Frækorn - 15.04.1910, Page 6

Frækorn - 15.04.1910, Page 6
46 F R Æ K OrR N »Já — rétt er það! Nú man eg það!« svaraði biskupinn, »en þetta var heimskulegt spaug hjá mér, og nú iðrar mig þess«. »Gott eða lélegt spaug, það gildir einu, og breytir eigi þeirri sannreynd, aðfyr- verandi páfi vorvarmjög vínhneigð- ur. Hver einn einasti Kanada-prest- ur, sem verið hefir í Rdm, stað- festir þann sannleika.« Og hverju svaraði Prince’1 biskup um það?« spurði Brassard. Nákvæmlega eins og þegar eg spurði hann um Maríu mey, hann sleit samtalinu f skyndi, leitáklukk- una, og sagði, að hann yrði að fara á samkomu«. Skömmu eftir þetta samtal um kirkjufeðurna stjórnaði guð því þann- ig, að kaþólska trúinmínvarðgegn- umstungin af nýrri ör. Mér var boðið að koma til Varennes og halda þar prófræður. Að kvöldi annars dags, þegar eg hafði prédikað og heyrtleyniskrifta- mál allan síðari hluta dagsins, varð eg samferða prestinum heimleiðis, og mætti á veginumfátækum manni; hinn aumlegi tötrabúningur hans og bleiku, titrandi varir settu innsigli grafarinnar á útlit hans; ástand hans virtistvera hið allra aumasta. Lotn- ingarlaust tók hann ofan og sagði við Primeau með titrandi rödd: »Þér vitið, að veslings konan mín dó og var grafin fyrir tíu dögun. En þar eð eg var of fátækur tilað eg gæti keyptsálumessuhandahenni óttast eg, að hún sé í hreinsunar- eldinum, því eg sé hana réttáhverri nóttu í logandi báli; hún kallar á mig sér til hjálpar, og hún biður mig að sjá um, að það verðisung- in messa til frelsunar sálu hennar, og nú vildi eg biðja sálusorgarann að gjöra svo vel og lesa messu fyr- irsálu hennar«. Presturinn svaraði: «Auðvitað er konan yðar í logum hreinsunareldsins og þolir mestu kvalir, sem einungis verða linaðar við messufórn. Gefið mér fimm doliara, þá skal eg syngja messu fyrir hana i fyrramálið.« »Þér vitið vel, herrakirkjuhirðir«, svaraði maðurinn með auðmjúkri röddu, að bæði eg og konan mín höfum verið veik mestan hluta ársins, og sökum fátæktar get eg ekki borgað fimm doIlara«. »Get- irðu ekki borgað, færðu enga sálu- messu sungna. Þú veizt, að það er reglan. Það stendur ekki í mínu valdi aðgjöranokkra undantekningu frá henni.« Þessi orð voru töluð með hárri og drembilegri rödd, og voru algerlega gagnstæð auðmjúkri framgöngu fátæka mannsins og neyð hans og vandræðum. Migtókþetta mjög sárt, og eg vorkendi mannin- um. Eg vissi, að presturinn átti mörg þúsund krónur á bankanum og þjónaði auðugasta söfnuði Kan- ada. Fyrst vonaði eg,að hannsyngi messuna fyrir manninn, án þess að nefna borgun, en mér skjátlaðist. Mín fyrsta hugsun var að stinga hendinni niður í vasann og taka upp fimm dollara handa fátæka manninum, til þess hann geti öðlast rófyrir konunni sinni sáluðu. Mig langaði líka til að segja honum, að eg vildi lesa m^ssuna fyrir ekkert handa honum, en eg hafði ekki uppburði í mér til þess, því eg óttaðist fyrir að særa prestinn, sem var eldri en eg, og eg hafði ætið borið mikla virðingu fyrir honum, enda hefði hann tekið það sem móðgun. Eg stóð og blygðaðist mín fyrir hugleysi mitt. Sálusorgarinn sagði við veslings mauninn: »Það er konan þín, en ekki mín; það er þítt, en ekki mitt, að reyna að fá hana úr hreinsunareldinum.« Hann snéri sér til mín og sagði meðsér- stakri kurteisi: »Nú förum við heim og fáum okkur te!« Veslings fátæki maðurinn hóf titrandi rödd sína, um leið og hann sagði: Eg get ekki vitað af veslings konurni minni í hreinsunareldinum! Ef þér getið ekki sungið hámessu, þá lesið þó fimm lágar messur.« Presturinn snéri sér að honum og sagði: »Já, eg skal lesa fimm messur, en gefðu mér þá fimm shilling; þú veizt, að verðið er einn shilling fyrir messuna.« Fátæklingurinn svaraði: »Eg hef jafnlítið einn dollar, sem fimm; ég á ekki eitt einasta cent, og aumingja börnin mín þrjú eru svöng og eins tötraleg og eg.« »Gott og vel,« sagði presturinn, í morgun gekk eg um heima hjá þér og sá tvo fallega smágrísi; láttu mig fá annan, þá skal eg lesa fimrn messur.« Hannsagði: »Brjóstgóðurnágranni gaf mér þá, til þess að egkomandi vetur hefði eitthvað handa börnum mínum að lifa á, svo við ekki svelt- um í hel.« Mér var ómögulegt að hlusta leng- ur á þessa undarlegu kaupverzlun. Eg flýtti mér fráverzlunarmanninum og gekk til herbergis míns, Iokaði dyrunum, féll á kné og grét. Að liðnum fjórðungi stundarbarði prest- urinnn að dyrum og sagi: »Teið er tilbúið, gerið svo vel að komaU Eg svaraði: Eg er Iasinn og þarf að hvílast. Fyrirgefið, að eg get ekkert þegið í kvöld.« Stundir næturinnar voru langar og dimmar, og auðvitað flýði mig svefninn. »Guð minn! guð minn!« hrópaði eg þúsund sinnum,« erþað mögulegt, að þvílíkar svívirðingar, er eg hefi séð í dag, viðgangast í kirkjunni minni kæru? Dýrmæti, til- beiðsluverði frelsari: Værir þú enn- þáá jörðunni og sæir einaaf ísraels dætrum fallaí brennandi ofn, niundir þú krefjast fimm shilling fyrir að frelsa hana? Ætli að þú þvingaðir þenna fátæka föður til að taka hinn síðasta brauðbitafrá hungruðum börn1 unum sínum til þess að fá þig til að slökkva logandi bálið? Þú hefir úthelt síðasta blóðdropa þínum henni til frelsunar! O, hversu grimmir og harðbrjósta vér prestarnir erum gagn- vart frelsun þessara sálna! En — erum vér í sannleika þínir prestar? Er það ekki háðung, að vér nefnum oss þína presta, þegar vér ekkert, ekkert viljum leggja í sölurnar til að frelsa eina sál? Hvaða heimild höfum vér til að hrúga saman pen- ingum frá veslings börnunum þín- um, fyrir að frelsa þá úr hreinsun- areldinum? Segja ekki postularþínir, að aðeins þitt dýrmæta blóð og ekkert annað geti heinsað ogfrelsað sálir?« »Er það mögulegt, að til sé því- líkt eldfangelsi, sem hvorki þú, kæri herra Jesús, eða posular þínir segja eitt einasta orð um?«

x

Frækorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.