Frækorn - 16.09.1910, Qupperneq 6

Frækorn - 16.09.1910, Qupperneq 6
126 F R Æ K O R N Einar Mikkelsen. Fyrir tveimur árum gerðu Danir út l eiðangur til þess að leita að líkum þeirra Mylius Eriksens og félaga hans, er þar týndust fyrir 4 árum. Einar Mikkelsen, röskur maður og Iandkönnuður, var fyrir þeirri leitunarför. Skip þeirra hét Alabama. Nú eru nokkrir menn heim aftur komnir úr þessari för með norsku skipi til Kaup- mannahafnar, og segja þeir, að Alabama sé sokkin í ísnum við Sannoneyna á Græn- landi í marz í vetur. Snemma í sama mánuði, áður en skipið sökk, hafði Einar lagt af stað í leitunarferð við annan mann, en sagðist ætla að vera kominn aftur fyrir 1. ág. En með því hann kom ekki aftur fyrir 7. ág. lögðu skipbrotsmennirnir frá Alabama af stað heim, og álitu þeirvon- laust orðið um Mikkelsen. Samt virðist enn sem komið er varla ástæða til að halda, að hann hafi farist. Gaynor borgarstjóri eftir banatilræðið. r Minnisvarði Finscns. □a.rati!. æ3i víi5 Gaynor borgarstjóra í New York. Borgarstjóranum í New York, major Gaynor, var nýlega veitt banatilræði. Af þessum viðburði flytjum vér mynd, sem tekin var á því augnabliki, er Gaynor hné niður, er illvirkinn Gallagher, liitti hann með byssuskoti. Tveir nálægir vinir styðja hinn gamla mann. Blóðið sást streyma niður eftir kinnimli. Gaynor dó ekki af banatilræðinu. Og nú er farið að tala um hann sem forsetaefni við næstu forseta- kosningar í Bandaríkjunum. Yrði hann þá í mót- fiokk þeirra Tafts og Roosvelts. Niah Finsens minnisvaríi. Fyrir framan ríkisspítalann í Kaupmannahöfn hefir verið sett upp stórkostlegt listaverk til minningar um Níels Finsen, hinn fræga Ijóslækni. Myndastyttan nefmst »Til ljóssins« og er eftir Tegner myndhöggvara. Svefninn óparfur? "ísafold« segir í fyrradag, eftir tímaritinu »Argus« á Finlandi, að þýzkur læknir, Wichardt, liafi fundið meðal c.tthvert við þreytu og svefnþörf, svo menn gætu slept svefninum og sanit haldið fullu fjöri. Þreyta stafar af eitrun í líffærakerfinu, en þetta nýfundna meðai kvað vera gagneitur sem er hægt að taka inn ems og fæðu. Einhverjar tilraunir kváðu vera gjörð- ar í þessu efni; en fráleitt er vert, enn sem komið er, að vera of trúaður á þessa nýung. LeiSrétting. Fæðingarár Sig. Erlendssonar hafði fallið úrgreininni um hann í síðasta tbl. Sigurður erfæddur 6, maí 1849.

x

Frækorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.