Frækorn - 16.09.1910, Síða 1
IIEIMÍLISBLAD
HEBWWM
RITSTJORI: DAVID OSTLUND
XI. árg.
i Árg. kostar hér á landi 1 kr. 50 au. í i
jVesturheimi 60 cents. Ojaldd. 1 okt. j
Reykjavík 16. sept. 1910.
Auglýsingar 1 kr. 25 au. þumlunginn.
Afgr. Austurstr.17. - Prsm. D. Östlunds
16. tbl.
Alfrjáls í örmum Jesú,
óhætt hans .brjósti hjá,
undir guðs ástarvængjum
öll stiilist hjartans þrá.
Heyrið! liiminljóð engla
hljóma í söng til mín.
Þar skulu guðs börn gleðjast,
guðs dýrðarljómi skín.
Alfrjáls í örmum Jesú
áhyggjum leystur frá
frjáls af freistarans snörum
fær synd ei grandað þá.
Leystur frá ótta og efa
öllum og lífsins sorg,
stutt er tíð stríðs og tára,
stutt heim í Síonsborg.
Jesús, mitt hjartans hæli,
herra, þú dóst fyrir mig;
þú ert mín hjálparhella.
Hugrór eg vona á þig.
Gef þú mér styrk í stríði
stöðugt að hlýða þér,
unz að minn þreyttur andi,
eilífðardagsbrún sér.
Trúarvissa.
Justin píslarvottur var spurður af
hinum rómverska valdsmanni, sem
yfirheyrði hann, hvort hann tryöi
því, að hann mundi komast til him-
ins eftir er hann væri líflátinn. Hann
svariði: »Eg er svo viss um þá
náð, sem Jesús Kristur hefir veitt
mér, að enginn skuggi af efa getur
náð inngöngu í huga minn.*