Frækorn


Frækorn - 15.11.1907, Blaðsíða 2

Frækorn - 15.11.1907, Blaðsíða 2
250 FRÆKORN líka ættuð úr Árnessýslu. Eiga þau hjón sex börn. Elsti sonur þeirra gengur í hinum alm. mentaskóla hér í Rvík. Kraftaoerk — eiga Jjau $ér $taö á oorunt doðum? Niðurlag. Ennfremur ber oss að gæta þess, að þótt guð sé ekki hættur að gjöra í kyrþey kraftaverk fyrir börn sín, þá gilda þó yfir liöfuð að tala um hin ber- sýnilegu, stóru kraftaverk orð Sal- ómons konungs, er hann segir: »Alt hefir sinn tíma.< í biblíunni stendur ekkert um, að guð hafi gjört opinber kraftaverk 15 ald r fyrir syndaflóðið; því hann tók Enok burtu í kyrþey. 1. Mós. 5, 24. Pað er líka kenning biblíunnar — sem oft verður tekið fram í sálmunum — að eftir að guð útvaldi Abraham, þá var það aðeins hans fólk sem hann opinberaði sig í augljósum og áþreiíanlegum krafta- verkum. Rau 400 ár, sem ísraelsmenn voru í þrældómnum í Egyptalandi, hefði guð ekki gjört kraftaverk fyrir þá ; því hann hafði snúið augiiti sínu frá þeim. Pannig hefir Irann einnig gjört í síð- ustu 18 aldir og ekki svarað bænum þeirra Sá sem er kunnugur biblíunni og spádómum hennar, getur séð, að með Jerúsaiems eyðileggingu endar kraftaverkatíminn, að svo miklu leyti sem er opinbert fyrir heiminum, og samkvæmt spádómi Jóels munu þau fyrst byrja aftur, þegar guð líknar fólki sinu og leysir það úr ánauðinni. Áuk þess mundi það vera eins os að kasta perlum fyrir svín, að gjöra augljós kraftaverk fyrir nútíðar-kynslóðinni, sem er orðin svo spilt og fyrir lítur guðs orð og sannleika hans, það mundi verða einungis til að leiða þýngri dóm yfiross. ÍMatt. 11. 20-24. lesum vér um gyðinga í tilliti til kraftaverka hans: »þeir urðu allir óttaslegnir og lofuðu guð.«- Mundu menn líka gjöra það, ef kraftaverk væru gjörð á torgunum eða götunum í París, Lundúnum, Ber- lin eða Wien ? . . Jafnvel nú, á þessum spiltu tímum, lætur guð sig ekki án vitnisburðar. Síðan ísrael varð forhertur, kallar hann og safnar óaflátanlega fólki af öllum þjóðum og túngumálum inn í söfnuð sinn, sem hann ekki lengur, eins og ísraels þjóð, lofar jarðneskum, heldur himneskum gæðum. Því veitir hann ekki þessari kirkju veraldlegan sigur með kraftaverkum, hvorki þurkar upp fljótineða lætur Jerikós múra falla, en í stað hins ytra, áþreifanlega framleið- ir hann innri, andleg kraftaverk í sál- um manna. Þannig grípur hann á degi eða nóttu, í myllunni, eðaáeng- inu, í einveru, eða fjölmenni og há- vaða lífsins einn eða annan mann, og snýr hjarta hans þannig, að hann elsk- ar það, sem hann áður hataði og hat- ar það, sem hann áður elskaði, svo sorg hans verður að gleði og gleðin að sorg, svo að heimurinn bliknar í augum hans og verður sem hverfandi skuggi, en hið himneska riki, sefn hann ekki hefir trúað á fyr, verður nú hið eina verulega fyrir hann, svo hann deyr í friði, já, jafnvel þráir að leysast héð- an í stað þess að heimsins börn ótt- ast dauðann. — Er ekki þetta krafta- verk? — Pú, sem enn þá efast, bið þú guð að framkvæma það í þinni sál, þá hefir þú kraftaverkið í þínu eigin lífi og getur glaðst, þegar þeir neita því, sem ekki þekkja það sjálfir.

x

Frækorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.