Frækorn


Frækorn - 20.09.1907, Side 2

Frækorn - 20.09.1907, Side 2
286 FRÆKORN um hans. samkv. 1. og 2. gr., undir sjálfum sér, með því ákvæðisverði, sem sett er á gjöld I þessí í matsgerð, er fari fram 10. hvert ár. Um sóknartekjur hafa lögin þessi á- kvæði: 12. gr. Tíundir, offur, lausamannsgjald, lambsfóður og dagsverk, er hingað til hefir átt að gjalda sóknarpresti, skal sóknarnefndin innheimta í hverri sókn, og ber því sóknarmönnum að greiða gjöld þessi til hennar. Presti og hrepp- stjóruin, og i kaupstöðum bæjarfógeta, er skylt að láta sóknarnefnd í té þær skýrslur, er hún þarf að halda á vegna innheimtunnar. 13. gr. Ojalddagi á preststíundum, offri og lausa- mannsgjaldi er 31. des. ár hvert. Sami gjald- dagi er og á lainbsfóðri og dagsverki, sé það eigi int af hendi í skileyri. 14. gr. Heimilt er safnaðarmönnum að ákveða, á lögmætum safnaðarfundi fyrir eitt ár í senn, að koma skuli niðurjöfnunargjald í stað hinna lögmætu sóknartekna. Sóknarnefndin jafnar gjaldinu niður í október eftir reglum, er sam- þyktar eru á lögmætum safnaðarfundi og stað- festar af prófasti. Presti og hreppstjóra eða bæjarfógeta í kaupstöðum erskylt aðlátasókn- \ arnefnd í té skýrslur þær, er hún þarf að nota i því skyni. Eindagi gjald þessa er 31. desbr. Heimilis- ráðandi hver leggur gjaldið fram fyrir heimilis- menn sína, en á rétt til endurgjalds hjá öðrum en þeim, sem hann á fram að færa að lögum. Gjaldi þessu fylgir lögtaksréttur. 15. gr. Fyrir innheimtu á preststíundum, offrum og lausamannsgjaldi fær sóknarnefndin 6°/0 af upp- hæðinni, en fyrir innheimtu á lambsfóðrum og dagsverkum fær hún 10°/0. Enda geri hún full skil fyrir öllum sóknartekjunum, að frádregn- um innheimtulaunum, með þvi verði, sem á- kveðið er í verðlagsskrá. Innheimtulaun af niðurjöfuunargjaldi er 6°/0. Prestunum eru þessi lög líkast til mjög kærkomin. Peir losna nú við að vera »tollheimtumenn« launa sinna. Oskiljanlegt virðist oss samt vera, hví aukaverkaborgunin skyldi ekki vera aftekin, því að ef nokkuð er leið- inlegt og óvíðurkvæmilegt í ríkiskirkju- löggjöfinni, þá er það aukaverkaborg- unin. Prestur er þar gerður að kaup- manni, og vörurnar, sem hann er lát- inn selja, eru: Skírn, ferming, gifting og greftranir. Rað væri ætlandí, að einhverjum af hinum háttvirtu löggjöfum hefði fund- ist ástæða til að afnema þessa óhæfu, en ekki ber á því. Breytingin á launum presta er svo mikil eftir þessum nýju lögum,aðvel hefði mátt taka þetta atriði með; hægt að launa prestunum svo, að þetta hetði getað fallið niður, og skírn, ferming og aðrar kirkjulegar athafnir hefði orðið gjald-frjálsar. Pað væri auðvitað það eina rétta. Engum manni dettur það í hug, að postular drottins hafi gefið reikning fyrir skírn eða neitt annað af verkum þeim, er þeir framkvæmdu. Pað er svo langt frá því, að postular drottins vildu reka slíka sölu á helgum athöfnum, að einn peirra sagði við mann, er bauð honum borgun fyrir eitt verk, sem hann vildi fá gert: »Þrífist aldrei silf- ur þétt né þú, fyrst þú hugsar, að guðs gjöf fáist fyrir fé.« Postg. 8, 20. Koma ekki þessi heilögu orð illa i bága við lögin um aukaverk presta? Skyldi ekki salan á þessum auka- verkum vera ein orsökin í því, að svo margir lítilsvirða hinar helgu athafnir, sem þannig af kirkjumálalöggjöfinni verða settar á bekk með almennum verzlunarvörum? Og er hún ekki eitthvað skyld kaþólsku syndalausnarsölunni? Hver, sem eyru hefir til að heyra, hann heyri!

x

Frækorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.