Frækorn - 12.10.1910, Blaðsíða 4

Frækorn - 12.10.1910, Blaðsíða 4
140 F.RÆKORN mennings. Margt er hsegt að segja ritinu tii meðmælingar: Hér talar ekki einasta einhver allra lærðasti læknisfræðingur landuns, heldur líka sá, sem lag hefir á því að skrifa fyrir alþýðu flestum mönnum betur; í kverið er safnað í stuttu máli hinu bezta, sem menn vita um áfengis- og bindindismálið, svo að hver maður hefir í ritinu lítið forðabúr til að grípa í, þegar um það mál er talað eða ritað; hér er um þann fróðleik að ræða. sem enginn ís- I ndingur nú á dögum má vera óvitandi um. Og mikilsvarðandi þjóðmál á að njóta alls ágóða af sölu ritsins; þjóðmál, sem landlækn- ir hefir borið umhyggju fyrir frá fyrstu síundu, þjóðmál, sem — eins og bindindismálið — á honum afar- mikið að þakka, þar sem er heilsu- hœlismálið. »Allur ágóði af þessari bók rennur til Heilsuhælisins á Vífil- stöðum*. Vér þökkum bæði höfundi og útgefanda fyrir þetta þarfa rit og vér segjum við aila: Kaupið, lesið, hugleiðið. Sigurbjörn Sveinsson: Engil- bömin,32 bls. æfintýri með myndum. Bókaverzlun Sig- fúsar Eymundssonar. Sigurbjörn Sveinsson er kunnur áður af ágætum söguni, og þetta litla kver, sem nú er útkomið, er fyrirtaks barnabók. Hann er þeirri gáfu gæddur, að rita við barnanna hæfi, og því eru ætíð lesendur til, þegar eitthvað kemur út eftii hann. Alt, sem hann ritar, ér göfugt og gott. Enginn, sem á börn, ætti að spara við sig þá 25 au., sem kver þelta kostar. Þeir aurar veita börnununl skemtandi og göfgandi stundir, sem enginn sér eftir að hafa gefið þeim. Biridindi og bannlög. [Kafli úr hinu nýprentaða riti eftir Gúð- mund Björnsson landlækni: Um áfengis- nautn sem þjóðarmein.] Áfengisnautnin er orðin svo al- menn um allan, heim að bölið, sem af henni leiðir, er talið eitt hið mesta mein vorra tíma, ein hin mesta kyn- spiilingarhætta, sem mannkynið hefir nokkru sinni ratað í. Ár frá ári vex skilningurallra ment- aðra þjóða á þessu meini og þá líka óttinn, og því næst löngunin til að bæta bölið. Á ofanverðri 19. öld lifðu allflestir í þeirri trú, að ekki þyrfti annað en fræða allan lýð um skaðsemi á- fengisnautnarinnar, þá mundu allir smámsaman af frjálsum vilja hætta að neyta áfengis, eða neyta þess í hófi, svo að ekki kæmi að sök. Menn héldu þá flestir, að »bindindið« mundi reynast örugt ráð við áfengis- bölinu. Sumir menn eru mjög fljótir að átta sig á öllum nýmælum og skapa sér skoðun á þeim. Það getur verið, að þeir séu stundum of fljótir. Eg játa það, að mér er ekki laginn þessi fiýtir. Eg hef ekki hug ii! að greiða at- kvæði um mestu vandamál mann- kynsins án þess, að gefa nánar gæt- ur að því, hvað gerst hefir og er að gerast í heiminum. Það varum réttaleitið haustið 1898 að bindindismenn í Reykjavík sendu til mín með þessi skilaboð: »Þú ert uéraðslæknirinn okkar, þér er skylt að segja okkur og öðrum,hvaða dóm læknísfræðin leggur á áfengið«. Mér brá við þessa spurningu. Eg var ekki bindindismaður og hafði aldrei hugsað ítarlega um áfengis- málið, en svo mikíð vissi eg, af 4 ára læknisreynslu, að það var alvar- legt má!. »Eg finn að mér er skylt að svara ykkur«, sagði eg við sendi- manninn, »en þið verðið að bíða eftir svarinu«. Síðan varði eg öll- um tómstundum mínum og mörg- um næturstundum í þrjá munuði til þess að afla mér fróðleiks úr öll- um áttum um áfengisnaumina og afleiðingar hennar, og til þess að gera upp í milli þeirra mismunandi kenninga, sem þá bar mest á. Á- rangurinn af þessari rannsókn minni og samvizkusamri umhugsun kom fyrir eyru almennings í fyrirlestri mínum »Um áfenga drykki« á 2. dag jóla 1898 og stendur hann óbreyttur fremst í þessari bók. Eg komst þá — 1898 — að þeirri niðurstöðu, að bindindið mundi aldrei megna að útrýma áfengisböl- inu, að »flaskan væri sterkari en bindindið«, og meðan áfengið væri alstaðar á boðstólum, mundi þess alstaðar verða neytttil mikilla muna og mikilla meina; eina óbrigðula ráðið til þess að útrýma afengis- bölinu væri því, að hefta tilbúning þess, sölu og innflutning, eins og goodtemplarar höfðu fyrir löngu hugsað sér. Þessi skoðun átti þá freniur fáa ylgjendur. Síðan eru liðin 12ár. Eftirtekt allra þjóða á áfengisbölinu hefir stórum aukist og glæðst ár frá, ári og al- staðar er sú skoðun að ryðja sér til rúms, að bindindið muni aldrei ráða niðtir lögum áfengisnautnarinnar, aldrei verða annað en nauðsynlegur undirbúningur undir bannlög. Fyrir tæpum 60 árum var bann gegn tilbúningi og sölu áfengra drykkja í ríkinu Maine, sem er eitt af Bandaríkjunum í Vesturheimi. Þeir gítu ekki bannað innflutning áfengis (að menn »pöntuðu« sér á- fengi úr öðrum ríkjum) — það vildi sambandsstjórn ríkjanna ekki leyfa, En lögin liafa þó komið að mikl- um notum; þess vegna eru þau enn í gildi, og þess vegna hafa hin smá- ríkin mörg einnig lögleitt vínsölu- bann, hvert á fætur öðru; er nú al- gert sölubann léitt í lög í 9 af Banda-, ríkjunum, en í þeim 9 ríkjum lifir,, hér um bil helmmgur allrar þjóð- arinnar. Og mest fylgi hefir bann- stefnunni hlotnast þar, sem annar- staðár, á síðasta áratug. Það er kunnugt hér á landi, að goodtemplarreglan setti sér frá önd- verðu að markmiði »skýlaust forboð gegn tilbúningi, innflutningi og sölu áfengisvökva til drykkjar«. En mörgum mun ókunnugt, að einmitt fyrir þessa stefnu sína er goodtemplarreglan nú orðin vold- ugasta og mest metna bindindisfélag í heimi og í röð hinna merkustu alheimsfélaga, þeirra er vinna að fram- förum mannkynsins. Hvarsem hún heldur heimsfundi sína, er henni sýndur hinn mesti sómi af háum og lágum.

x

Frækorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.