Frækorn - 11.07.1906, Qupperneq 7
FRÆKRON
223
mælum kunningja sinna, að tala í
heimatrúboðshúsum til að hlynna að
þessu heimili, án þess þó að vera
áðinn starfsmaður heimatrúboðsins
danska.
Fyrir hér um bil þremur árum komst
upp um hann saurlifnaðar-ódæði við
ungar telpur; það kom mjög flatt
upp á alla, því þá grunaði engan, að
hann væri sturlaður annað veifið, nema
ef til vill konu hans, sem fór fram á,
að stjórnarvöld sæi um, að hann gerði
engum mein framar.
Hann misti vitanlega þegar ráðs-
menskuna á sjómannaheimilinu, og
var dæmdur í 2 ára betrunarhúsvinnu.
Pá fyrst tók h eimatrúboðið að sér
alla umsjón þessa sjómannaheimilis.
Pegar Thygesen kom úr betrunar-
húsinu aftur, var hann bersýnilega
bilaður á geðsmunum, hann sat um
að ganga nakinn, var um tíma í geð-
veikradeild sjúkrahússins í Árósum o.
s. frv.
Nákunnur maður heimatrúboðinu
danska segir, að því fari fjarri, að
stjórn heimatrúboðsins hafi dátið hann
halda áfram« nokkru starfi þetta geð-
veik.sár hans. Hvort hann hefir þá
sjálfur ráðist í að halda > kristilegar
samkomur« veit eg ekki, en að minsta
kosti hefir það ekki verið í húsum
heimatrúboðsins, segir ofannefndur
maður.
réttír.
Kjartcm
litli Porvarðsson, sem skotinn var ný-
verið, virðist nú vera á öruggum bata-
vegi. 1
Slys enn.
Fræðimaðurinn Brynjólfur Jónsson á
Minna-Núpi var í ferð með hr. Poestion
yfir Mosfellsheiði. Hann datt af baki og
meiddist talsvert; óvíst var hvort hann
hefði viðbeinsbrotnað, en jafnan eru »stirð
gamalla manna föll.«
Brunar.
2. f. m. kviknaði í íbúðarhúsi séra
Jónmundar Halldórssonar á Barði í Fljót-
um. Fyrir stakan dugnað prestsins og
heimilisfólksins varð slökktur eldurinn;
en mikið tjón varð að skemdum á hús-
um og munum.
Hringnótaveiðar
ætla tvö ensk eimskip, sem upp komu
til Eyjafjarðar í f. m., að stunda fyrir
utan landhelgi þar.
Heimboðið.
Alþingismennirnir fóru með »Botniu«
á konungsfund 9. þ. m.
Áskrifendatal blaða.
Tvö Reykjavíkur-blöðin eru að met-
ast á um hvort þeirra hafi meiri út-
breiðslu. Annað segist nú hafa 2,633
kaupendur. Hitt álíka marga. En blöð
þessi standa þó skör lægra en »Fræ-
korn«, hvað útbreiðslu snertir. Upplag
hvers tölublaðs hefir, síðan nýár, ver-
ið 4,450, en áskrifendur eru
um 4,000. og fjölga þeir stöðugt.
Auglýsendur ættu að hafa það hug-
fast, að »Frækorn* eru óneitan-
leg:a bezta auglýsingablaðið
Heimskan og brennivínið.
Einn brennivínssalinn hér í bænum,
sem áður hefir fengið þarflegar áminn-
ingar í »Frækornum«, er nú farinn að
auglýsa brennivínið sitt eins og mat.
Hann segir um Salomon: »Ef hann
(Prédikarinn) hefði verið nú á dögum,
þá hefði hann vafalaust sagt: *’Etum
og drekkum þjóðfrœga brennivínið'« o.
s. frv.
I Vér skorum á alla skynbæra menn,