Frækorn - 15.07.1910, Blaðsíða 8
80
F R Æ K O R N
Dr. phil. Mollerup
er uppvís orðinn að stórsvikum
við Frederiks-borgarsafnið í Dan-
mörku, sem hann stjórnaði: Flann
hefir dregð sér um 60,000 kr. af
því fé, sem Carlsberg-sjóðurinn hef-
ir látið til safnsins.
Cook
heimskautsfari heimtar lögtak á
eignum Pearys fyrir 40,000 marka
skuld, sem hann þykist eiga hjá
honum fyrir bjarnarfeldi o. fl.
í Portugal
eru óeirðir miklar. Konungur-
inn Manuel í þann veginn að segja
af sér.
J. C. Christensen
er nú sýknaður af rikisrétti Dana,
en Sigurd Berg dæmdur í 1000 kr.
sekt til ríkissjóðs eða til vara 60
daga fangelsi.
Guilkranz
sendu »De danske Erhverv« til
kistu Játvarðar Englakonungs. Á
bls. 77 er mynd af kranzinum.
Frestun bannlaganna
er vera að taia um að reyna
að fá samþykta á næsta þingi — af
því að landssjóður þarfnast pening-
anna, sem áfengistollurinn gefur.
Það lætur illa í eyrum: aðlands-
menn skuli þjóna Bakkusi til þess
aðfápeningaí sjóðinn. Það minn-
ir á kenningu Páls Ólafssonar:
»Landið græðir mest á mér,
mest eg drekk á nótt og degi.« —
En ætli það verði ekki langt þang-
að til landið hefir grætt nóg?
Og verst er það, ef ráðherrann
vill ekki sporna við þessari óhæfu.
Læknispróf
hafa lokið í þessum mánuði við
læknaskólann hér Hinrik Erlendsson
(II betri eink.) og Magnús Júlíusson
(I eink).
Þingeyraklausturs-umboðið
var veitt 29. júni Birni Sigfússyni
alþm. á Kornsá.
Sundlaugarnar.
Þar er nú komið hreint vatn í
stað þvottaskolpsins, sem áður var.
Þangað er nú ágætt að fara.
Eljan
strandaði í fyrra dag nál. Reykjar-
firði.
Kvistir
heitir ný kvæðabók, sem »Frækorn-
um« hefir verið send til umtals.
HöferSig. Júl.Jóhannesson. Hennar
verður frekar getið í næsta tbl.
Prestvígðir
voru hér 26. þ. m. Bjarni Jóns-
son frá Mýrarholti (2. prestur við
dómkirkjusöfnuðinn í Reykjavík), og
Brynjólfur Magnússon (til prests að
Stað í Grindavík).
Horfni bankastjórinn
við ísl. bankaá Akureyri, Fr. Kristj-
jánsson, kvað vera kominn til Ame-
ríku. Hann dvaldi áAkureyri íleyni
alt að því mánuð eftir að hann var
sagður farinn. Hann fór klæddur
í kvenmannsbúning.
Biskipsvigslan á Hólum.
Þórh. Bjarnarson biskup lagði í
dag af stað með Vestu norður.
Peningar fundnir á götu.
Ritstjóri ávísar.
Fyrirlestur i Síióam sd. kl. 6'/2 síðd.
D. Östlund.
‘Jrímevkv fexúímJi
kaupir hærra verði en áður Inger
Östlund, Austurstræti 17, Reykja-
vík. Sendið henni frímerki yðar.
Hún sendir yður tafarlaust pen-
inga í pósti aftur.
Húsaleigu-samningaeyðublöð
til sölu hjá D.Östlund,Austurstr. 17.
PRENTSMIÐJA D. ÖSTLUNDS
Austurst ræti 17, Reykjavík,
leysir af hendi allskonar prentun
svo seni
Sönglög,
Bækur,
Blöð,
Ritlinga,
Brúðkaupsljóð,
Erfiljóð,
Heillaóskakort,
Bréfhausa og Umslög,
Reikninga,
Kvittana-eyðublöð,
Götuauglýsingar,
Kranzborða o. m. fl.
Alt verk vandað, en þó mjög ódýrt,