Gimlungur


Gimlungur - 07.12.1910, Síða 4

Gimlungur - 07.12.1910, Síða 4
158 GIMLUNGUR. i. ÁR. Nr. 37. Fimrn centa frímerkin syna mynd af bænum Cupids, aðalstöð fiski- manna Newfoundlands. Tíu ccnta írímerkin bcra mynd af pappírsgerðarmylnunni við Grand Falls. Tólf centa frímerkin bera mynd Edwards konungs VII. Fimtán centa frímerkin flytja nrynd af George konungi V. Það er fyrsta enska frímerkið með hans rnynd. NÆRINGARGILDI FISKS. Læknir í St. Pétursborg, Slow- zoff að nafni, hefir gert nákvæmar rannsóknir viðvíkjandi næringar- gildi fisks, í samanburði við kjöt, og hefir nú opinberað afleiðing rann- sókna sinna. Hann segir meðal annars, að nfr fiskur veiti líkama mannsins betri næringu en kjöt, af J>ví hann sé auð- meltari en það. Reyktur fiskur af /msum tegund- um, veitir líkamanum eins mikla næringu og kjöt, og er jafn auð- meltur og pað. Ekki virðist rússneski læknirinn mjög hrifinn yfir purrum eða sölt- uðum fiski. Saltfiskur hefir ávalt verið álitinn kjarnmikil fæða, og þegar f>að cr athugað hvc lítið vatn geymistíhonum, leiðir pað af sjálfu sér að hann er gagnleg fæða, en rússneski læknirinn segir, að líffæri líkamans eigi erfiðara með að veita honum móttöku en kjöti, og J>ar af leiðir auðvitað, að við verðum að tyggja J>ann fisk eins vel og unt er. DANSKIR SMÍÐISGRIPIR í St. pétursborg. Á árunum 1651—64 voru búnir til tveir hnettir fyrir listaverkasafn- ið í Gottorp. I J>akklætisskyni fyrir greiðann, sem Pétur mikli veitti Dönum í stríðinu við Svía, gaf Friðrik IV. honum stærri hnöttinn árið 1713- Hnöttur J>essi er 11 fet í J>vermál. A ytra byrðinu eru máluð öll lönd og höf jarðarinnar ásamt borgum og stórám. Að innanverðu erustjörnu- myndir á himinhvolfinu. I miðju hnattarins er kringlótt borð með hringmynduðum bekk umhverfis, sem 10 menn geta setið á. Hnöttur J>essi er úr kopar, og er hafður í húsi út af fyrir sig. Vél, sem gengur af vatnsafli, læt- ur peana hnött snúast einn hring á hvcrjum 24 klukkustundum. DÚKAR úr mjólk og kórallar úr osti. Það er ekki trúlegt að menn geti búið til dúka úr rajólk, eða fram- leitt skrautleg hálsmen, sem líkjast kóröllum, úr osti, en satt er pað samt. Á nokkrum stöðum í Norð- urálfunni hafa verkstæði verið sett áetofn, J>ar sem efninu kasein, cða ostefni, er breytt í hinn svo nefnda Galith, mjólkurstein, sem með því að vera fágaður breytist í kóral, raftotur (á tóbakspípur), penna- sköft, skjaldbökukamba, hnappa, pappírshnífa og margt annað. A. P. Hansen, konsúll í Dan- mörku, hefir ferðast um Þyzkaland og Frakkland, til J>ess að kynna sér aðferðina við J>essa kasein-fram- leiðslu. Danir hafa komist að raun um J>að, að [>að borgar sig illa að búa til ost úr undanrenningu, og hafa J>ví í hyggju að fara að dæmi Djóðverja og Frakka, og búa til úr henni mjólkursteins-muni. FLUGUR. Menn eru oft að hugsa um J>að, hvernig flugurnar fari að geta geng- ið neðan 1 loftum og J>ökum og lát ið kroppinn hanga niður, en flestir eiga bágt með að skilja J>að. Menn skilja heldur ekki hvernig flugan fer að koma fótunum neðan í loftið, án [>ess að gera hringveltu til J>ess. Tilfellið er að flugurnar, gagnstætt fuglunum, auk J>essað hreyfa væng- ina upp og ofan, geta líka snúið j>eim nærri J>v.í í hring, og J>css vegna getur flugan velt sér á alla vegu í loftinu. Á hverjum fæti flugunnar er lítil varta, og út úr B Œ K U R. — :o: — Eftirfylgjandi bækur fást í bókaverzl un Maple Leaf Prextfélagsins á Gimli. Fríða, skáldsaga eftir S. Bivertson, í kápu ....... $0.25 í bandi $0.65 Skrítlur og smásögur, safnað af G. P. Magnússyni ....... 0.2ð Úr öllum áttum, ljóðmæli eftir Jón Stefánsson ...... 0.25 Ljóðmæli, eftir Th. Jóhann- esson ..................... 0.25 Blái roðasteinninn, saga ••• 0.10 Saga sannrar hetju, og fl. ••> 0.30 Kvitteringabækur (100 form) 0.25 Promissory notes (100 fórrn) 0.25 ‘Lien notes'.................. 0.25 ‘Drafts' ..................... 0.25 Sömuleiðis eyðublöð fyrir alls kon- ar samninga. henni vaxa um 1100 hár, hvert J>essara hára gefur frá sér örlítinn límdropa, og J>að er J>etta lím, sem heldur flugunni fastri, pegar hún gengur eða hangir neðan í loftum, þökum cða öðru með kroppinn niður. Girðingastólpar, sem höggnir eru í ágúst, endast lengur en J>cir, sem höggnir eru um vetrartímann. 354_____________HErMILISVUNTJRINN ■_________________ Ó, góða, ekki, ó, góða, ekki J>að', svaraði gamli mað urínn, í skrítn um tón, er gaf samt til kynna, að hann hefði ekki svo mjög mikið á móti einum kossi hjá fallegu, ungu konunni. ‘Ó, ég verð að kyssa yður', hrópaði konan, og alt í einu kastaði bún sér á knén gamla manninum, vafði örmum um háls honum og kysti hann í ákefð. Á sama vetfangi opnuðust dyrnar og sterklegur, skrokkstór maður, Jnælslegur í bragði, óð inn í herbergið. Með ámátlegu öskri hljóp kouan úr knjám Brandons og með reiðisvip miklum grenjaði hún sem æðisgengín: ‘Þú gamli kvennahundur, J>ú villidýr, að dirfast að taka fátæka konu með valdi meðan maðuriun hennar er ekki hoirna1. Brandon lézt verða afarhræddur, og hræðsla haus varð enn sjáanlegri, er maðurinn lokaði hurðinni af og dró stór- an hníf undan stakki sínum. ‘O, þú gamli kvennaníðingur', andvarpaði konan. ‘Elskan mín, hvað hefir komið fyrir?‘ spurði nsaður- inn í höstum róm. ‘Ó, elskulegi eiginmaður, þessi gatnli kvennahrókur, þetta villidýr', og konan tók að gt'áfa, svo tárin flóðu nið- ur kinnarnar. ‘Segðu mér, elskan mín, hvað hefir kornið fyrir, ef hánn hefir smánað J>rg, þá drep ég hann‘, og maðurinn leit reiðilega til gamlá mannsins, er vivtist vera búiun að missa hjartað niður í skóna síni. ‘Ó, ég þori ekki að segja þér hvað hanu gerði'. KÓNGUR LEYNILÖGREGLUM.355 ‘Þú skalt segja mér það'. ‘0, hann sagði — hann hað mig um svo ósköp ljótt og bauð mér peninga'. ‘Bauð þér peninga!1 ‘Já‘. ‘Fyrir hvað hauð hann þér peniuga?' ‘Ó, ég þori ekki að segja þér fyrir hvað‘. ‘Ég sá þig á hnjánum á honum*. ‘Já, hann náði tökum á mér; ég hað hann að sleppa mér, en hann vildi ekki gera það, og gamli flagarinn hefir gert mér stnán'. Maðurinn gekk að Brandon og mælti: ‘Hvað ert þú að gera hérl' ‘Ég kom til þess að tala við konuua þína um þvott', ‘Ó, þú gerðir það, einmitt það, og þegar þú vissir að hún var ein og hjálparlaus, reyndir þú að færa þér það í nyt?‘ ‘Ég gerði það ekki, upp á æru og trú, ég gerði það ekki', svaraði gamli maðurinn skjálfandi. ‘Þetta dugar ekki, gamli hundur, ég sá hana í faðmi þér‘. ‘Hún settist sjálf í kjöltu míua‘. ‘Hvað! dirfistu að segja slíkt um kouuna mína‘. ‘Meiddu mig ekki‘. > ‘Ég skal‘. ‘Æ, nei, ég hvópa •'morð'1. 'Þú ætlar að gcra það, ha-iia‘. ‘Ó, lofaðu mérað fava út héðan'.

x

Gimlungur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gimlungur
https://timarit.is/publication/184

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.