Frækorn


Frækorn - 29.11.1907, Blaðsíða 7

Frækorn - 29.11.1907, Blaðsíða 7
FRÆKORN 371 Biblíurannsókn. 7. Lexia. Hinn komandi heimur. 1. Hvert er hið núverandi ástand allra skepna? Róm.8, 22. 2. Nær þetta einnig til guðs barna? 23- . vers; 2. Kor. 5, 4. 3. Hvað getum vér samt sem áður gjört oss vissa von um? Róm. 8, 18. Hvers vegna? , 16. 17. vers. 4. Hvernig erutn vér frelsaðir? Róm. 8, 24. Hvað kallast þessi von? Hvar er hún fest? Hebr. 6, 19. 20. 5. A hverjn byggjum vér von vora? Hebr. 6, 17. 18. 6. Hvað loforð var ALram gefið? 1 Mós. 13,14-16; Róm. 4,13. Hvað er Abraham nefnd- ur?'Róm. 4, 11. Hvers vænti hann? Hebr. 11, j 10. 7. Hverjir eiga htuttöku í fyrirheiti því, sem Abraham var gefið? Matt. 5, 5. Gal. 3, 29. 8. Hvað hefir guð til reitt erfingjum fyrir- heitisins? Hebr. 11, 16. 9. Hvað er von kristinna manna bundin við? Pgb. 26, 6-8. 10. Hvaða stór viðburður skeður í sambandi við þetta? 1. Tess. 4, 16. 17. Fil. 3, 20. 11. Áhvern eigum vér þá að vona? 12. Hverju er mönnunum lofað? Hebr. 2, 5-8. Dan. 7, 26. 27. 13. Hver er þessi arfur, sem guðs börnum er lofað? Opinb. 21, 1. Hver verður höfuð- borg þar? 2. vers. Ez. 48, 35. 14. Hvernig mun þeim líða innbyggendum hinnar nýju jarðar? F.s. 33, 24, 35, 10; Opinb. 21, 4- 15. Hverjir munu fá að njóta allra gæða hinnar nýju jarðar? Opinb. 22, 14. Bðrnskgar bugmyndir. Eg var nú kominn hátt á sjötta árið, og farinn að hugsa um guð og náttúruna. Eftir mikla íhugun og rannsókn komst eg að þeirri niðurstöðu, er nú skal greina: Jörðin er f laginu eins og kringlótt kaka. Hún flýtur ofan á sjónum. Himininn, sem er úr gleri, hvelfist yfir jörðina, og nær niður að sjónum alt í kring. Stjörnurn- ar^eru fastar í glerhimninum; sömuleiðis sólin og tunglið. Hver stjarna er á stærð við títuprjónshöfuð. Tunglið er á stærð við lummu. Sólin er álíka stór og pönnu- kaka, nema hvað hún er dálítið þykkri. Ofan á glerhimninum, sem eg sé, hvíla mikil og djúp vötn. Þess vegna þarf ekki nema dálitla sprungu í glerið, til þess að rigning komi. En brotui heill gluggb þá kemur syndaflóðið, svo eg drukna, Lálli og Imba,Jöknll og kisa líka, nema því aðeins, að við gæfutn forðað okkur inn í bæinn, eins og hann Nói, sem hljóp inn í örkina sínat Fyrir ofan vötnin, sem hvíla á gler- himninum, er annar himinn, bjartur og fagur. Þar er góður guð. F*ar eru fallegir englar, með mjall’.ivfta vængi. Rangað fá góðu börnin að koma, þegar þau deyja. Rar fá þau að leika sér allan daginn úti á- túninu innan um sóleyjar*og önnur falleg blóm. Eg er hálfhræddur við Ijóta karlinn, sem er undir jörðinni. Hann getur reynd- ar ekki tekið góðu börnin, en vondu börnin tekur hann. Aldrei skal eg tala Ijótt, aldrei skal eg skrökva, svo Ijóti karlinn geti ekki náð í mig. Altaf skal eg vera gott og hlýðið barn, svo eg fái að koma til guðs og góðu englanna. (Úr barnabókinni Bernskan cftir S. S.) F R É T T 1 R. Símskeyti til Frœkorna frá R. R. Khöfn 21. nóv Hákon konungur farinn til Englands. Var í heimsókn í dag í Fredensborg. Ástandið í Portúgal talið ískyggilegt. Lýðveldisflokkurinn eflist afarmikið. Margir menn settir í varðhald. Kliöf í 26. uóv. Henrik Klausen, norski leikarinn, er andaður. f-ýzka stjórnin hefur lagt fyrir Ríkisdaginn lögin um félög og samkomur, en eftir þeim verðtir þýzka að talast á öllum opinberum samkomum, nema sérstök undanþága sé veitt af yfirvöldum. Ásfandið í Portúgal enn ískyggilegt. Lýðveldismönnum fjölgar. / Karatog (sbr. símskeyti áður) fórust 4000 menn, en 200 var bjargað. Hraðlest féll í gær niður af brú yfir Canes-fljótið, milli Barcelóna og Valencía. 20 lík eru fnndin þar, en 80 sárir.

x

Frækorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.