Frækorn - 16.09.1910, Qupperneq 8

Frækorn - 16.09.1910, Qupperneq 8
128 F R Æ K O R N Skíðaskóli verður haldinn á KoLviðarhól við Hellisheiði (í Árnessýslu) í vetur 3—4 vikna tíma frá 3. janúar — ef nœgi- leg hluttaka fœst. — Kennari verður valinn norskur skíðamaður, fenginn hingað í því skyni eingöngu. Einnig býst eg við að verða þar viðstaddur, að minsta kosti um tíma. Kenslunni verður hagað, sem bezt má verða, og tekið með alt frá skiða- göngu að skíðastökki. — Langferðir nokkrar verða farnar — eftir því sem veður leyfir —- síðari hluta náms- skeiðsins: til Þingvalla, austur um heiði og viðar. Sýnd og reynd verða afnot y>hvílupoka«, hvernig grafa skuli sig í fönn, o. m. fl. — í tómstund- um leikar og ýmsar íþróttir eftir kringumstæðum. — Fastagjald verður að líkindum 30 kr. f. hvern, og er í því fólgið: 1) ágœt askskíði með öllum útbúnaði (fótböndum og stöfum; kosta þau venjul. frá 17—20 kr.), 2) kenslueyrir. Um fœðisgjald er eigi ákveðið enn að íullu. En gert verður það eins ódýrt, og framast verður unt. Og e. til vili geta þeir, sem vilja, »lagt með sér í búið«. Hefi eg búist við, að hvert ung- m.félag sendi 1 eða 2 pilta eftir kring- umstæðum, og þyrfti þá eigi kostn- aðurinn að verða tilfmnanlegur, ef samtök væru góð. — Auðvitað geta þó félög sent fleiri, — og eins ein- staklingar kostað för sína sjálfir, ef þeir treysta sér til þess. Ungm.félagar ganga hér fyrir öðr- um_ en veitt verður utanfél.mönn- um viðtaka með gleði, meðan rúm Ieyfir. Heíi eg hugsað mér, að samb. U. M. F. í. veiti ferðastyrk nokkurn þeim piltum úr sambandsfélögum, er Langt eiga að, til þess að gera þeim hægra fyrir að nota tækifærið. Og mun eg beita mér fyrir það mál af alefli! Eigi mun þurfa að búast við, að kostnaður allur fari tramúr 50 krón- um, þó fæði sé keypt, og ættu þá flest ungmennafélög að geta klofið það með aðstoð góðra manna í sveit sinni. Áhugi og samtök ráða hér leiks- lokum ! Eigi mun þurfa að brýna það fyrir félögunum, að nauðsyn er að velja vel — og senda aðeins hrausta ogefnilega unglinga (eða ungmenni)! Staðurinn, Kplviðarhóll, er valinn eftir nákvæma íhugun, af þessum a- stæðum: 1) Einkar hentugur til skíða- fara sökum landslags og veðuráttu á vetrum. — 2) Liggur vel við fyrir Sunnlendinga og hæfil. langt frá Rvík, því þaðan mun mega vænta allmikillar þátt-töku. — 3) Talið heppilegast að byrja hér syðra þátt- tökunnar vegna. Rá auðveldara að halda áfram, t. d. norðanlands. — Þetta eru þá aðaldrættirnir í á- ætlan minni. Og er þó margs ó- getið. Er þá hér með skorað á ungrn,- félaga og aðra, er ætla að sinna þessu, að gefa sig fram við mig sem allra fyrst, eigi síðar en30.sept- ember! Og geta verður þess þá sam- stundis, hvaðatrygging sé fvrir gjöld- um (kr. 30), og hvern veg þeir hugsi sér fæði o. fl. — Ungm.félagareru vinsamlegabeðn- ir að gera mál þe,ta sem bezt heyr- um kunnugt í félögum sínum og sveitum — og styðja það á allan hátt. Helgi Valtýsson. Meðal við holdsveiki. Prófessor Ehlers segir, að því er fröken Kjær við Laugarnesspítala hefir látið oss vita, að hann hafi ekki neina ástæðu að svo stöddu til þess, að reiða sig á þær frásagnir erlendu blaðanna (sem »Frækorn« hermdu í næstsíðasta tbl.), að meðal væri fundið við 'holdsveiki, og þykir oss ástæða til þess að geta þessa, vegna þeirra mörgu holdsveiku, sem um málið hugsa hér á landi. Eins og allir vita, þá er professor Ehlers mjög mikill fræðimaður í öllu því, er snertir sjúkdóm þennan. Næsta blað kemur 23. þ. m. Prentsmiðja D. 0stlunds Austurstræti 17, Reykjavík, leysir af hendi allskonar prentun, svo sem Sönglög, Bœkur, Blöð, Ritlinga, Brúðkaupsljóð, Erfiljóð, Heillaóskakort, Bréfhausa og Umslög, Reikninga, Kvittana-eyðublöð, Götuauglýsingar, Kranzborða o. m. fl. Alt verk vandað, en þó mjög ódýrt. Ö m Forskriv selv Deres Klædevarer direkte fra Fabrik. Stor Bespa- relse. Enhver kan faa tilsendt portofrit mod Efterkrav4 Mtr. 130 Ctm. bredi sort, blaa, brun, grön og graa ægtefarvet finulds Klæde til en ele- gant, solid Kjole ellerSpadser- dragt for kun lO Kr. (2.50 pr. Mtr). Eller 31/4 Mir. 135 Cim. bredi sort, mörkeblaa og graanistret moderne Siof til en solid og smuk Herre- klædningfor kun 14 Kr. og 50 Öre. Er varerne ikke efter Önske tages de tilbage. AARHUS KLÆDEVÆVERI, Aarhus, Danmark. Samkomur. Sunnudag kl. 6,30 síðd. i Sílóam. Inn- gangur frá Bergstaðastræti. Qavid Östlund.

x

Frækorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.