Frækorn - 01.08.1913, Side 8
56
F R Æ K O R N
»Afsakið, frú Ellsworth, að jeg
trufla, en leyfið mjer að leiða Lizz-
ie dóttur mína fram fyrir yður«.
Elísabet leit upp og mætti aug-
um dökkhærðrar stúlku, á að giska
17 ára að aldri, þótt framkoma
hennar og fas væri líkast því að
hún væri 10 árum eldri. Hún líkt-
ist mjög föður sínum, svipurinn
var eins, og munnurinn feitlaginn
og munaðarlegur. Hún hneigði sig
kunnuglega fyrir John.
Taylor öldungur sagði brosandi
viðElIsworth.ogorð hanssnertuElísa-
bet mjög óþægilega:
»Jeg sje, að þú þekkir dóttur
mína, Ellsworth«.
Óánægju-skugga brá fyrir á andliti
Ellsworth’s, um leið og hann játti
því.
— Meðan þau stóðu þarna og
töluðu saman, byrjaði aftúr hljóð-
færaslátturinn. Taylor öldungur rjetti
Elísabet arm sinn, sem hún neydd-
ist til að taka á móti, og John, sem
hafði hugsað sjer að dansa í þetta
skifti við konu sina, varð einn
eftir og gat ekki annað en boðið
ungfrú Taylor að dansa við sig,
og fylgja á eftir Elísabet og öldungn-
um.
Ungfrú Taylor hló mikið og hið
þýðingarmikla augnatillit hennar
gagnvart Ellsworth fylti Elísabet
megnu hatri. Hvaða rjett hafði hún
til slíkrar framkomu gagnvart manni
annarar konu?
En alt í einu varð aumingja kon-
unni það ijóst, að slíkt er algengt
og alveg rjett — í Utah. Hjarta
hennar hætti fáein augnablik að slá
John hafði auðsjáanlega hitt stúlk-
una áður.
Hún daufheyrðist við smjaðurs-
yrðum öldungsins. Henni fanst
dansinn aldrei ætla að enda. En loks
var hann þó búinn, og hún sett-
istniður,en öldungurinn hneigði sig,
þakkaði og fór. —Kuldahrollur fór
um hana. Hún fór að hugsa um
sjalið sitt. Hún gæti kallað ájohn
og biðið hann um að sækja það,
því að hann hafði leitt ungfrú
Taylor til sætis og farið frá henni;
og það, að komast burt frá þessu
ljósi og frá hljóðfæraslættinun, væri
svölun, þó ekki væri meir en um
eitt augnablik.
Hún fór inn í búningsklefann,
um leið og önnur kona fór þangað
inn; hún fann sjalið sitt og ætlaði
að fara þaðan, en hún hrökk við,
er hún sá konu í einu horninu með
andlitið falið í höndunum.
Það var slíkur örvæntingarsvipur
yfir henni, að Elísabet ætlaði að tala
við hana og spyrja hana um orsák-
irnar að sorg hennar, þegar sú kona,
sem kom samtímis Elísabet inn í
klefann, snart arm hennar, og hristi
aðvarandi höfuðið.
«Hvað er að«? hvíslaði Elísabet,
þegar þær fóru út.
»Æ, ekkert! Maðurinn hennar
hefur einmitt fengið sjer aðra konu;
það er alt, og þau eru saman þarna
inni«, sagði hún, um leið og hún
benti inn í danssalinn.
»Hann var ætíð vanur að vera
hjá þessari fyrstu konu«, hjelt hún
áfram, og hann vissi ekki hversu
góður hann átti að vera við hana,
og hann gifti sig ekki aftur fyr en
eftir fjögur ár, og það er sjaldgæft.
En hann lifði ekki samkvæmt trú-
arbrögðunum, skiljið þjer. Og »post-
ularnir« og »öldungarnir« töluðu við
hann, og« (— hún hraðaði talinu,
því þær ætluðu aftur inn í danssal-
inn —) »svo gifti hann sig aftur
fyrir hjerumbil tveim vikum. Og
hann hefur skemt sjer mjög mikið
með nýju konunni sinni í alt kveld.
Jeg vildi ekki, að þjer töluðuð við
fyrstu konuna hans þarna inni, því
hún er næstum frávita og það er
vonlaust að reyna að hugga hana.
Jeg reyndi nýskeð að tala svolítið
við hana, en hún tók mjög geyst
í það. Það er meiningariaust hjá
henni, því ekkert vinst með því.
Jeg gjörði það líka einu sinni',
hjelt hún áfram með lágri röddu,
»og nú get jeg alls ekki élskað
manninn minn framar. En jeg skifti
mjer ekkert af þessu lengur og jeg
lifi glöðu !ífi.«
En hinir tilfinninganæmu, sorg-
mæddu drættir um varir hennar
báru vott um, að orð hennar voru
ósönn.
Það, sem eftir var af kveldinu,
kvaldist Elísabet enn meir.
Þegar þau komu lieim, fjell hún
um háls manni sínum og grjet í
sorg sinni. Hún sagði honum frá,
hvað hún hafði heyrt og sjeð. Hann
hleypti brúnum. »Konurnar eru
nógu einfaldar til að láta svona.
Fjölkvænið er heilög stofnun, og
þær verða að beygja sig fyrir henni«.
»Mjer þykir sárt«, hjelt hann
áfram, að það skuli vera þannig,
en það er ekkert hægt að gjöra við
þvu.
Orð hans voru eins og hnífstung-
ur í hjarta hennar. Þau töluðust ekki
meira við um þetta mál, en þessu
kveldi gleymdi Elísabet aldrei.
Frh.
Massage læknir
Guðm. Pjetursson.
Heima kl. 6—7 e. m.
Spítalastíg 9. (niðri).
Sími 394.
MSTLE’S 3BJSÍ .
er ljúffengt, heilnæmt og nær- g
• andi. Börnunum þykir ekkert j|
betra.
Fólk er flutt til Hafnarfjarðar
næsta laugardagskveld kl. 8 og til
baka aftur sunnudagskveld kl. 9.
Ouðm. Benjamínsson, Grettisg. 10.
©á A LLIR, sem vilja selja (gg)
(f r\ eQa fasteign, &
auglýsi það í Magasín-
inu á Qrettisgötu 51.—
Það dugar best, en kostar
sama sem ekki neitt.
r L; drekka allir þeir,
2,18Uu er vilja fá góðan,
óskaðlegan og ódýran kaffi-
drykk. Fæst hjá Sveini
Jónssyni, Temptarasundi
1. á aðeins 80 au. pundið.