Frækorn - 14.01.1910, Síða 1
IIEIMIUSBIAÖ
með:Mykðum
RITSTJORI: DAVID ÖSTLUND
XI árn Árg. kostar hér á landi 1 kr. 50 au. í
9' Vesturheimi 60 cents. Ojaldd. 1 okt.
Reykjavík 14. jan. 1910.
Auglýsingar 1 kr. 25 au. þumlunginn.
Afgr. Austurstr.17. - Prsm. D. Östlunds
GLEÐíLEOT ÁR!
FEÆIOM
ELLEFTI ÁRGANGUR 1910.
»Frækorn« koma út framvegis
eins og hingaö til.
Stefnan verður óbreytt. Vér höf-
um ekki sózt eftir að tala svo öll-
um líki. Vér höfum á hinum
Iiðnu tíu árum leitast við að halda
fram sannleika heilagrar ritningar
og verja hana gegn árásum vantú-
ar og guðfræðilegrar hálftrúar, leit-
ast við að glæða og styrkja sannan
kristindóm, um leið og vér höfum
reyntað skemta lesendum vorum með
góðum og fræðandi sögum, kvæð-
um, fréttum og ýmsum fróðleik.
Myndir hafa Frækorn flutt langt
um fleiri en nokkurt annað íslenzkt
blað. Einnig sönglög.
Á öllu þessu verður
f! p engin breyting eftirleiðis.
Sú eina bryeting, sem
vér viljum leitast við að
gjöra á blaðinu fram-
veigis, er að gjöra það
enn betur úr garði í
öllu tilliti.
Útkomu blaðsins verður
hagað þannig, að blaðið
kemur út um miðjan
og lok hvers mánaðar,
en um sumartímann kem-
ur það nokkrum sinn-
um tvöfalt.
Oss er óhætt að lofa
því, að ekkert skuli
vanrækt af því, sem
mögulegt er að gjöra,
af vorri hálfu, til þess
að blaðið framvegis eins
og liingað til hafi hylli
lesenda sinna og nái
enn meiri útbreiðslu.
Ritgjörðum og góðum sögum er
oss ætíð ánægja að geta veitt við-
töku í blaðið, enda þótt blaðið
vegna ódýrleika síns geti ekki greitt
ritlaun fyrir.
Blaðið hefir ekki verið borgað
eins og skyldi. Þó hafa margir
verið skilvísir að borga og margir
lagt mikla rækt viö útsölu blaðsins.