Frækorn - 31.07.1910, Blaðsíða 6

Frækorn - 31.07.1910, Blaðsíða 6
94 F R Æ K O R N Myrkur og Ijós. Nero Rómverjakeisariog upphaf ofsóknanna gegn kristnum mönnum. Það sögurit nýja-testamentisins, sem nær lengst, er Postulanna gjörn- ingabók. Og þótt sumt í þeirri bók sé skráð um ofsóknirnar gegn kristnum mönnum á fyrstu öld kristninnar, þá nær það, sem hún segir frá, eiginlega ekki út fyrir Oyðingaþjóðina, þar sem það voru kristnir menn, sem af gyðingum voru ofsóltir, og það voru gyðingar sem ofsóttu. En þar, sem saga Postulanna gjörninga endar, skiljum vér við einhvern allra merkasta tnann í allri kirkjusögunni, sem verður að þoia ofsóknir af Rómverjum og loks gefa sitt líf fyrir trú sína. Nafn þess manns er hinn mikli heiðingja trúboði, Páll postuli, og sagan um ofsóknina rómversku gegu honum er aðeins upphaf á hinni hræði- legu sögu, píslarvottasögunni. Vér munum eftir að Páll sjálfur undir málarekstrinum gegn sér i Oyðingalandi skaut máli sínu til keisarans, og það vegna þess, að hann var rómverskur borgari. Et til vill hefir hann gjört það, af því að hann hafi álitið, að hann þá yrði sýknaður, þótt það færi á alt annan veg. Hver var þá þessi keisari, sem Páll skaut máli sínu til? Það var hinn rómverski keisari Nero, og það er hans saga, sem vér því vilj- um drepa stuttlega á. Nero var barn siimar tíðar eins og hver annar maður. Og víst er um það, að hafi nokkur tími í veraldarsögunni verið spillingarinnar tími, þá var það sá tími. Það þarf ekki annað til að sanna þetta en að benda á það að menr. eins og t. d. Caligula og Nero voru haldnir guðir og fórnir voru færðar til þeirra. Þegar heiit ríki eins og hið vold- uga rómverska veraldarríki gattign- að og tilbeðíð slíka menn eins og þessa sem guði, sem voru þó sam- safn alls hins ljótasta, sem veraldar- sagan hefir frá að segja, menn sem voru eins og illir andar í manns- líki, sem lifðu í allskonar löstum og viðurstygðum, þá — hlýtur hver maður að sjá, að rotnun þess mannfélags sjálfs var komið á hæsta stig. Nero var auðvitað sorglega spiltur maður, en það fólk, sem ekki átti svo mikinn siðferðislegan þrótt að það gæti gjört enda á þessu lífi og þessari stjórn hans og sett siðferðisgóðan mann í hans stað, það fólk var yfirleitt jafnspilt og sjálfur hann. Nero var ekki af góðum rótum runninn. Faðir hans, Domitius Ahenobarbus, var harður og vond- ur maður, t. d. drap hann einn af þrælum sínum af því að hann vildi ekki drekka sig ölvaðan. Þegar honum var óskað til heilla við fæðingu Neros, er sagt, að hann hafi svarað: »Frá mér og konu minni, Agrippina, getur ekkert ann- að komið en það, sem vont er.« Agrippina varð ekkja, og giftist seinna Claudiusi keisara. Hann átti sjáfur son frá fyrra hjónabandi, og héthann Britannikus. En Agrippina, sem ekkert vildi spara til að koma sínum syni að, fékk Claudius til að gifta Nero dóttur sína, Octaviu, og þegar hún óttaðist, að hann ef til vill niundi vilja bræyta áformum hennar, drap hún hann ineð eitri. Svo lét hún Nero tæla höfuðvörð- inn með gjöfum til að sverja sér hollustueið, en faldi Britannikus þangað til að þingið hafði viður- kent Nero sem keisara. Þetta gerðist árið 54. Nero var þá 17 ára gamall, og stórt var ríkið, sem hann gerðist keisari að; það hafði 120 millíónir þegna. Það getur vel verið, að Nero hafi byrjað stjórn sína með einlæg- um vilja, og það lítur líka út fyrir að hann hafi ekki í fyrstu verið gjörsneyddur öllu góðu. í fyrstu lagði hann mikla áherslu á að bæta úr kjörum þrælanna. Hann elskaði fegurð, skáldskap og hljóðfæraslátt, og stundaði það af alhuga. En snemma yfirseldi hann sig ýmsum löstum. Þannig klæddi hann sig dularklæðum á kveldin, gaf sig út fyrir þræl, fór á veitinga- húsin og svallaði, braut sig inn í kaupmannabúðirnar og rændi þar, barði og særði þá, sem vörðust. Oft komst hann sjálfur í hættu; einu sinni hafði hann óvirt konu aðalsmanns, sem varð svo reiður við hann, að hann sló hann nærri því til bana. Úr því fór hann aldrei einn slíkar ferðir; fylgd hans var tilbúin til að verja hann. Rómverjar tóku samt ekki þetta nærri sér. Þeir héldu, að hann mundi verða betri með aldrinum. Og svo var hann góðgerðasamur við fátæka, og núldur stundum. Sagt er, að einu sinni, er hann skyldi rita undir dauðadóm, hafi hann sagt: »Eg vildi ósk?, að eg gæti ekki skrifað.« En líf hans fór sífelt versnandi. Máltíðir hans stóðu oft yfir frá miðdegi til miðnættis. Hann borð- aði oft svo mikið, að hann varð að kasta upp, og til þess að koma því á stað, kitlaði hann sig stund- um í hálsinum með gásafjöðrum. Og hans ósiðsemi er líka kunn. Þegar sem barn var hann fallinn djúpt í þeirri synd. Konu sína, Octavíu, fyrirleit hann á allar lundir. Fyrir hana var hjónabanbið ein einasta þrautaganga. Nero elskaði ýmsar aðrar konur. Ein af þeim hét Akte og var hún lausgefin ambátt. — Þetta þoldi móðir hans alls ekki; hún setti slranglega ofan í við Nero og var svo óhyggin að lióta hon- um með Britannikusi. Nero fór að verða hræddur. Og þess var ekki langt að bíða, að hann léti drepa Britannikus. Nero sendi boð eftir sömu eiturblöndukonunni, sem hafði drepið Claudius keisara, bað hana um að búa sterkt eitur, sem dræpi fljótlega, og þegar hún var nokkuð óákveðin og talaði um afleiðingarnar af slíku verki, svaraði Nero: »Eg er ekkert hræddur við lögin.« Britannikus fékk eitrið við borðið hjá Nero; hann veiktist undirens, en keisarinn sagði, að það hafi ekkert að segja; það væri aðeins sama veikin, sem Britannikus hafði haft frá barnsbeini. Hann var færð- ur út og dó strax; en borðgleðin hjá Nero var hin sama og áður.

x

Frækorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.