Frækorn - 14.10.1910, Síða 1
HEIMILISBLAÐ
MEÐ MYNÐUM
RITSTJÓRI: DAVID ÖSTLUND
XI. árg.
Árg. kostar hér á landi 1 kr. 50 au. í
Vesturheiiui 6J cents. Ojaldd. 1 okt.
Reykjavik 14. okt. 1910.
Auglýsingar 1 kr. 25 au. þumluugiun. 1Q fkl
Atgr. Austi* str.I. .-Prsm.D.Östlunds lul’
Líf og1 ódauðleiki.
Eftir E. J. Áhrén.
Alt líf kemur frá guði, því hjá
houum er »lífsins uppspretta« (Sálm.
36, 10). Hann gefur öllu »líf og
andardrátt og sérhvað annað«, og
»i honum lifum, hrærumst og erum
vér« (Post.g. 17, 25. 28).
í 1. Tím. 6, 16, stendur, að guð
»einn saman hefir ódauðleikann«.
í 1. Kor. 15, 53. 54. er sagt um
liina réttlátu, að þeir við endurkomu
Krists skulu »íklæðast ódauðleikan-
um«.
Sú spurning, sem vér hér stutt-
lega viljum athuga, er þessi: Hvað
kennir heilög ritning um ódauðleik-
ann? Er ódauðleikinn áskapaður
eða skilyrðum bundinn?
Af sköpunarsögunni og frásög-
unni um syndafallið er það aug-
ljóst, að vorir fyrstu foreldrar voru
ekki skapaðir ódauðlegir, en áttu
kost á að verða það. í hinum fagra
aldingarði í Eden var »lífsins tré«
og skilningstré góðs og ills«. Af
hinu síðarnefnda var Adam og Evu
bannað að eta; »þvi, hvenær, sem
þú etur af því, skaltu vissulega deyja«.
sagði drottinn. Af lífsins trénu
máttu þau aftur á móti eta í sak-
leysisástandi sínu. En jafnskjótt sem
þau höfðu syndgað og unnið til
dauðadóms frá drotni, sagði hann:
»En svo hann ekki (maðurinn) út
rétti hönd sína og taki af lífsins tré
og eti og lifi etlíflega, þá lét guð