Frækorn - 30.04.1908, Page 5

Frækorn - 30.04.1908, Page 5
FRÆKORN 77 Ráðþrota fór eg leiðar rninnar og sagði við sjálfa mig: »Eg vissi, að það yrði gagnslaust.« Daginn eftir fór eg aftur til hans og hélt því áfram daglega í hálfan mánuð, en hann var vanþakklátari en hundur. Eg sagði því við sjálfa mig: »Eg er ekki að þessu lengur.« Þegar eg afklæddi litlu dreng- ina mína það sama kveld, þá bað eg ekki fyrir námumannin- um, eins og eg var vön. Karl litli . tók eftir því og sagði: »Mamma, þú baðst ekki fyrir slæma manninum.« »Nei,« svaraði eg og stundi við. »Mamma, ertu búin að sleppa af honum hendinni«? »Já, það held eg.« »Mamma, er guð búinn að sleppaaf honum hendinni? Ættir þú að sleppa af honum hendinnni, mamma, fyr en guð gjörir það? Eg gat ekki sofið um nóttina. Maðurinn var aðframkominn — og svona guðlaus — enginn skifti sér af honum. Eg fór á fætur, gekk á afvikinn stað til að biðjast fyrir. En um leið og eg kraup á knén, gagn- tók mig sú tiifinning, að hugur fylgdi litt máli hjá mér, er eg var að biðja. Mig vantaði trú og mig vantaði í rauninni að mestu leyti hina réttu umönnun — fann aðeins til hennar. Hví- lík hneisa. Trúboðsákafinn í mér var ekki annað en uppgerð; eg féll á grúfu og kallaði: ‘Drottinn minn, Jesús Kristur, láttu því aðeins bregða fyrir í huga inínum, hvers virði manns- sálin er.« Lesari góður, hefir þú nokkurn tima beðið þannig af öllu hjarta? Ojörðu það ekki, nema þú sért fús til að afsala þér makindum og eigingjörnum skemtunum, því að lífið kemur þér alt öðruvísi fyrir sjónir eftir slíka opinberun. Eg var á bæn á hnjánum, þangað til krossinn á Golgatha stóð mér lifandi fyrir hugskots- sjónum. Eg get eigi lýst þeirri stund. Hún kom og leið. En þá nótt lærði eg það, sem eg hafði eigi vitað áður, það er að segja, hvað barátta er fyrir mann- lega sál. Eg þekti Jesúm betur enn áður. Eg var þarna, þaugað til hann bænheyrði mig. Pá er eg kom aftur til her- bergis míns, spurði maðurinn minn: »Hvernig líður námu- manninum þínum.« »Hannverð- ur frelsaður.« »Hvernig veizt þú það?« »Drottinn frelsar hann, og eg veit ekki, hvort eg á nokk- urn þátt í því,« svaraði eg. Frh. Snarráður bestur. Nýlega ætluðu tvær unglings- stúlkur í Vesturheimi að tví- menna yfir á, en hesturinn hnaut um stein, og þær duttu báðar af baki ofan í ána. Hvorug stúlkan kunni sund, og þær voru því báðar hætt komnar að drukkna, er hesturinn, sem var mesta eftirlætisgoð og vitskepna, synti til þeirra, eins og hann vissi, í hvaða hættu þær voru staddar. Hann synti svo hvað eftir annað hringinn í kring um þær, þangað til önnur þeirra náði í taglið á honum; til allr- ar hamingju náði hún svo í hárið á systur sinni, og hesturinn dró þær báðar til lands. Heimilisfólkið vissi ekkert um þetta, fyr en hesturinn kom heim og hneggjaði, eins og hann væri í vandræðum. Eigandi hans, faðir stúlknanna, fór þá út. Undireins og hesturinn sá hann, brokkaði hann af stað; en er hann varð þess vís, að húsbóndi hans kom ekki, sneri hann' við og hneggjaði aftur og rauk svo af stað eins og áður. Þá datt manninum í hug, að eitthvað væri að, og þaut hann því af stað á eftir hestinum, og mætti nú báðum stúlkunum, er voru komnar á leiðina heim. Hesturinn fór til þeirra og nugg- aði snoppunni upp við þær, eins og til að sýna, hvað honum þætti vænt um að finna þær á lífi. Aður hafði faðir þeirra altaf verið að ráðgera að selja þennan hest, af því að honum þótti ekkert varið í hann; en nú kvað hann ekki vilja selja hann fyrir neitt, og þegar klárinn fe lur frá, þá kvað eiga að gjöra honutn legstein í minningu þ ss, að hann bjargaði stúlkunun’. Fetold. ErSendar fréttir. 313 lúthmkir prcstar og prófessorar meðal Norð- manna í Ameríku hata nýlega sent lúthersmönnum í Noregi ávarp, þar sem þeir lýsa því yfir, að »þeir með sorg hafa tekið eftir, hvernig grundvelli kirkjunnar, heilagri ritningu og þar með grundvallarsannleika kristindóms- ins, svo sem kenriingunni um guðdóm Krists, getnað Krists af

x

Frækorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.