Frækorn - 14.10.1910, Side 6

Frækorn - 14.10.1910, Side 6
150 hafa nokkra verulega blessun í för með sér. ....... Áreiðanlega ekki. Við það mundi koma svo mik- ill ruglingur á alla verzlun og viQ- skiftalífið, að fjöldi auðmanna mundi fara á vonar völ, því mikinn hluta eigna sinna hafa þeir komið í gull, er þeir geyma á bönkum, en þær eignir hlyti því að verða því nær einkis virði. En enda þótt gullið sé í háu verði eru margir tuálmar og gimsteinar miklu verðmætari en það, og er það því næsta kynlegt, að menn hafa ekki sózt eins eftir þeim og gullinu. Talsverðan áhuga hafa menn þó haft á því að bua tíl demanta. Pað er sagt að efnafræðingurinn Moissan hafí getað búíð til demanta með því að uppleysa kol í steypujárni og kæla það svo snögglega aftur. Þaðermjög vafasarnt hvort nokk- ur fótur er fyrir þessu, því »dem- antar« þessir voru fyrst og fremst svo litlir, að þeir vógu ekki 1 srná met (desigramm), og þar að auki voru þeir alls ekki gagnsæir og gátu því eins vel verið einskonar »karbit«, enda virðist það öllu líklegra fyrir það, að ávalt sést dálítii aska er þeim var brent. En hvort þetta hafa verið demantar eða ekki, þá er það áreið- anlegí, að þeir urðu aldrei verzlunar- vara eða til nokkurra nota. Fyrir skömmu þóttist einn vísinda- maðurinn hafa fundið upp aðferð til að búa til demanta. Hann fékk nokkra auðmenn til að stofna félag með sér og kaupa af sér að segja, hver aðferðin væri. Hanti tók cvo féð út úr Frakk- landsbanka, en lagði aftur lýsinguna af aðferðinni í lokuðu umslagi inn í bankann og þar gátu svo félags- mennirnir gengið að henni og fært sér hana í nyt. Að því búnu hafði lnnn sig af landi brott. En þegar félagsmennirnir opnuðu umslagið var þar ekkert annað enþetta: »Til þess að búa til demanta þarf ekki annað enn að kristalla kolaefni.« Þetta vi'ssu nú aaunar allir áður En hvenig átti að fara að krístalla kolaefni, um það var ekki auðvitað eitt orð skrif- að, sem við mátti búast.. Það má nú nærri geta, hvort K Q,R N: hluthöfunum hafi heldur en ekki hrugðið. í_brún, þegar þeir komust að því, að þeir voru svo grátt leiknir. En okkur hinum má þetta einu gilda, því mannkynið hefir alls enga þörf á demöntum og allra sízt á þeim, er mest er sózt eftir, nefnilega gagn- sæu demöntunum. Um nokkurn tíma voru svartir demantar hafðir mjög til borunar, en þeir eru nú óðum að ganga úr gildi.síðan hægt var að búa til nægilega harðar stál- tegundir og þó þær séu ekki alveg út af eins harðar og demantar, þá hafa stálborar þann mikla kost, að hægt er að hafa þá eins lagaða og bezt þykir henta og þar að auki er hægt að ydda þá þegat þeir sljófg- ast. Efnafræðingum liefir einnig tekist að búa til einskonar glertegund (»Strassgler«) er líkist svo demönt- uni, að gimsteinafróðir menn eiga ervitt með að þekkja það frá nátt- úrlegum, skærum demöntum, nema hvað demantar eru miklu harðari. Upphaflega kostuðu »demantar« þessir 12 kr. stykkið, en smámsam- an féllu þeir svo í verði, að þeir komust seinast ofan í 35 aura. En hversvegna hafa menn ekki þessa »demanta« í staðínn fyrir hina, sem eru svo afskaplege dýrir, að engir nema stórauðúgir menn hafa ráð til að kaupa þæ? Vegna þess, að svo lengi sem mannkynið hefir verið til, hefir alt- af verið meira enn nóg af heimsk- ingjum og hégómamönnum. En einmitt vegna þess mundi ekkert gott leiða af því, að mönnum tækist að búá til defnanta með litl- um tilkostnaði. Og jafnvel þeir, er byggju þá til mundu ekki græða sérlega mikið á þeim, því að þeir mundu óðar falla í verði, og það svo, að liver og einn mundi geta skreytt sig demöntum rá hvirfli til ilja. Og þá mundi hið svonefnda »heldra fólk« ekki hirða um að ganga með þess háttar skraut, er hver og eínn almúgamaður hefðitilað skreyta sig með. Það mundi því ekki líðaálöngu þangeð til að fundið yrði upp á að skreyta sig með einhverju, er væri nógu sjaldgæft. Ef' til vil! tækju menn upp á því að bera hin svo- nefndu Mauritius frímerki, er kosta 25,000 kr. sökum þess, að þau eru svo sjaldgæf! Það eitt er áreiðanlegt að menn mundu finna upp á einhverri flónsku, hættu þeir að skreyta sig með gulli eða demöntum og mannkynið væri svo engu bættara eftir en .áður Freeman. Síkami mannsins. Andardrátturinn. Andfærin koma að notum við öndunina og tilgangur starfs þeirra er, að koma súrefninu, sem Iífið þarfnast, úr andrúmsloftinu inn í blóðið í okkur og koma þaðan burt kolasýrunni og vatnsgufunni. Þessi innflutningur góðra efna og útflutningur vondra efna fer fram með andardrættinum; við hann gerir brjóstholið ýmist, að þenjast út eða dragast saman eins og físir belgur. Við þensluna sogast loft- ið inn — þá andar maður að sér; en við samdráttinn keyrist það út aftur — þá andar maður frá sér. En helzta andardráttar-verkfærið er lungun; það eru tvö sveppkend líffæri, sem eru sitt hvoru megin við hjartað og fylla upp í brjóstholið. Loftið, sem maður andar að sér, berst líkamanum um barkann; bark- inn skiftist og nær önnur greinin að hægra lunganu en hin að því vinstra; í lungunum skiftast þessar greinar aftur í óteljandi pípur, sem mjókka sífelt og enda í litlum blöðrum, en á himnum þeirra er háræða-net. Að utan eru lungun klædd þunnri himnu; svipuð himna er yfir öllum innra fleti brjóstholsins. Himnurn- ar eru mjög sléttar og alt af þvalar; af því leiðir það, að lungun og bolurinn slitna ekki, þrátt fyrir snert- ing og núning, sem ekki verður hjá komizt. Þegar loftið, sem maður hefirand- að að sér um þær mörgu greinar (bronchíur) í barkanum, sem getið hefir verið, er konúð inn í smá- blöðru-fjöldann, tekur himnan á þessum blöðum fyrst við súrefninu,

x

Frækorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.