Frækorn - 22.12.1910, Blaðsíða 2

Frækorn - 22.12.1910, Blaðsíða 2
178 F R Æ K O R N Jólin. Hvað eru jólin? »Fæöíngariiáííö freisarans«, segja börnin, og þau svara oft sannara en fullorðna fólkið; þó þau skilji lítið, þá er samt hjartað flekklaust af heiminum, trú jaeirra hrein og elsk- an til guðs. Á barnæskuárum mínum hlakk- aði eg til jólanna — það gera víst öll börn. Ekki heilluðu gjafirnar allan hug- ann: jólakerti og nýir skór var reyndar sjálfsagt, og eftir ástæðum einhver flík, sem mest var þörfin fyrir; ekki heldur skraut heirna, en fátæklega baðstofu má gera hreina og bjartari en höll: þegar guðs friðar-ljós skín inn í hjartað er alt fegurra. Ekki nautnir né óhóf, eng- inn heimsmunaður getur gert heil- agan frið og fögnuð í sálinni, gert sanna jóla-hátíð. Guð sjálfur verð- ur að koma til mannanna, vera þeirra guð og þeir hans fólk: »í dag er yður frelsari fæddur«. «/ dag«. Eg sá það alt í anda, ó, svo heilagt og bjart. Jesús var ungbarn og hann var mér nærri, eg elskaði hann og tilbað með lotningu. For- eldrar mínir og systkini lásu og sungu sálma, áður en eg kunniþað; og eg heyrði að alt var fegra og unaðslegra en endranær. Enginn heima spilaði á spil aðfangadags- kvöldið eða »nóttina helgu«. Éftir að eg kunni, skrifaði eg þá ein- hverjum nákomnum um frelsara minn. Þessi barnslegu jól eru nú að sjá týnd í heiminum. Eg finn þau hvergi. Og flestir segja eins. Jól- in er orðin glyshátíð, syndsamleg eyðslutíð heimsmunaðar, í óhófs- veizluin og ofskrauti, alt til að þókn- ast holdlegum manni. En guðs dýrð er horfin frá jólunum — eins og frá ísrael forðum (1 Sam. 4, 21)—, mennirnir leitast við að gjöra sig dýrðlega með gjöfum — og ytri viðhöfn, í stað þess að leita þess heiðurs, sem fæst hjá guði einum, í kyrlátu og hógværu hugarfari, dýrmætu fyrir guði. »Þar er Jesú fæðingarhátíð«, hvort semer um jól eða aðra tíma ársins. — »Eg vil með þér Jesú fæðast, ég er barn og kaun svo fátt.« Jólin hafa breyzt fyrir mér. Jesú fæðingarhátíð er ekki bundin við vissan mánaðardag, enda ;egir ritn- ingin ekkert um það, hvern dag mánaðarins Jesús er fæddur. >En svo mörgum, sem hann meðtóku, gaf hann kost á að verða guðs börn, þeim, sem trúa á lians nafn, sem ekki eru fæddir af blóðinu, né holds- ins vild, né mannsins vilja, heldur af guði.« Fæddur »af guði«, eins og Jesús sjálfur. Þeim sálum er »7 dag« frelsarinn fæddur. Jesús býr fyrir trúna í hjartanu. Hann er vort líf. Guðs andi vitnar með emlur- fæddum manni, að hann er guðs barn. » Réttlaettur af trú hefirhann frið við guð fyrir drottinn vorn Jesúm Krist. »Friður á jörðu og velþókn- an yfir mönnunum.* Hrygðin eftir guði snérist í fögnuð. >Séð hefi eg guð bersýnilega og líf mitt er fre'sað (1 Mós. 32. 30) áður er beðið líknar með tárum. (Hós. 12,5). Gleði var á himni og jörðu þeg- ar Jesús fæddist í þenna heitn, og gleði er enn á himni og jörðu í hvert sinn er sál snýr sér til guðs. Jesússegir: »Það er meiri gleði yfir einum syndugum, sem bætir ráð sitt, en yfir níutiu og níu réttlátum, sem ekki þurfa yfirbótar við«. Hin æðsta gleðistund mannlegs lífs er þegar mannsálin gefur sjálfa sig guði á vald, af kærleika alla og óskifta. Andvarpinu ersvarað: «Mína sálu þyrstir eftir guði, eftir þeim lifandi guði.« Hann ketnur og tek- ursérbústaðí hjartanu. Jóh. 14,23. Jesús fæðist þar. Þá er Jesú sanna fæðingarhátíð fengin. Guð gefi þér perluna, þá áttu betri helgidóm alla daga ársins en áður einn dag á ári. í nálægð’ Jesú: hátíð, fjær honum engin heilög stund. — B. B. Hulinn kraftur. Eftir Th L. Cuyler. Fyrir skemstu var eg á ferð yfir Atlantshafið á einu stærsta og sterk- asta milliferðaskipinu. Það brunaði fram mót sjó og vindi, 20 mílur1 1) enskar. á tímanum. Eg sá eigi kraftinn, sem knúði skipið áfram. Kraftur- inn var hulinn djúpt undir þiljum, vakinn af sílogandi, kolaöldu báiinu. Meðan kolabirgðirnar entust, gat skipið brunað áfram sína sigurbraut. Þannig er varið andlegu lífi hins styrka, hrausta kristna manns. Kraft- ur hans er fólginn í þeim forða guðlegrar náðar, sem hann ber með sér hið innra. Þaðan kemur hon- um mátturinn að standast freistingar og ti! að halda beint í horfinu, braut skyldunnar, eins þá er torfær- urnar eru mestar. Enginn kristinn maður leggur sjálfuni sér til kraft- inn, náðin er honum gefin, og þessi kraftur er því að eins orðinn kraft- ur sjálfs hans, að »líf hans er falið með Kristi«. En þótí sjálfur kraft- vakinn, þótt sjálf uppspretta þessa lífs sé ósýnileg, þá er það eigi að síður virkilegt hf, kemur fram luð ytra, öllum sýnilegt. - Eins og hið hraðskreiða skip ber vott og hulinn kraft kolabirgðanna, eins sýnir hinn andlegi styrkur trúandi kristinsmanns, aðlífhanser falið með Kristi. Læk- urinn, sem steypist þarna niður hlíð- ina, er sjón sögu ríkari um upp- sprettu hátt uppi í fjalli, að kletta- baki, og vísarnir á úrinu inínu snú- ast í sífellu og votta með því um hulinn kraft á bak við sig. Sæll ert þú, lesanda minn góður, ef ná- grannar þínir, sem alt af hafa þig fyrir augum, geta lesið það út úr daglegri breylni þinni hið ytra, að hið innra líf þitt fæðist og nærist af Kristi. Hinn mikli postuli lýsir þessu innra lífi sanntrúaðs manns þannig, að það er »falið með Kristi í guði«l. Frelsari vor er til himna stiginn, og þangað bendir Páll postuli, — upp til himins, þar sem Kristur situr við hægri liönd föðursins, og segir: Vér lifum hér niðri á jörðinni að ytra hætti, en hið sanna líf vort er á himnurn uppi, séum vér Krists. Uppspretta þessa andlega lífs er guðleg, það hefst með hinni nýju fæðingu við náðarverkanir heilags anda. Alt til þess tíma, að hið and- lega líf hófst hið innra með oss, 1) Kol. 3, 3.

x

Frækorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.