Frækorn - 16.09.1910, Síða 2

Frækorn - 16.09.1910, Síða 2
122 F R Æ K O R N „Samkvæmt viðteknum hætt.i“ ii. Það er fróðlegt að taka eftir myndun hinna ýmsu trúarlærdóma og siðvenja í kristilegri kirkju. Ungbarnaskírnin og skírnaraðferð kaþólsku og iúthersku kirkjunnar er ekki frá Kristi né frá postulum drottins komin. Nýja testamentið alt er ómótmælan- legur úrskurður um það. En hvaðan er svo þessi skírn komin, sem nú er orðin að »við- teknum hætti«? Vér skulum hér stuttlega vitna í kirkjusöguna, og veljum þá höfunda einungis fyrir heimildarmenn, sem enginn ber brigður á. Hve lengi hélzt hin rétta skírn? Dr. Joh. Lor. von Mosheim, ein- hver lærðasti guðfræðingur 18. ald- arinnar, prófessor og kanzlari við háskólann í Göttingen, þar sem hann dó 1755, segir um skírnina í Inst. historiœ ecclesiasticæ (latneskri kirkju- sögu) um fyrstu öldina: »Skírnin var á þessari öld fram- kvæmd utan samkomuhalds á þeim stöðum, sem þar til voru ákveðnir, og var öllum líkamanum dýft niður í skírnarkerið«. 1. öld, 2. bók, 4. kap., 8. gr. Af þessu sést, að hinir fyrstu kristnu fylgdu nákvæmlega skipun drottins. (Mark. 16, 16; sbr. Pgb. 2, 38. 41; Pgb 8, 12. 38). Á annari öld var sama skírn not- uð, og aðeins þeir menn, sem játuðu sjálfir trú sína á drottin, urðu skírðir. Mosheim segir um 2. öld: »Skírnarsakramentið var veitt tvisvar á ári. . . . Þeir menn, sem átti að skíra, urðu fyrst að lesa trú- arjátninguna og játa syndir sínar og lofa að hafna þeim og sérstak- lega djöflinum og hinum ginnandi freistingum hans. Þar eftir var þeim dýft niður í vatn og urðu þeir teknir í ríki Krists.« 2. öld, 2. bók, 4. kap. 13. gr. Af þessu sést, að enn var barna- skírnin ekki »orðin að viðteknum hætti«. Um 2. öld skrifar líka kirkjusögu- höfundurinn Westermeyer í kirkju- sögu sinni, 1. bindi, 3. deild, 2. kap., 11. gr., er hann talar um Seperatus, er stóð ákærður fyrir Satúrníus lands- höfðingja, er bauð honum umhugs- unartíma. Seperatus svaraði: »Með tilliti til svo góðs máls þarf enga nýja umhugsun; þegar vér urðum endurnýjaðir fyrir náð skírnarinnar, og afneituðum djöflinum, þá ákváð- um vér, eftir alvarlega yfirvegun, að ganga aldrei úr þjónustu Krists.« Slík skírn, sem er framkvæmd eftir »alvarlega yfirvegun« þess, er tekur skírn, er kristileg og ber góða ávexti. Um skírnina á þriðju öld segir Mosheim í kirkjusögu sinni: »Tvisvar á ári voru ákveðnirtímar, þá er þeir hlutu skírn, sem eftir Ianga reynslu og undirbúning gáfu sig fram og óskuðu að verða kristn- ir.« 3. öld, 2. bók, 4. kap., 4. gr. Frá þessum tíma fara ýmsar hé- giljur að blandast inn í skírnarsið- venjurnar, og skulum vér síðar í ritgjörð þessari minnast á það. En aðferðin, niðurdýfing líkamans, hélst enn alment í kirkjunni. Þetta sést t. d. á frásögninni um skírn frakk- neska konungsins Klodevigs á 4. öld. Um hana skrifar Westermeyer: »Samkvæmt sið þess tíma var þeim, sem skírn tóku, dýft niður í vatnið, og þar eftir voru þeir smurðir með hinni heilögu olíu. Skírnarkerið var venjulega múrað niður í jörðu fyrir framan kirkjuna.« Westermey- ers kirkjusaga (á þýzku), 2. bindi, 1. deild, 2. kafli, I, 4. gr. Niðurdýfingarskírnin hélst enn lengi í kirkjunni. Þannig vita allir, sem lesið hafa íslendingasögurnar og Norðurlandasögurnar, að bæði hér og í Noregi var sú skírn hin almenna um árið 1000. Westermeyer segir um tólftu öld, að »niðurdýfingarskírn var þá enn þá hin almenna.« 3. bindi, l.deild, I, 8. gr. Og Lisco segir í »Postullegri trúarjátningu« sinni, sem líka er til á íslenzku: I fornkirkjunni var siður að dýfa mönnum fullkomlega niður í vatnið (immersio), og það var ekki fyr en á 12. öld, að það lagðist af og farið var að ausa vatninu yfir menn (aspersio). Þessi hin forna skírnaraðferð varað því leyti fagur siður, sem með því var Ijóslega táknuð greftrunin og upprisan.« BIs. 298. Af þessu öllu er augljóst, að barnaskírnin og yfiraustursskírnin er ekki postulleg tilskipun; hún hefir enga stoð, hvorki í ritningunni né í hinni eldri kirkjusögu. Hvenær er hún þá inn komin í kirkjuna? Þeirri spuruingu skulum vér leit- ast við að svara í næsta tölublaði. Biskupinn og fríkirkju-málið. Herra ritstjóri! í síðasta tötubl. teljið þérvíst, að biskupinn sé enn þá nteð aðskilnaði ríkis og kirkju, eða að hann sé fríkirkjumaður. Eg held að varla sé það efamál, að biskupinn sé horfinn frá þeirri stefnu nú orðið. Eg skal benda yður á það, að í »Sameiningunni« 24. árg. ll..tbl. var prentað bréf frá séra Jóni Sjarna- syni til berra Þórhalls Bjarnarsonar biskups, þar sem séra J. Bj. meðal annars minnist á afstöðu biskupsins gagnvart aðskilnaði ríkis og kirkju, og farast honuni þannig orð: ------»Það var mér sársauki, er eg reyndi það, að þér, sem eitt sinn tókuð opinberlega að yður málið um skilnað kirkjunnar íslenzku frá hinni veraldlegu stjórn, skylduð — samfara því, er þér festuð ást á nýju guðfræðinni — bregðast þeirri lífsnauðsyn. Þér sannið það, að ríkiskirkju íslands verður ekki aftur bjargað til Jesú Krists. Hún er óafturkallanlega dæmd til dauða.« »Þér verðið að fyrirgefa inér, þótt eg segi yður þetta, nýkomnum í hið kirkjulega forsæti, upp í opið geð. Og eg veit, að góðlyndi yðar er svo mikið, að þér gjörið það.« Mér vitanlega hefir biskup ekki enn borið á móti þessum orðum. A. B.

x

Frækorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.