Frækorn - 31.07.1910, Side 2

Frækorn - 31.07.1910, Side 2
90 FRÆKORN af öl!um sænskum karlmönnum og konum á nefndu aldursskeiði, sem eru með banninu; en hver heilvita maður sér það, að fjærri fer því, að allir, er ekki greiddu atkvæði, séu móti banninu. — Séu mótatkvæðin, 16,471, miðuð v'ð fjölda fullorðinna manna og kvenna, þá verða and- stæðingar bannlaganna ekki fult 5 á hverju þúsundi manni. IJað bannlagafyrirkomulag, sem í atkvæðagreiðslunni er farið fram á, er ekki greinilega til tekið, en þó eru orðin talsvert víðtæk. Yfirlýsingin, sem menn greiddu atkvæði með, er svo hijóðandi: »Við undirrituð, menn og konur í Svíaríki, sem skilja þá hættu, er áfengir drykkjir hafa í för með sér fyrir þjóðarheilsuna og þjóðfélags- framfarirnar, lýsum hér með yfir þvr, að við teljum tíma til kominn til þess að byrja nú me.ð að lög- leiða algjört (fullstánJigt) og varan- legt áfengisbann.« Mótatkvæðin votu undir svolát- andi yfirlýsingu: »Undirrituð, sem hafa átt kost á að taka þátt í þessari atkvæðagreiðslu, lýsum því hér tneð yfir, að við getum ekki fylgt hugmyndinni um varanlegt áfengisbann í Iandi voru.< Atkvæðagreiðsla þessi ætti að geta sannfært alla um það, að það eru ekki skrælingaþjóðirnar, sem á vorum tí.na eru að vinna að áfeng- isbannlögum. Líkast til verður ekki Svíþjóð fremur talin skrælingjaþjóð hjá andbanningum íslands fyrir þessa atkvæðagreiðslu. En gott væri, ef þeir, sem »leiða sjálfa sig«, gætu farið að skilja ofurlítið betur hið stórkostlega bindindis- og siðbóta- starf, sem er nú víðsvegar um heim- inn að vinna sigur með samþykt og framfylgd áfengisbannlaga. Banniagareynsla í Sviaríki. Eins og menn muna, var æði- mikið verkfall í Svíaríki í ágústmán- uði í fyrra. í borgun og kaupstöðum var áfetigissala bönnuð, nteðan á verk- fallinu stóð. Opinberar skýrslur frá þeim tíma sýna, að bót var að þessari ráðstöfun. í öllu Svíaríki sparaðist vegna þessa banns ekki minni upphæð ett 12,000,000 krónur. Árið 1908 voru í ágústmánuði 5,612 manns handsamaðir vegna drykkjuskapar, en árið 1909 voru í ágústmánuði aðeins 1,244 handsam- aðir. Það eru 4,368 færri í þeim mán., þegar bannið var gegn áfeng- issölunni. — Þessar staðreyndir hafa haft mjög mikil áhrif á Svía til stuðnings bannlaga-hugmyndinni. Bardagaaðferð „lngó!fs“. Blaðalesendur hér hjá oss hafa tekið eftir því, hvernig einn vín- salihn í Reykjavík hefir haft gaman af því að nefna sem oftast guðs nafn í sambandi við eiturvökva sína. »Frækorn« hafa bent á það við og við. Nú í seinni tíð hefir — að því oss er frekast kunuugt — lagt þennan ljóta vana niður, og> er það honuin til sónia. Eit nú fer blað þeirra rnanna, er hér ltafa verið talsmennn vínsins og »hóflegrar nautnar þess, og um leið stækt á móti bannlögunum nýju, að grípa til þess óyndis- úrræðis að leggja guðs nafn við hégóma. Efnr að Halldór Jónsson bankagjaldkeri hafði ntjög svo ræki- lega bent á það í Lögréttu, að mót- þróinn gegn banniögunutn mundi í rauninni eiga rót sína að rekja til eigingirni, að vínelskendurnir viidu sjálfir njóta, en gleymdu með- bræðrum sínutn og þeirra freisting- um —, þá grípur »Ingólfur« 21. þ. m. til þess bragðs að reyna að velta öllum þessum röksemdum fyrir borð með ofurlitlu háði gegn hr. Halldóri Jónssyni. Eins og það væri ekki sjálfsagt að eigna honum alla sjálfselskuna og eigin- girnina, sem liggurundir hjá drykkju- mönnunum! Hann, sent alls ekki er drykkjumaður, ætti að geta borið byrðina svomikið betur (!) Og svo til að gera þetta alt fallegt (!) og bragðgott fer blaðið að fara með blessunarorðin í háði og með svo mikilli léttúð, að eng- inn alvarlegur kristinn maður getur attnað en hneykslast á slíku. — Og þótt blaðið biðji »kristna menn að hneykslast ekki« á þessu, þá tekur það ekki burtu skömmina á nokk- urn hátt. Slíkt er svívirðing. Menn geta alls ekki verið óhultir með að láta börn sín lesa annað eins og þessar háðglósur »lngólfs«. Þær eru áreiðanlega siðspillandi. Eitt datt oss í hug, er vér sáutn þessar »röksetndir« and- banninganna: Slíkt sæmir þó bezt málefninu, enda ætti fólk að sjá það. Guð- níð og drykkjuslark fylgjast bróð- urlega »á breiða veginum«. Og það væri ekki gagnslaust, ef al- menningur færi að sjá, að málstað- ur »lngólfs« sé samboðinn slíkum »málgögnum«, sem hann leggur fram 21. þ. m. Þá snúa vonandi einverjir baki við honum og öllu hans athæfi. ,, Næringargildi áfengis“. »Reykjavík« gjörði mikinn hvell um það hérna um árið út af því, að franskur vísindamaðttr, Duclaux, hafði rannsakað áfengi í tilliti til næringarefna, ogfundið út, að áfengi væri áreiðanlega nærandi. Duclaux var ekki upphafsmaður þessarar kenningar, heldur amerískur fræðimaður að nafni Atwater, erbirti fyrir nokkrum árum árangur af rann- sóknum, sem hann kvaðst hafagert viðvíkjandi áhrifum áfengis á líkama mannsins og kvaðst hafa sannað að áfengi gerði sama gagn og eggja- hvíta, væri fitandi, gæfi líkamanum byggingarefni. Út af þessu gerðu brennivínsmenn hvellmikinn ogálitu að nú hefðu þeir stungið bindind- ishreyfingunni svefnþorn. Ducleaux, vísindamaður við Pasteur-stofnunina í París, gleypir svo kenningu Atwaters og fer að halda henni fram sem vísindalegri staðreynd, og ginu svo mótstöðublöð bindindisins víðsvegar um heim yfir þessu eins og vargar

x

Frækorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.