Frækorn - 15.01.1911, Qupperneq 5

Frækorn - 15.01.1911, Qupperneq 5
5 |! SÖGUR öq DÆMI jj SÖNN FÖÐURELSKA. Eg þekki föður, sem átti 12 ára gamlan son, er Tómas hét. Dreng- urinn gekk í skóla. Einn dag kom kennari hans heim til föðursins. »Er sonur yðar veikur?« spurði kennarinn. >Nei, en þvíspyrjið þér um það?« »F>að er af því aö hann hefir ekki verið í skólanuni í dag.« »Getur það verið?« >já, hann var heldur ekki í skól- anum í gær.« »Hvað segið þér?« »Og heldur ekki í fyrradag.« »En . . .« Eg hélt, að hann hefði verið veikur.« Nei, hann var ekki veikur.« »Já, mér fansc eg ætti að láta yður vita það.« »Eg þakka yður fyrir það.« Og kennarinn fór heim til sín. Faðirinn sat lengi hugsi. Þá heyrði hann, að einhver var að koma. Það var Tómas. Þegar hann sá föður sinn, skildi Tóinas, að hann vissi um framkomu sína sfðustu þrjá daga. »Komdu inn til mín, Tómas.« Tómas kom, og faðirinn lokaði hurðinni. »Tómas, kennari þinn var hér nýskeð. Hann sagði, að þú hefðir ekki verið í skólanum þrjá síðustu dagana. En eg hélt, að þú hefðir verið í skólanum. Þú lézt okkur trúa því. Þú veizt ekki, hve mjög þetta hryggir mig. Eg hef altaf reitt mig á þig. Eg hef sagt: Það er ætíð hægt að reiða sig á Tómas. Og nú hefir þú verið lifandi lygi fyrir okkur í þrjá daga. Eg get ekki sagt þér, hversu hryggur eg er.« Orð þessi höfðu mikil áhrif á F R Æ K O R N Tómas. Ef faðir hans hefði talað harðlega við hann, þá hefði hann ekki fundið nærri eins mikið til. »Tómas, láturn okkur falla á kné og biðjast fyrir«, sagði faðirinn. Og Tótnasi varð æ þyngra um hjartað. Honum fanst sem hann gæti ekki beðið nú. En samt krupu þeir. Faðirinn bað. Og drengur- inn fanti það glögt, að hann hafði hrygt föður sinn. Þeir stóðu upp frá bænagjörðinni: Augun föðurs- ins runnu í tárum. Og Tómas grét líka. »Tómas,« sagði faðirinn. »Það eru þau náttúrulög til, sem segja, að óhlýðni fylgir þjáning. Þetta tvent er óaðskiljanlegt. Þú hefir verið óhlýðinn og breytt iila, Tóm- as, og hér á heimili mínu stend eg í sömu af.töðu til þín og guð stenduv í til heimsins. Við skulutn þess vegna hafa þetta svona: Þú ferð upp á efsta lofts-herbergið. Þar á eg að búa um þigágólfitm. Við skulum færa þér mat þangað um matmálstímana, og þú verður þar jafn lengi og þú hefír verið okkur lifandi lygi — þrjá daga og þrjár nætur.« Tómas sagði ekkert. Feðgarnir fóru upp á efstalofts-herbergið. Búið var unt, og faðirinn lét drenginn vera þar einan, en fór sjálfur ofan. Það leið að kvöldverðartíma. Fað- ir og rnóðir settust að borði. En þau hugsuðu svo um barnið sitt, að þau mistu alveg matarlystina. Þau gengu því næst inn í daglegu stofuna til þess að vera þar um kvöldið. Faðirinn tók blað, en hon- um var mjög erfitt að geta lesið. Hann þurkaði gleraugun sín, en samt fanst honum að hann gæti ekki lesið. Loks sá hann, að hann hélt blaðinu öfugt. Móðirin reyndi að sauma, en það gekk ekki heldur. Svona leið tíminn. Klukkan sló tíu. »Ætlarðu ekki að fara að hátta?« sagði hún. »Ekki enn þá. Ætlar þú?« »Nei, eg æt!a að vera uppi enn um stund.« Klukkan varð eliifu. Þau fóru þá að hátta, en gátu ekki sofnað. »Hví sefur þú ekki?« spurði hún. »Hvernig vissir þú, að eg ekki svæfi ? Og þvf sefur þú ekki?« »Eg get það ekki; eg hugsa svo um hann Tómas. Og kiukkan sló tóif og eitt og tvö. En þau sofnuðu ekki. »Eg get ekki staðist þetta Iengur,« sagði hann ioks. »Eg fer upp til Tómasar.« Og hann tók koddann sinn og gekk upp á loftið til drengsins. Hann opnaði hurðina hægt til þess að vekja hann ekki, ef hann svæfi, og hanri fór eins hægt og hann gat til Tdmasar. En hann lá — vak- andi. — Rúmið hans var vætt af tárum. Faðirinn lagðist við hliðina á honum, og þeir grétu báðir. Svo féllu þeir í svefn. Næsta kvöld sagði faðirinn: »Eg fer upp til Tómasar aftur.s Og hann svaf einnig þá nótt uppi hjá honum. Þriðja kvöldið sagði hann við konu sína: »Eg fer upp til Tómasar aftur.« — — — Yður mun ekki furða á því, er eg segi yður frá því, að Tómas nú sem fullorðinn maður boðar Jesúm Krist í Kína. Faðir Tómasar er bezta myndin, sem eg nokkurntíma hef fundið af guði, vorum himneska föður. Syndin varð að hafa sínar afleið- ingar; það, sem gjört var, gat ekki orðið aftur tekið. Það var einnig af kærleika til mannanna, að guð ekki leysti manninn undan þján- ingum þeim, sem syndin hefir í för með sér; því þjáningin segir frá

x

Frækorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.