Frækorn


Frækorn - 20.09.1907, Blaðsíða 4

Frækorn - 20.09.1907, Blaðsíða 4
288 FRÆKORN jarðneska lífs, þar til þú lendir í hinni 'nimnesku höín. Sú von, =em veitti spámönnunum og píslarvottunum þrek og djörfung, iýsir jafn skært fyrir guðs börnum á hinum síðasta tíma, og þau þurfa að uppörfast af geislum vonarinnar engu síður en guðs börn á fyrri tímum. Ennþá liggur strangt stríð fyrir guðs börnum, og vér lifum einmitt á þeim tíma, að vér þurfum að búa oss undir það. Bráðum gengur náðar- sólin undir, og þá er það orðið eilíf- lega ofseint að undirbúa sig. Nú er um að gera að hagnýta sér hinn dýr- mæta sannjeika, sem upplýsir oss, einmitt til þess að vér finnumst verð- ugir og getum staðist á þeim mikla degi drottins. Sá, sem skynugur er, gefi gaum að þessu, svo hann fái unnið sigur yfir dýrinu og líkneskju þess, og að lok- um sungið söng Móses, guðs þjóns, og söng lambsins fyrir hásæti hins alvalda! Op. 15, 2.-3. J. G. Matteson. Tjaldbiíða-samkoma. Myndin, sem »Frækorn« nú flytja, var upphaflega ætlast til að fylgdi »ferðamolum« ritstj., sem komið hafa á þessu ári, en hún kom of seint til þess. Skal hér með fáum orðum skýrt frá henni. Margir kirkjuflokkar í Ameríku og einnig í ýmsum löndum í Evrópu halda ársþing sín á sumrum. En þá er oftast svo heitt í veðri, að það þyk- ir þreytandi, að sitja á stórum mann- fundum í þröngum kirkjum. Er þá jafnan valinn einhver staður, sem er af náttúrunni mjög fagur til að halda samkomur þessar á, og eru gríðar- ; stór tjöld reist þar í stað kirkna. Auð- vitað eru bekkir og allur útbúnaður * svo smekklegur,sem unt er. Auk sam- komutjaldanna eru þar og reist mörg tjöld til íbúðar fyrir fulltrúana og aðra aðkomandi. Geta oft fleiri þúsundir manna haft aðsetur í tjaldbúðum þess- um um eina eða tvær vikuj. Að slíkir dagar úti í yndislegri nátt- úru ásamt vinum og trúbræðrum séu hátíðlegir mjög, þarf ekki að taka fram. Ritstjóri þessa blaðs var við slíkt þing frá 9. — 22. maí þ. á. eins og skýrt er frá í »ferðamolunum,« sem að öðru leyti vísast til. Katholsk hjátrú. Eins og kunnugt er eru kathólskir ákaflega hjátrúarfullir, sem dæmi þess má benda á eftirfylgjandi frásög- ur. Hinn frægi rithöfundur Camille Flammarion segir í bók sinni »Hið ókannaða«, það sem hér fer á eftir. Verndardýrðlingurinn fyrir Vieux — Beausset nálægt Eaulon St. Eutrope er álitinn að hafa vald til að veita regn, þegar hann vill. Fyrir nokkr- um árum var það einn dagímaímáð- uði, að yfirmaður einsetubýlisins, þar sem myndastytta dýrðlingsins stóð, tók styttuna niður af pallinum, hallaði henni upp að húsdyrunum og fór að berja hana. Maður nokkur, sem gekk þar framhjá, furðaði sig yfir þessari meðferð á dýrðlingsmyndinni, og spurði, hvað þettaætti að þýða.en hon- um var svarað: »Sjáið þér, herra minn, ef eg gef honum enga slíka ráðningu, þá fæst hann ekki til að gjöra nokkurt gagn.« Skömmu síðar fór að rigna og uppskerunni var borg-

x

Frækorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.