Frækorn - 29.11.1907, Qupperneq 1
Rirdísbréf páfa.
Páfinn hefir nýskeð sent út hirðis-
bréf (encyclika), og blöðin út um heim
ræða það bréf með miklum áhuga.
»Verdens Oang« segir:
»Hið nýja hirðisbréf páfans, sem er
beint á móti öllum nútíðarhreyfing-
um, er prentað í Osservatore Romano
og vekur ákaflega mikla eftirtekt. Páf-
inn segir, að hinn nýi tíðarandi (Mo-
dernismen) hefir nú gripið svo um
sig, að hann sé orðinn að mikiili
hættu fyrir kirkjuna, og það sé eitt
af helstu skylduverkum páfans að
vinna á móti allri vfsindalegri rann-
sókn af »sannindum« kirkjunnar. Hinn
j nýi tíðarandi muni í ýmsu — eins og
t. a. m. í tiliiti til breytiþróunarkenn-
ingarinnar og hinnar sögulegu gagn-
rýni, persónulegra trúarskýringa og
tilrauna til þess að endurbæta kirkju-
trúna — leiða til guðsafneitunar. Hinn
( taumlausi þekkingarþorsti og persónu-
leg ærugirni stafa af því, að menn
lítilsvirða hin sönnu kaþólsku vísindi
j og eru ekki nægilega skylduræknir
gagnvart kaþólsku kirkjunni. Pað er
þetta, sem hefir orsakað það, að hinn
nýi tíðarandi hefir náð sér svo djúpt
niðri meðal svo margra kaþólskra
manna og jafnvel meðal prestanna.
Páfinn skipar svo fyrir, að fræðsl-
an í skólaspeki og guðfræði miðald-
anna skuli nú gefin við allar kaþólskar
mentastofnanir í sönnum kaþólskum
anda. Allir kennarar, sem fylgja hin-
um nýja tíðaranda, verða að fjarlægj-
ast frá kaþólskum kennaraskólum og
prestaskólum. Biskupar og allir útsend-
arar hins heilaga stóls eiga að gæta
þess, að prestarnir og hinir trúuðu
ekki komist undir áhrif nútíðar-blað-
anna. í hvert stifti á að setja á stofn
ritdómanefnd (Censurcollegium), sem
á að prófa allar kaþólskar bækur og
rit, áður en þau verða prentuð. Prest-
unum er bannað að halda ráðstefnur,
nema í sérstökum tilfellum. Eftirlíts-
nefnd í hvert skifti á að vaka yfir,
að engin nútíðarvilla nái útbreiðslu.«
Blaðið »Köbenhavn« segir: