Frækorn - 27.01.1909, Page 7
FRÆKORN
7
Og þegar þú hlýtur þá hamingjustund,
að hér þekkist vínbölið eigi,
mun heimurinn stara' á þig, stórfrœga grund,
sem stjörnu í byrjanda degi.
— Og eigir þú kyngöfgis-orðstir að ná,
og afbragð með þjóðunum vera,
hvort munn’ ekki niðjarnir þakka oss þá,
og þvi, sem vér reyndum að gera?
IV.
Cinsörtgur, karlmannsrödd.
Sannleikans uð hefir veitt oss að verki,
vald hans og afl hefir fylgt þessu merki.
Vera hans eilífðar-einkennin ber,
alt mun það sigra, sem helgar hann sér.
Trúin er voldug. — Þann veika hún styður,
veg fram til guðs sins hún andanum ryður;
kveikjandi eld, þar sem krafta er fált,
kallandi' af himni hinn sigranda mátt.
V.
Jíiðurlags-san söngur.
Þú litla þjóð, sem stundar mikið starf,
ver sterk og örugg, hátt þitt enni ber!
Þú veist það sjálf svo vel, hvað gera þarf
og veist, hve margt i köldum rústum er.
Og þegar sveit vor atdarfjórðungs arf
til eignarhalds og vaxta felur þér
þá mundu vel, að verðmœtt er það pund
og var að safnast marga þunga stund.
25 ára afmæli Goodtcmplara-
reglunnar á íslandi.
10 þ. m. mintust Good-
templarar í Reykjavík 25 ára af-
mælis reglunnar. — Gengu þeir
í skrúðgöngu frá Goodtemplara-
húsinu kl. 2 e. h. um allar aðal-
götur bæjarins, og voru horn-
leikar í fararbroddi. — Báru
templarar fána, og voru skrýdd-
ir einkennum sínum. — Námu
þeir síðan staðar hjá dómkirkj-
unni, og hófst guðþjónustugjörð
kl. 3 e. h. — Sté Haraldur
prestaskólakennari Nílsson í stól-
inn, og talaði um Goodtemplar-
regluna, og starfsemi hennar hér
á landi síðastl. 25 ár. — Templ-
arar höfðu og boðið ýmsum
bæjarbúum, að vera við guð-
þjónustugjörðina, og var dóm-
kirkjan alskipuð fólki.
Kl. 6 e. h. heldu Templarar
samkomu í Goodtemplarahús-
inu. — Þar flutti stórtemplar
Rórður J. Thoroddsen ræðu, og
las upp samfagnaðarskeyti, er
borust höfðu frá konungi, ráð-
herra, frá stórstúku Dana, stór-
stúku Svía o. fl. — Fríkirkju-
prestur Ólafur Ólafsson mælti
fyrir minni íslands, én Guðm.
læknir Björnsson fyrir minni
Goodtemplarareglunnar, og á
eftir ræðu hans voru sungin
gullfalleg »hátíðaljóð«, kvæða-
flokkur í 5 köflum, eftir Guðm.
Magnússon, sem birtist á öðr-
um stað í þessu blaði, og hafði
Sigfús Einarsson, söngfræðing-
ur, samið lag við Ijóðin, og
stýrði hann sjálfur söngnum. —
Síðar um kvöldið las Guðm.
skáld Magnússon upp kafla úr
óprentaðri skáldsögu eftir sig, en
Stefán Runólfsson las upp þýdda
sögu, og ungfrú Elín Matthíasar-
dóttir söng nokkur sönglög.
Kl. 10 um kvöldið hófst sam-
sæti á Hótel ísiand, og tóku um
100 manna þátt í því. — Voru
þar ýmsar ræður fiuttar, og
kvæði suigið eftir Guðm. skáld
Guðmjndsson á ísafirði, oghafði
Árna Thorsteinsson samið lag
við það. — Samsætið stóð til
kl. 3 um nóttina.
Skemtun var og haldinn í
Bárubúð, er stóð langt fram á
nótt.
Símskeyti bárust stórstúku Is-
lands frá.mýmörgum félögum
og stúkum.
Hátíð þessi hefir verið haldin
mjög víða um land.
— Goodtemplarar hafa fulla
ástæðu til þess að fagna hinum
mikla sigur, sem þeir hafa unn-
ið á aldarfjórðungi þeim, sem
Reglan hefir átt hértilveru. At-
kvæðagreiðslan 10. sept.’08 sýn-
ir það bezt, að þeir hafa gjör-
breytt skoðun almennings á vín-
nautninni, og nú bíður mikill
meiri hluti þjóðarinnar eftir al-
gerðum bannlögum.