Frækorn


Frækorn - 11.07.1906, Page 6

Frækorn - 11.07.1906, Page 6
222 FRÆKORN Eg skalf, þegar að framkvaemdun- um kom, en er eg fann bróður minn við hlið mér, óx mér hugur, svo eg kannaðist einarðlega við brot mitt. »Hegndu mér eins og Rúðólfi,« sagði eg, »því eg verðskulda það.« »Pað er satt, Friðrik« svaraði pabbi, »en fyrst Rúðólfur hefir fyrirgefið þér, þá vil eg einnig gjöra það; því hef eg gert þér rangt til, drengur minn«, sagði hann og dró Rúðólf að sér og klappaði honum á kinnina. »Nú sjá- ið þið börnin mín hverjar afleiðing- arnar geta orðið af skreytninni, og vona eg nú, að drottinn kenni ykkur það og forði ykkur frá henni.« Gefið þið mér nú koss því til stað- festingar, að þið ávalt skuluð tala sannleika«, sagði móðir okkar, og báðir staðfestum við heitið með kossi. Nú var byrðinni loks létt af hjrta mínu og eg dró andann léttara. »Nú skulum við altaf vera góðir vinir« sagði eg og horfði á Rúðólf. ■ »Já, ávalt« svaraði hann. Retta heit héldum við einnig og þegar ótti eða reiði síðan hafa viljað freista mín til að segja ósatt, þá hef eg ávalt minst þeás, sem eg hét guði, föður mínum og móður, og það hef- ir styrkt mig í baráttunni fyrir hinu sanna og rétta. Mestu auðkýfingar heimsins. í Ameríku eru fleiri auðkýfingar en í nokkru öðru landi. Hér skulu tald- ir nokkrir hinir helztu og auður þeirra íheilum milj. kr. John D. Rockefeller . . 1980 Andrew Carnegie . . . 900 W. K. Wanderbilt . . . 450 J. J. Astor 360 Wm. Rockefeller. . . . 360 G. J. Gould 360 W. A. Clark 360 D. O. Mills 270 H. C. Frick 216 Mrs. Hetty Green . . . 198 Cieo. Westinghouse . . 180 Pierpont Morgan . . . 180 i Englandi eru þessir auðugastir: Alfr. Beit 1800 J. B. Robinson . . . . 1440 W. W. Astor 1440 Srathcona lávarður . . . 450 Hertoginn af Westminster . 288 Mountstephen lávarður . 270 Rothschild lávarður .. . 270 Iveagh lávarður . . . . 252 Hertoginn af Devonshire . 180 Hertoginn af Bedford . . 180 í öðrum löndum má nefna: Tercazas hershöfðingi, Mexico . 1044 Demidoff fursti, Rússlandi . 790 Sennora Cousino, Chile 252 ískyggilegur trúboði. Tvö blöð þóttust hafa »tromf á hendi« hérna um daginn út af ódáða- verkinu í Árósum, á telpu, 7 ára gam- alli. Pað átti að hafa verið trúboði, sem illvirkið framdi og á milli lín- anna mátti lesa um kristniboða og trúboða: »slíkir eru þeir!« Antikristi- legum blöðum er það fagnaðarefni, þegar einhver þeirra, sem játa nafn Krists, breyta ekki samkvæmt játning- unni. En að þessu sinni var gleðin ástæðulaus. Nú er það komið upp úr kafinu að þessi maður, Thygesen , skóari í Arósum, hafi aldrei verið í þjónustu heimatrúboðsins, heldur ver- ið um tíma ráðsmaður sjómanna heim- ilis í Arósum, sem nokkrir borgarar 1 þar áttu, og var þá leyft, eftir með-

x

Frækorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.