekki svo eg viti.« »því getið þér þá ekki sofið?« sagði doktorinn. »Eg vildi helzt ekki þurfa að segja yður það.« »Ef þér viljið ekki segja mér frá því, þá get eg heldur ekki hjálpað yður.« »Ef eg verð að segja yður það, þá gjöri eg það«, sagði maðurinn : »Eger guðsafneitari, og faðir minn var það líka, og samt, þó eg sé afneitari, og faðir minn væri það líka, þá plágast eg hverja nótt af spurningunni : »Hvarmun eg verða í eilífðinni ? þessi spurning hringir mér í eyrum alla nóttina, og ef eg fell í svefn snöggvast, þá plágast eg af vondum draumum, sem eru mér verri en það, að vaka, svo að eg hræðist jafnvel svefninn.« Dr. Winslow sagði: »Eg get ekkert gert fyrir yður.« »Hvað?« sagði frakkneski maðurinn. »Hef eg þá farið alla þessa leið til þess að fá hjálp, en þér drepið niður hjá mér hverja von ? Viljið þér segja, að ómögu- legt sé að hjálpa mér ?« Dr. Winslow sagði aftur: »Eg get ekki læknað yður, en eg get vísað yður á lækni, sem getur gjört Jaað«, og hann fór yfir um skrifstofuna og tók biblíuna sína, sem lá þar á borði, fletti upp í Es. 53, 5. og 6. vers og fór að lesa: »Hann var vegna vorra misgjörða særður og fyrir vorra synda sakir lemstr- aður; hegningin lá á honum, svo vér hefðum frið, og fyrir hans benjar urðum vér heilbrigðir. Vér fórum allir villir vega, sem sauðir, hver stefndi sína leið, en þó lagði drottinn á hann syndir vor allra.« Dr. Winslow leit á frakkneska mann- inn og sagði: »þetta er sá eini Iæknir, sem getur hjálpað yður.« Háðslegt bros fór yfir andlit manns- ins og hann sagði: »Dr. Winslow, viljið þér segja mér, að þér, sem eruð frægur vísindamaður, trúið á þessa fyrri alda heimsku, á biblíu og kristindóm?« »Já«, sagði dr. Winslow, »eg trúi biblí- unni og eg trúi á Jesúm Krist; og það, að trúa biblíunni og Jesú Kristi hefir fielsað mig frá því ástandi, sem þér eruð í nú.« Ungi maðurinn fór að hugsa, svo sagði hann: »Dr. Winslow, ef eg er

x

Frækorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.