Gjallarhorn - 18.03.1904, Síða 3
Nr. 8
GJALLARHORN.
31
2 árin, sent hann var við skólann, þjáðist
hann af höfuðveiki, svo að síðari hluta
skólaársins í fyrra og í vetur gat hann ekki
gegnt kennslustörfum, en hafði þó á hendi
talsverða umsjón í skólanum.
Utan úr heimi.
Stúlkur í sameinuðum skólum og á
háskólum.
Franskur höfundur hefir fengið sér
vottorð háskólamanna í öllum löndum
Evrópu um hæfileika kvenna til að
nema háskólanám og sitja við nám
við hlið karlmanna. Hefir þeim nálega
öllum borið saman um það, að það
gefist hvervetna vel. Þó má, segir
hann, af þeim vottorðum draga þá á-
lyktun, að hvorki sanni reynslan til
fulls staðhæfingar þeirra, sem fastast
fylgi kvennamálinu, né heldur hinna,
sem mest mæli í móti. Reynslan hafi
ekki t. a. m. opinberað neinar fyrir-
taks sérgáfur eða andríki kvenna, en
sýni aftur hins vegar og sanni, að
engin hærri mentun spilli hæfileik
kvenna til að verða góðar eiginkonur
og mæður — nema geri þær enn hæf-
ari.
Samskóla sveina og meyja lánast
æfinlega eftir óskum.
(Eftir Reviw of Reviews.)
M. J.
Tryggasti vinur mannsins.
Stórskáld Hollendinga, Maeterlinck,
(meterlink) ritar í einu amirísku blaði
um hundinn og segir: >Maðurinn elsk-
ar hundinn, en hve margfalt ætti
hann hundinn að elska og meta, ef
hann gætti þess, hvernig hann er, sú
hin eina vera í samræmi tilverunnar,
sem rofið hefir þann þvervegg, sem
aðgreinir allar lifandi tegundir? Vér
erum einstakir, algerlega einmana á
þessum undarlega hnetti, og innan
um hinar ótölulegu lífsmyndir, sem
umkringja oss, er engin skepna né
kvikindi, sem bindur trúnað við oss
og félagsskap nema hundurinn einn.
Plönturnar eru steinþegjandi og graf-
kyrrir þrælar vorir, og þjóna oss ó-
viljandi. En af dýrunum eru sum
hrædd eða stygg við oss, enn fleiri
vita ekkert af oss að segja, og ekk-
ert þeirra elskar oss.
Vér þurfum ekki að kaupa trygð
og hollustu rakkans, hann fram býður
fylgd si'na áður en hann verður sýnd-
ur. Orðið *vinur< er of lítið um hann.
Hann ann oss og tilbiður feginsam-
lega eins og vér hefðum skapað hann
af engu. Hann er oss hollari en sjá-
aldur augna vorra. Hann er þræll,
sem trúir á herra sinn og elskar hann
með öllum mætti og allri sál, og ber
áreiðanlega lotningu fyrir boði hans
og banni; ekkert aftrar honum, of-
býður trausti hans og átrúnaði, eða
veikir ákefð hans í verki hans köll-
unar. Hann hefir leyst þá voðalegu
gátu, hvernig vér ættum að fara að,
kæmi einhver guðanna niður á jörð-
ina og krefðist þjónustu vorrar. Því
að hann hefir meistaralega kent oss
með átrúnaðarhlýðni sinni, að vér sé-
um konungar tilverunnar og hafnir
yfir allan mótþróa, og fyrir því afhent
oss þegjandi og með fögnuði alla for-
sjá fyrir sér í lífi, dauða og dómi,
helgað vorri þjónustu og gjörræði alt,
sem honum er lánað og lagt til af
gáfum og íþróttum, orku og eftir-
vænting, og ekkert áskilið sjálfum
sér, nema lítilfjörlegt uppeldi, enda
kvartar ekki fram í dauðann, þótt á
það vanti — jafn þakklátur fyrir lítið
bein sem stórt. Og loks hefir hann
vor vegna svikist úr leik og strokið
úr öllu hinu dýraríkinu, án þess að
setja það hið allra minsta fyrir sig;
hann neitar vor vegna dýrustu bráð
með öðrum dýrum, öllum hajnaði og
hentugleikum, afneitandi ætterni og
kyni, móður sinni og afkvæmi.
Hundurinn hefir hlotið einstaklega
og öfundsverða stöðu í heimi þessum.
Hann er hið eina lifandi kvikindi, sem
fundið hefir og viðurkent efalausan,
áþreifanlegan, undantekningarlausan og
ákveðinn guð. Hann veit hver það er,
sem hann helgar það, sem honum er
bezt gefið, veit hver á sig með sál
og líkama. Hann þarf ekki að leita
eftir hinu fullkomna, æðsta, óendan-
lega valdi í myrkrinu innan um lygar
°& lygar, getgátur og draumóra. Það
vald er hjá honum, á undan honum
og hann framgengur í þess Ijósi. Hann
veit og þekkir sínar æðstu skyldur,
en það er meira en margur af oss
megnar. Hann fylgir siðgæði, sem yfir-
gengur alt það, sem hann getur sjálf-
ur fundið í fari sínu, og fyrir því
þekkir hann hvorki angur né ótta.
Hann á sannleikann í hans fyllingu —
hann hefir höndlað hnoss hugsjónar
sinnar.*
(Eftir Review of Reviews.)
M.J.
Glímubrögð Japana.
Japanar eru alment lágir menn og
smáir, en eru mestir íþróttamenn í
heimi. Einkum eru þau listabrögð
þeirra, er þeir kalla jújitsú, alkunn;
þau nema allir hermenn, löggæzlumenn
og flestir alþýðumenn, sem nokkurt
uppeldi fá. Jújitsú er fólgið í brögðum,
sem sum líkjast glímubrögðum, eink-
um hnykkjum og sveiflum, en eru
margfalt fleiri, samsettari og bygð á
vísindalegri líkams- og vöðvaþekking.
Sagt er að meðalmaður, sem glímir
eða fæst við annan mann, geti ekki
einungis felt hann með örhægu móti,
heldur gert hann »óskaðlegan« eða
drepið hann á 303 vegu! Aðalreglan
er að bíða átekta og síðan vera við-
búinn að ónýta tilræði eða tök hins
með svo skyndilegu viðbragði, að ým-
ist verða vöðvar hins magnlausir eða
hönd eða fótur eða háls eða hryggur
fer úr liði. Afls munur eða stærðar
orkar einatt litlu. Taugar ‘og sinar
eru f voða og háskinn á allar hliðar,
svo eftir fáar sviftingar finst flestum,
sem í móti eru, þótt fræknir sé, að
við tröll sé að eiga en ekki menskan
mann. Þá kunna og Japanar 28 að-
ferðir til að reisa menn frá dauðum,
og ætla ókunnugir að þeir geri það
með göldrum og fjölkyngi. En það
eru vísindi þeirra og íþróttir, sem
vinna þau afreksverk — eins og hin.
Japansmenn
hafa nú Iögfest að taka upp letur
Evrópumanna. Geta þá Japanar Iært
að lesa jafn-fljótt og þeir, en þurftu
mörg ár til þeirra stúdéringa, enda
var letrið táknaskrift, sem 600 mil-
jónir manna máttu lesa, ef þeir þektu
stafina. Nú gerist Evrópumönnum auð-
velt að læra mál Japana, sem hingað
til var afar-torvelt nema ritað væri
upp áður með eðlilegu letri. m. j
Ósannindum mótmælt.
í 12. tbl. »Norðurlands« 12. des. 1903
stendur: »Haft er í Kaumpmannahöfn
eftir alþingismanni Hermanni Jónassyni,
að allur Heimastjórnarflokkurinn á þingi,
að Lárusi H. Bjarnasyni undanskild-
um, hafi æskt þess við íslandsráðherr-
ann, að Hannes Hafstein yrði látinn
taka við ráðherrastörfunum*.
Eg lýsi yfir því, að þessi frásögn
blaðsins er tilhæfulaus uppspuni.
Eins og öllum heimastjórnarmönnum,
er sæti áttu á síðasta þingi er kunn-
ugt, bar Heimastjórnarflokkurinn engar
óskir fram fyrir ráðherrann um að fá
nokkurn ákveðinn mann f ráðherrastöð-
una, og má öllum vera það ljóst, að
mér gat ekkert gengið til að skrökva
slíku upp.
Ef »Norðurland« vill fremur fara
með satt mál en ósatt, þá treysti eg
þvf, að það beri þessa frásögn sína
til baka.
p. t. Kaupmannahöfn 16. jan. 1904.
Hermann Jónasson.
Kutter„SAMSON“
frá Rudkjöbing er til sölu. Hann er
8247/ioo tons að rúmmáli Brutto,
stokkbygður úr eik árið 1884, en
svo var sett í hann nýtt dekk árið
1901 og gert við hann að því sem
þurfti.
Skipið liggur á Krossanesbót hér á
Eyjafirði.
Lysthafendur snúi sér til undirritaðs.
Oddeyri 16/3 1904.
J V. }Cau$teen.
Bergens xwx
Notforretning,
——y- Bergen
selur:
NÆTURogHEILNÓTABRÚK
með BÁTUM og ÖLLU TIL-
HEYRANDI, einnig
SÍLDARNET
LÍNUVERK
REKNETATRÁSSUR
LITARBÖRK
TJÖRU
DREGG
KEÐJUR
og fleira.
Hálft hús
er til sölu á góðum stað í Aðalstræti
hér í bænum. — Gott verð og góðir
borgunarskilmálar.
Lysthafendur semji við
Ásgeir kaupmann Pétursson,
Oddeyri.
il leigu
frá 14.
mai n.
k. eru 4 herbergi í nýlegu
og vönduðu húsi á Oddeyri.
Ritstj. vísar á.
Auglýsing
Undirritaður kaupir unga nautgripi
frá 1. marz og áfram í vor og sumar.
Þeir, sem vilja selja, gjöri svo vel og
komi sem fyrst og semji við
Jóhann Vigfússon.
Geysisofninn.
Ný uppgötvun. Einkaleyfður í Dan-
mörku 1903. Beztur allra þeirra
ofna, sem stöðugt lifir í, bæði dag
og nótt, ódýrari en aðrir
ofnar.
Yfir 10,000 ofnar eru þegar
notaðir víðsvegar um heim.
Ákafur eldiviðarsparnaður.
I Geysisofnum er stórt suðuhol,
alveg vandalaust með þá að fara og
gott að passa. Þeir bæta mjög loptið
í herbergjum.
MT Verja gólfkulda betur en nokkrir
aðrir ofnar.
Geysisofnar eru múraðir að innan
og að öllu leyti búnir út á verksmiðj-
um mínum og sendir fullbúnir, svo
að þá má setja upp hvar sem er á
10 mínútum og leggja strax í. Hita
dag og nótt 3 herbergi fyrir 35 aura.
í þeim má brenna allskonar kolum,
koks, viði og mó.
Imr Kosta frá 25 kr.
Kaupmenn fá afslátt.
Elnkasölu í Danmörku hefur;
Jens JCansen,
Vestergade 15. Kjöbenhavn.
Prentað hjá Oddi Björnssyni.