Frækorn


Frækorn - 11.07.1906, Page 5

Frækorn - 11.07.1906, Page 5
FRÆKORN 221 Heitið. Theodór Árnason þýddi. Niðurl. Loksins létti mér fyrir brjósti, eg féll í langvarandi, ákafan og hjartan- iegan grát. Það var bitur iðrunar- grátur gagnstæður þeim reiði- og hefndar-tárum sem, eg hafði felt áð- ur um daginn. En meðan eg grét þannig, skildist mér það, að eg hlaut að biðja bróður minn fyrir- gefningar. »Rúðólfur! Rúðólfur!« bað eg, þeg- ar eg stóð við rúm hans, og var enn þá kjökrandi. »Fyrirgefðu mér, eg er svo hryggur yfir þeim órétti, er eg hef gert þér.« Hann svaraði engu, en þó fann eg, að hann var vakandi. »Rúðó!fur!« hélt eg áfram. »Eg hef skrökvað á þig við föður minn, og gért hann reiðan við þig. Eg verðskulda þá hegnmgu, sem þú hef- ir fengið.« »Pað ættirðu skilið.« »A morgun skal eg játa það fyrir honum og biðja hann að hegna mér,« hélt eg áfram. »En eg sit nú samt sem áður fylli- lega með það, sem eg hef fengið,« svaraði Rúðólfur. »Eg er svo innilega hryggur yfir ilsku minni, og þú mátt ekki bera reiði til mín,« sagði eg og kastaði mér yfir hann til þess að umfaðma hann. »F*ú kreistir mig! farðu í burt,« svaraði hann og ítti mér frá sér. »Nei, eg get ekki háttað, fyrr en eg hef fyrirgefning þína,« stundi eg. Eg get ekki sofnað, þegar þú ert reiður við mig, en það hef eg verð- skuldað. Eg skal aldrei skrökva um þig framar, ef þú að eins fyrirgefur mér í þetta eina skifti.« Rúðólfur svaraði engu og eg stóð I kyrr í sömu sporum, og skeytti því | engu, þótt inni væri nepjukuldi. »Rúð- ólfur! góði gefðu mér hönd þínaupp á það, að þú skulir ekki vera reiður við mig framar,« bað eg svo auð- mjúklega eftir stundarþögn Pá komst bróðir minn við af þess- ari stöðugu bæn minni, og hann rétti mér hönd sína þegjandi, og hversu glaður greip eg í hana, nú hafði eg aftur unnið bróður minn. »Þökk, kæri bróðir,« sagði eg og nú ítti hann mér ekki frá sér, er eg umfaðmaði hann. »Komdu með mér á morgun, þegar við erum komnir á fætur niður til pabba, svo að eg geti sagt honum, hvernig eg hefi breytt við þig.« »F*að er ekki vert að vera að því, því þá hegnir liann þér líka, nú er það þegar gleymt, en það get eg sagt þér Friðrik, að höggin hans voru þung.« »Jú, eg ætla nú samt að gjöra það; því eg fæ enga hugarró fyrr,« sagði eg »en eg skal aldrei gleyma því, að þú gazt fyrirgefið mér; það hefði eg víst ekki getað, hefði eg verið í þín- um sporum.« F*egar eg aftur var lagstur til hvílu, lá eg lengi og yfirvegaði það sem skeð hafði. Síðan krosslagði eg hend- urnar og bað: »Kæri guð faðir! Eg vil aldrei framar skrökva, eða gjöra nokkrum mein, láttu okkur Rúðólf altaf vera góða vini!« Morguninn eftir var erfitt verk fyrir höndum, en ákvörðun mín var óhagg- anleg. Meðhald föður míns með mér hlaut að hætta, tn verra var það, ef eg bæri enga virðingu fyrir sjálf- um mér, og það fann eg,að eg gerði ekki, ef eg segði ekki allan sannleik- ann og sannaði sakleysi Rúðólfs.

x

Frækorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.