Frækorn


Frækorn - 28.05.1907, Qupperneq 5

Frækorn - 28.05.1907, Qupperneq 5
FRÆKORN 161 gæti ekki þó líf mitt væri í veðí. Eg hef ekki snert tóbak síðan, og nú er eg kominn til að borga reikninginn«. Þér skuldið mér ekki einasta eyri eg ráðlagði yður ekkert«. »Þér gjörðuð það víst, og nú ætla eg að borga yður. Ef til vill viljið þér ekki taka móti peningunum; en eg skal sýna yður að eg get líka ráðið fram úr því! Síðan opnaði hann hurðina fyrir ofninum í stofu læknisins — til allrar heppni var ekki eldur í honum — og stakk þar inn 100 kr. seðli gekk síðan út af skrifstof- unni glaður í bragði, eins og hann hefði leyst vel af hendi nokkurskonar skyldu- verk. Vorið. Pá sólin úr suðrinu kemur og sumarsins lífgandi blær, sem frónið úr náklæðum nemur, svo náttúran vaknar og hlær, þá gengur í gróandi varpa hinn gullhærði barnanna fans; alt lífið er hljómandi harpa, þau hnýta sér blómanna krans; þau velja sér ljómandi liti því listin er komin svo skamt; þau velja sér fæst eftir viti, en velja’ úr hið fegursta samt O, saklausa sál! þú hin hreina, ert sólin á listanna braut, eitt blaktandi blóm milli steina þér birtir alt Salómons skraut! :j: í sólaryl vorsins býr sumarið fyrst :J: og sakleysi barnanna verðurað list. M.J. Hún vildi fara í vistina. (amerisk saga.) Niðurl. Móðir mín rétti sig upp í sætinú og svaraði: *Eg álít að Eleonóra dóttir mín hafi rétt fyrir sér«, sagði hún. Konur af Berkelin-ættinni hafa altaf verið »döm- ur.« Eg hafði setið þegjandi með hönd undir kinn meðan á þessum samræð- um stóð; en nú stóð eg upp og gekk þl föðurbróður míns. »Já, já, Súsanna litla«, sagði gamli maðurinn og tók vingjarnlega í hönd mína, »hvað vilt þú?« >Eg bið afsökunar, föðurbróðir minn, — en eg vil fara í vistina,« sagði eg skjálfandi. »Bravó!« kallaði hann. »En barnið gott«, varð móður minni ósjálfrátt að segja. »Súsanna«, sagði Eleonóra, með málrómi, sem var alt annað en upp- örfandi. »Já«, sagði eg, »100 kr. á mánuði, er mikil upphæð, og mér hefir aldrei þótt fyrir að vinna. Eg held eg vilji fara í vistína hjá gömlu konunni, föð- urbróðir. Eg er viss um að eg get sent mömmu og Eleonóru að minsta kosti 80 kr um mánuðinn, og svo er inndælt að fá hálfsmánaðar fríbæði vor og haust. Fæ eg ekki að vera með þér þegar þú ferðast, föðurbróð- ir. Hvað heitir þessi gamla frú?« »Nafn hennar? sagði eg ykkur það ekki? Hún heitir Prudence — frú Prudence. . »Það er fallegt nafn. Eg er viss um að mér mun geðjast að henni«, sagði eg. »Pað held eg vissulega«, sagði föð- urbróðir minn, og leit vingjarnlega

x

Frækorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.