Frækorn - 15.07.1910, Qupperneq 4
76
F R Æ K O R N
sönn. í 2. Mós. 2, 8. stendur
skrifað: >Minstu að halda hvíld-
ardaginn heilagan«. Og enn-
fremur: >Sex daga skaltu erfiða
og vinna alla vinnu þína, en
sjöundi dagurinn er hvíldardagur
drottins guðs þíns.« Hvergi í
allri biblíunni er boðiö að halda
nokkurn annan dag, og þar af
leiðandi hljótum vér að hafna
slíkri kaþólskri siðvenju, sem
spnnudagshaldið er, sem manna-
boðorði.
Guð hjálpi öllum trúuðum til
að skilja þetta mikilsvarðandi mál-
efni, áður en það verður of seint.
Kæru bræður og sysíur,. hlýðum
sannleika drottins, og berjumst
fyrir þá trú, sem heilögum hefir
einu sinni verið kend.
Eg er og verð yðar félags-
bróðir í baráttunni fyrir Iífsins
kórónu. E. L.
Sigurbjörn Sveinsson.
»höfundur barnanna«, sem vér hér
flytjum mynd af, er fæddur 19. okt
1878 á Kóngsgarði, austarlega í
Húnavatnssýslu. For-
eldrar hans, Sveinn Sig-
valdason og Sigríður
Þórðardóttir, bjuggu
þarþá. Skömmu síðar
fluttust þau meðbörnin
norður í Skagafjörð.
Olst Sigurbjörn upp á
ýmsurn bæjum, bæði í
Gönguskörðum og á
Reykiaströnd, þangað
til árið 1887. Þá dó
faðir hans, en ekkjan
var flutt með tvö yngstu
börniná sveitina, vestur
í Víðidal. Fékk hún að
hafa Sigurbjörn hjá sér,
með því að hann var
yngsturbarnanna. Mun
hún snemmahafa vakið
lotningu hjá syni sfn-
um fyrir kristindómn-
um, eins og sjá má af
kvæði því, er hann orti
til hennar síðar.
»Á trúarinnar Ijósbraut
þú mig leiddir,
svo Ijúft til himins oft
þú bentir mér,
með fögrum tárumfyrir
mér þú beiddir,
mitt fyrsta bænarkvak
eg lærði af þér,«
segir hann til móður sinnar í kvæði
þssu.
Til Reykjavíkur fór hann 15 ára
gamall, og nam skósmíði hjá Rafni
Sigurðsyni, en fór í kaupavinnu
norður í land á sunirin.
Þástundaði hann nokkurárbarna-
kenslu í Bolungarvík, ísafirði og
víðar.
Árið 1901 kvæntist hann Hólm-
fríði Hermannsdóttur frá Brekku í
Reykjavík, fór skömmu síðarnorður
til Akureyrar og stundaði þar iðn
sina nokkur ár.
Árið 1908 fluttust þau hjón me?
tveimur dætrum sínum til Reykja-
víkur og hefir Sigurbjörn verið kenn
ari hér við barnaskólann síðan.
Þessi rit hafa komið út eftir hann
Nokkur kvæði.
Bernskan. I—11.
Þrjú æfintýri.
Engilbörnin (myndskreytt barna-
saga, sem verið er að prenta.)
Það, setn sést hefir eftir Sigur-
björn Sveinsson, er alt gott og göf-
ugí og vel vandað að öllu leyti.
Og eitt er viðrithöfundarmensku
hans, sem mikið er um vert. Hann
k«nn að rita fyrir börn. Sú »náðar-
gjöf« er meiri en margur ætlar.
Robert Koch dáinn.
Heimsins frægasti bakteríufræð-
itigur er dáinn. Hann var fæddur
1843 í Hannover á Þýskalandi.
1882 náði hann frægð sinni með
uppgötvun berklaveikis-bakteríunnar.
1883 fann hann kólerubakteríuna,
og veitti þýzka ríkið honum 100,000
mörk (89,000 kr.)
1890 var alment haldið, að hann
hefði fundið ráð við berklaveiki; og
nefndi hann það »tuberkulín«. En
þetla sýndi sig ekki megna það, sem
haldið var.
1903 hélt Koch fram, að -berkla
veiki flittist alls ekki frá kúm til
manna og að því væri engin hætta
innifalin í því að nota mjólk frá
SIGURBJÖRN SVFJNSSON.