Huginn - 24.10.1907, Page 3
HUGINN
35
gerðist hann leiðtogi borgarstjórnarinnar, og hafði
Schmitz og alla hans fylgifiska í hendi sér.
Allir sem kynni höfðu af Ruet, vissu vel að
hann hafði ekkert annað augnamið í stjórnarstörfum,
en draga undir sig og vini sína alt það, er hann
fékk hönd á fest með hverju bragði, er hann kunni
til þess að beita; og hann reyndist brátt samvizku-
laus bragðarefur, er einskis sveifst þegar um peninga
var að tefla, og þess var ekki langt að bíða að
Schmitz og aðrir æðstu embættismenn borgarinnar
fylgdu honum triilega í öllu, og í stað þess að vernda
borgarbúa og framfylgja lögum og rétti, gerðist sú
stjórn skálkaskjól og frömuður allskonar glæpa og
ólifnaðar, og tók tftkmarkalaust fé af hverjum, sem
bezt bauð fyrir óleyfdegan atvinnurekstur þar í
borginni. (Meira).
Um í sland.
Ella Wheeler Wilcox ritar um ísland í »Ame-
rican Journal Examiner« á þessa leið:
Getið þér liugsað yður eyju með 72 þúsundum
mannlegum og mentuðum verum þar sem að eins
tveir lögregluþjónar eru finnanlegir eða nauðsynlegir,
og að eins eitt sjúkrahús og engin munaðarleysingja-
stofnun eða fátækrahæli, og að eins eitt tómt fanga-
hús ?
Og engir betlarar, engir bæja-allsleysingjar og
engir heimilisleysingjar?
Slíkt land er þó til, eftir því sem mér er sagl
af konu einni. sem þar er fædd og uppalin og ár-
lega ferðast til ættlandsins.
Þetta land er ísland.
Eg lærði í barnæsku að þekkja nafn þetta við
landafræðinám mitt, og þá myndaðist sú skoðun hjá
mér, að landið væri ísi þakið eyðisker. En í þess
stað er mér það nú ljóst orðið, að ísland hefir lilýj-
ara loftslag heldur en Austur-Bandaríkin að vetrin-
um, af því að Golf-straumurinn vermir það, og þess
utan er það eitt af undrum heimsins frá sjónarmiði
siðgæðis, friðsemi og starfssemi.
Það eru engir auðmenn á íslandi — en allir
eru þar ættgöfugir og ærustoltir eins og sönnum að-
alsmönnum sæmir. (Heimskringia).
Fréttir.
Akureyri 16. okt. kl. 4 síðd.
Ótíð er hér, 6° frost í gær. Snjór yfir alt. í
dag 4° hiti. Skaði varð fremur lítill af bylnum um
fyrri helgi. Aflalaust í Eyjafirði. Mislingar komnir
í 5 hús, þar á meðal gagnfræðaskólann. Nýtt leik-
félag stofnað hér. Stjórn: Vilh. Knudsen, Guðl.
sýslumaður og Sig. Hjörleifsson.
Síminn bilaður milli Akureyrar og Seyðisfjarðar
og féksl því ekki skeyti frá Seyðisfirði.
Gullgröfturinn.
Nú er komið rúm 110 fet niður. Þegar borað
hafði verið full 110 fet, þá varð fyrir sink í tveim
lögum. Var efra lagið fjórir þúmlungar á þykt og
hálfum betur en neðra lagið 6 þumlungar. En á
milli þessara laga var hart lag úr tinnu eða biksteini
eða því um líku.
Frá Winnipeg.
Fyrir torgöngu íslenzku organistanna hér í bæn-
um, S. K. Hall, A. J. Johnsons og Jónasar Pálsson-
ar, hefir nú í vikunni sem leið verið stofnaður ís-
lenzkur hiðraflokkur hér í borginm mcð nær 30
meðlimuin. Félagið hefir nú þegar keypt hljóðfæri
og tekur strax til starfa.. Hr. S. K. Hall er ráðinn
kennari þess, ?.n í framkvæmdarstjórn kosnirt A. J.
Johnson, forsetí, Björn Björnsson, skrifari og Páll S.
Pálsson, gjaldkeri. Auk þessara var hr. Halldór
Mathúsalemsson kosinn umsjónarmaður hljóðfæranna
og annara eigna félagsins. Stofnendur félagsins eru
flestir ungir, uppvaxandi menn, nálægt tvítugsaldri.
Nokkrir af þeim, sem áður hafa verið í lúðraflokk-
um hér, hafa gerst styrktarmenn og stofnendur þessa
nýja félags. — Hér í borginni hefir ekki verið ís-
lenzkur lúðraflokkur síðan Hjörtur Lárusson fluttist
héðan burtu. En að hafa liér íslenzkan lúðraflokk
er ekki einungis myndarlegt og vel viðeigandí, held-
ur nauðsynlegt. Skemtiferðir meðal íslendinga hér
eru alt af að fara í vöxt með hverju árinu, og aðrar
stærri samkomur og mannfundir og á þeim getur
engin skemtun átt betur við en lúðramúsik. — Heims-
kringla óskar því þessu nýja félagi langlífis og alls
góðs gengis, og að það verði þjóðflokki vorum hér
til ánægju Og soma. (Heimskringla).
Akureyri 23. okt. 1907 kl. 12,3» síöd.
Ágæt tíð síðustu 3 daga. — Allalaust. Síma-
bilanir stöðugt á Seyðisfjarðaxdeið. Mislingar nokk-
uð útbreiddir. Allir gagnfræðaskólapiltar liggja í
þeim.
Jónas Hallgrímsson.
. Þess var fyr getið að líkneski Jónasar Hall-
grímssonar væri komið. Er það rúml, 3'/Éal. á hæð
og er gert úr málmblendi. — Jónasar-nefndin hafði
ákveðið því stað við safnhúsið nýja, en húsgerðinni
er svo skarnt kpmið að eigi þykir hættulaust að lík-
neskið. standi þar. Fyrir því verður nefndin að
hafa líkneskið enn í sinni vai'ðveislu, þar til það
verður sett á sinn stað, þar sem Jóni Sigurðssyni er
fyrirhugaður staður andspænis. — En nefndin vildi
þó að alménningur ætti kost að sjá myndina eigi að
síður og setur hana því á blett Guðm. Bjöi’nssonar.
Þar stendur hún vel og er golt sjónar þangað af
Lækjai'götu og Amtmannsstíg.
Líkneskið verður afhjúpað 16. nóvember.
Eldur kom upp í Kái’astöðum, húsi Jónasar H.
Jónssonai', á sunnudagskveldið var. Veður var kyrt
og logn á og tunglskin, svo að rnenn áttu hægt vei'k
að siökkva. — Eldui'inn hafði kviknað í gluggatjaldi
og læst sig því næst í vegginn.
Nýársnóttin er nú fullprentuð.
Leikfelag Reykjavíkur er tekið til starfa og
hefir æfingar hvern þann dag, sem hlutaveltur (tom-
bólur) leyfa því aðgang að leikhúsinu.
Einar Jónsson hefir nú lokið við Ingólf lands-
námsmann og mun Huginn síðar lýsa verkinu nokkru
nánar. En hvað er um Ingólfshúsið og happdrættis-
miðana? Ei'u menn búnir að kaupa þá alla? Draum-
kona sagði mér um daginn að happdi'ýgstir mundu
þeir miðar vei’ða, sem hefðu þvei'tölu, er fulldeilt
yrði með 3 eða 2 eða 3 og 2, Draumkona mín er
sannsögul og ættu menn því að spyrja um þessa
miða og kaupa þá.
Það eru engiti óþverraboð, þegar mönnum er
boðið heilt hús fyrir að gefa tvœr krónur til slíks
þarfaverks og bæjarpi'ýði, sem Ingólfur verður.
Bækur Benedikts Gröndals voru seldar fyrir
skömmu. Fóru þar margar góðar bækur fyrir lítið
verð og margar illar eða ónýtar fyrir afarverð. Einná
liæst fóru bækur Símonar Dalaskálds. — Sá maður
gæti látið eftir sig snotran ai'f, sem gæti breytt sér í
gamla skruddu eða fágætt frímerki í stað þess að
deyja.
»Phönix« heitir slökkvitól eitt, sem Egill kaup-
maður Jakobsen hefir til sölu. Áhald þetta er kosta-
gripur sem sjá mátti þegar það var reynt. Eldar
miklir voru gerðir með steiuolíu og þurum viði. En
er eldurinn hafði náð góðu taki svo að lék »hár liiti
við himin sjálfan«, þá tólc Egill stálkönnu sina og
slökti eldiiin.
Slökkvitól þetta á hól skilið og mun það ásann-
ast, að auglýsingin segir alveg satt.
Það er ómissandi á sveitabæjum og stói'gagn-
legt einnig þar sem slökkvilið er. Því að oft hefir
eldur tíma til að læsa sig í þura innviði, rneðan
beðið er slökkviliðs. En ef Phönix er við höndina
mundi oft mega kæfa liann í fæðingunni. Má vel
vera að vátrygging verði lægri hjá þeim sem liafa
áhaldíð.
Huginn hugði vel að því og þótti gott.
sagði Guðrún, hún mætti vinkonu sinni á götunni.
»Eg má ekki vera að því elsku, bezta«, svaraði
Sigríður, »því eg er að flýta mér til Lárusar að
kaupa mér stigvél, hann kvað hafa fengið svo ynd-
islega falleg kvenstígvél með Hólum«.
»Er það satt?« sagði Guðrún, þá fylgist eg með
þér, því eg þarf líka að fá mér stígvék.
Og þær urðu samferða lil Lárusar G. Lúðvígs-
sonar Ingólfsstræti 3 og keyptu sér yndislega l'alleg
stígvél fyrir lítið verð.
Gleymið ekki
að líta á Iiiim ágæta
karlmannaalfnlnad og nœrfatnað,
hina sterku og skjólgódu VETK AK.IAlili A,
eríidisbiixur og jakka
í Austurstræti 1
sem er vissulega ódýi'asta fatnaðarverzlun í Reykjavík.
Vou er á stóru úrvali af Regiikápuin
með næslu skipum.
Asíí-. €r. Griumlaugsson & Co.
Vetrarsjöl
með ýmsum gerðum fást ódýrust eftir gæð-
um í verzlun
Björns Kristjánssonar.
hjá
Lampag’lös
Nic. Bjarnasent
--
aiirlelat
anis,
Dagana til helgarinnar er á boðstólum
kjöt úr
Grímsnesi
Biskupstungum og
F*ingvallasveit.
Fyrir Sláturfélag Suðurlands.
Hannes Thorarensen.
Ilj ólhestar
hrúkaðir, mjög ódýrir.
Upplýsingar á Laufásvegi 37.
I verzlun
(ximnars Einarssoiiar
fæst:
K.I O T af uxuhi, kvigum,
nautum og sauðum.
Nýreyktur I j -V X. Allskonar matvörur og
álnavörur m. m.
Mapgarine
fæst ágætt hjá
ctíííq. c3/‘ arnaseno.
O *
I Eggert Claessen
I yfirréttarmálaflutningsmaður
X,a‘ltjiu-iíO( n 1 'J. j 5.
I Vcnjulega heima Itl. 10—11 og |
J í—5. Talsimi 16.
Sveinn Björnsson
yfirréttarmálaflutningsmaður
Kirl5j«wtrœti ÍO.
Heima kl. lOji—1 /’ s og /—5.
Talsími 53.
Bjarni Þ. Johnson
yfirréttarmálaflutningsmaður
■Heima kl. 12—1
1’ ú s t h ú s s t r iii 1 i 1 4
(vestustu norðui'dyr).
c e. f- o\| N 5
^ tfr V-e-r-sE-l-u-n lattMasar Mattöiassonar ♦ eina búðin milli bankanna + anglýsir sig !»ezt með vörug'æðum og verð- gæðum.
L o)“ Q
Lítil sölubúð
lielst í niiðbæmnn, ósk-
ast til leigu. — Tilhoð
seiulist á afgreiðslu Hug-
ius fyrir 1. nóv.