Frækorn - 31.01.1911, Page 4

Frækorn - 31.01.1911, Page 4
12 F R ÆK O R N »Það er lygi, segi eg. Þjánmg og örvænting sást í liinu föla augliti hins biðjanda fanga, og hann féll meðvitundarlaus niður. Þá gekk hár maður með föstum gangi fram úr hóp fatiganna. Hann sýndist ekki vera þrjózkufullur, held- ur þvert á móti auðmjúkur, en samt leit hann með hugdirfð og kraup ekki, þegar hann nálgaðist hásætið. Harðstjórinn leit á hann og varð forvitinn. Hann varð hissa á slíkri ofdirfsku, sein enginn áður hafði leyft sér gagnvart honurn. Fanginn Ieit á hann og sagði með skýrri rödd: »Herra, eg get borið um, að þessi maður talar sannleika.í »Aumingi! Heldur þú, að þú getir breytt ákvörðunum mínum ? Þú skalt hverfa í duftið eins og ræfillinn þarna. Allir, allir, heyrirðu, allir skuluð þið deyjaaumkunarleg- um dauða.« »Dauðinn, herra, jafnvel hinn grimmilegasti, er ekki hið versta, sem geti hent mig. En það væri bleyðu- Iegt af mér að láta orð þessa vesæla manns verða álitin ósönn, þegar eg veit, að þau eru sönn. Eg hef fulla vitr.eskju um, að það, sem hann sagði, er satt, og þ ð er skylda mín að verja sannleikann, enda þótt reiði yðar skyldi gera dauða minn enn grimmari en ella. — Eg hef gert skyldu mína, og eg er reiðubúinn að deyja.« Harðstjórinn hafði aldrei áður heyrt slík orð til sín töluð. Hann reis upp, og reiðin logaði í aug- um hans, um Jeið og hann hóf hönd sína sem merki hervalds síns. Augu hans mættu hinu rósama augnatilliti sannleiksvitnisins, og hönd hans féll. Andlit hans bar þess vott, að ýms öfl voru að berjast innanbrjósts hjá honum. Vesalings maðurinn, sem kraup frammi fyrir h.ásætið, hafði aftur fengið meðvitund sína og fór að fá veika von uin frelsi. »Þú ert frjáls«, sagði harðstjórinn. Það var grafarkyrð. Vitnið fór aftur á sinn stað. En harðstjórinn sat með beygðu höfði alvarlega hugsandi. Þegar hann aftur leit upp á vitn- ið, gaf liann honum bendingu um að koma til sín aftur. »Hefir þú ekki líka talað vel um mig? spurði hann nieð mildari röddu, sem gæti freistað liins að- spurða til að svara já. Allir biðu nú með ákefð svarsins. En hinn aðspurði beið. Hann var sem um stund í stríði við sjálf- an sig. En all í einu leit hann upp og sagði skýrt: »Nei, herra, eg hef aldrei talað vel um yður, þvert á móti, eg hef ætíð sagt, að þér væruð miskunnar- laus harðstjóri.« Þá fór drotnarinn ofan af hásæti sínu og gekk til hins djarfa sann- leiksvitnis og sagði hann: »Þú ert konungur, en egerþræll, þræll ástríðna minna. — Farðu og varðveittu það líf, sem þú mat minna en sannleikann. Þú er sannarlega frjáls.« »SannIeikurinn mun gjöra yður frjálsa.« HIN BISKUPALEGA METÓDISTAKIRKJA.« Þessi yfirskrift hefir staðið á nokkr- um götuauglýsingum síðastliðnar viktir, og margir hugsuðu, er þeir sáu aug- lýsinguna: »Hvað ætli það sé? Orein þessi gefur svar uppá spurn- inguna. Stofnandi hinnar biskupalegu Metó- distakirkju er séra JohnWesley, sem alt til dauða síns var prestur í ensku kirkj- unni. Metódistastefnan var þannig upp- haflega vakningarhreyfing innan ensku kirkjunnar. En þegar Bandaríkin árið 1783 gerðust óháð enska ríkinu, gerð- ust einnig amerískir Metódistar, sem þá voru allir meðlimir ensku kirkjunnar, eftir tilmælum Wesleys, »algerlega að- skildir frá hinu enska ríki og presta- stétt«. Hann segir þá: »þeir hafa nú full frjálsræði til blátt áfram að fylgja ritningunni og hinni upprunalegu kirkju, og vér álítum það bezt, að þeir haldí því frelsi, sem guð svo dásamlega hef- ir veitt þeini.« Síðan hefir hin svonefnda Metódista. hreyfing breiðst út víða um heiminn- Eftir hinuni síðustu skýrslum eru nú yfir 10 milj. Metódistar í heiminum og þessi kirkja er hin stærsta frikirkja meðal mótmælenda. — Fyrir 53 árum hófu Metódistar starf í Danmörku, og þrátt fyrir mikla hleypidóma frá þjóðkirkjunn- ar hálfu hefir guð, sem »ekki fer í manngreinarálit«, blessað þetta starf, svo að nú eru í því landi 27 söfn 'ðir, og meðliniatala fullorðinna manna er rúm 4000. Hvað segja þessar tölur? Þærsegja, að víðsvegar um heiminn hefir Metó- distahreyfingin verið til blessunar fyrir þjóðirnar; guð hefir notað þetta starf til að kenna ótal mönnum að lifa ham- ingjusömu lífi og deyja sælum dauða. Þeir mörgu, er nú sigrihrósandi gista sælubústaði himnanna, eru hrós-og kóróna Metódistakirkjunnar. Metódista kirkjan er ein grein á hinum sanna vín- viði, Kristi, og að þessi grein ekki hef- ir vcrið ávaxtarlaus, ber framanritað vott um. — Það er ætlan og takmark Metódistakirkjunnar, með reglum sínum og fyrirkomulagi, að efla bróðurlega sameiningu milli hinna ýmsu deilda í hinni einu kirkju Krists, sem hún starfar saman með að hinu háleita takmarki: Heiminn fyrir guðs son. Eftir að hat'a kynt mér starf og háttu Metódista i 4 ár, gerðist undirritaður meðlimur þessa kirkjufélags ogvartek- í fult samband við kirkjuna í Oðinsvé 31. maí 1909, flutti síðan til safnaðar- ins í Vejle, og var af þessum söfnuði í sambandi við kirkjuþingið, er haldið var á sama stað í júlí síðastl. ár, falið á hendur að hefja trúboð kirkjunnar hér á landi, og er það mér heiður og gleði að veia erindsreki hinna dönsku Metódista. — Mætti starf Metódista hér blómgast og dafna, til mikillar andlegr- ar blessunar fyrir innbúa íslands. Sam-

x

Frækorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.