Höfuðstaðurinn

Ataaseq assigiiaat ilaat

Höfuðstaðurinn - 21.12.1916, Qupperneq 1

Höfuðstaðurinn - 21.12.1916, Qupperneq 1
HOFUÐSTAÐURINN 84. tbl. Fimtudaglnn 21. desember. 1916 Þorha 11 u r b’skup Bjarnarson. Fæddur 2. desember 1855, Dáinn 15. desember 1916 Hann var sjöundi biskupinn yfir öllu íslandi. Herra Hallgrímur Sveinsson fyrirrennari hans fékk lausn frá embætti 19. sept. 1908, og var lector þórhallur þá skipaður biskup. Vígði Hallgrímur biskup hann sunnu- daginn 4. okt. 1908. þótti það fágæt athöfn, þar eð biskupsvígsla hafði áður aðeins verið framin tvívegis alls hér á landi, síðara skiftið á Hólum fyrir 111 ár- um. Eins og sjá má af þessu, sat herra þórhallur rúm 8 ár^á biskupstóli. En aldursárin urðu rúmlega 61. Dóu báðir síðustu biskuparnir i sama mánuðinum. Herra þórhallur 15., en fyrirrennari hans 16. des. Fyrsta prestastefnan, sem þórhallur biskup boðaði til, var haldin á þingvöllum 2. til 4. júlí 1909. Var það góð nýjung og mæltist vel fyrir, enda fundurinn vel sóttur, 52 prestar ails. Má telja synodusfund þenn- an merkan kirkjulegan' viðburð, bæði vegna erinda þeirra, er þar voru flutt, vegna hins ánægjulega sam- lífs og viðkynningar prestanna, sem þar gat átt sér stað, og vegna samþykta, er þar voru gerðar. Eru sumar af þeim samþyktum þegar komnar í framkvæmd, en aðrar geta að minni hyggju enn verið stjórnmála- mönnum vorum til leiðbeiningar um vilja kirkjunnar, eins og samþyktin í aðskilnaðarmáli ríkis og kirkju. — Næsta prestastefnan var haldin á Hólum í Hjalta- dal í júli 1910 i sambandi við biskupsvígslu þar. Var sá fundur einnig ánægjulegur og talsvert veigamikili, þótt ekki væri til jafns við þingvallafundinn árinu áður. — Fögnuðu menn alment yfir þessu nýja lífi, er færð- ist í synodushaldið fyrstu ár herra þórhalls á bisk- upstóli, og hörmuðu margir hve sumir síðari synodus- fundir voru daufir og aðgerðalitlir. Biblíuþýðingin nýja hafði verið aðalverk Hallgríms biskups. Sat síra þórhallur í nefnd þeirri, sem sett var til aðstoðar aðalþýðanda gamla testamentisins og fór yfir handrit hans á vikulegum fundum. Hann var líka einn af þeim þremur, er þýddu nýja testamentið, og sat ennfremur i síðari nefndinni, er að nýju end- urskoðaði það. Hafði hann mikil afskifti af biblíuút- gáfunni 1912 og vasaútgáfu biblíunnar og nýja testa- mentisins, er út kom 1914. — S'ðastliðin tvö ár var hann að þýða apokryfisku bækur gamla testamentisins með Haraldi próf. Nielssyni og var þeirri þýðingu langt komlð, ’eftir aðeins Síraksbók. — Við þýðingarstörf þessi kom að góðu haldi hve ágætur íslenzkumaður biskupinn var. Mun næmum mönnum á íslenzka tungu finnast, að ekki sé málið sízt á þeim ritum nýja testa- mentisins, er hann var aðalþýðandi að. — Ættl öllum að skiljast, hvílíkur merkisviðburður biblíuútgáfur þess- ar voru fyrir kirkju vora og hvílíkar þakkir allir þeir menn eiga skilið, sem að þeim hafa unnið. Snemma í biskupstíð herra Hallgríms var sett nefnd til að endurskoða handbókina. Sat þ. B. í þeirri nefnd og kom helgisiöabók íslenzku þjóðkirkjunnar út árið 1910 undir umsjón hans, Má áreiðanlega telja útkomu helgisiðabókarinnar til þeirra viðburða innan íslenzku kirkjunnar, er marka ákveðin spor í þróun- aráttina. Eitt af Barnalærdómskverum þeim, sem nú eru notuð til fermingarundirbúnings, þýddi þórhallur bisk- up. það er „Kristilegur barnalærdómur0 eftir Thor- vald Klaveness, sem fyrst kom út árið 1899. Árin 1891 — 1897 gaf þ. B. út „Kirkjublaðið, mán- aðarrit handa íslenzkri alþýðu°. En frá 1906 til dauða- dags gaf hann út „Nýtt Kirkjublað, hálfsmánaðarrit fyrir kristindóm og kristilega menning", fyrst (1906— 1907) ásamt séra Jóni Helgasyni núverandi settum biskupi, en síðan einn. Liggur i augum uppi, að mikil vinna hlýtur að felast í útgáfu slíkra rita í 18 ár. Og engum getur dulist, að mikilsvert hefir verið fyrir kirkju vora að eiga málgagn, er tæki mál hennar tii meðferðar og stefndi að frjálslyndi og umburðarlyndi, En það tvent hefir einkent blöð þessi frá fyrstu byrjun til hins síðasta, Hefir margt þar komið tii umræðu og blöðin flutt erindi um ýms kirkjuleg mál, sum all- ítarleg, flutt kirkjulegar fréttir og auk þess mintist Nkbl. á margt í þjóðlifi voru, sem ekki kom kirkju- málunum beinlínis við. þótti sumum þetta galli á blaðinu, en aðrir urðu kaupendur vegna þess hve margs gætti þar og vegna ánægju þeirrar, er þeir höfðu af hinni einkennilegu framsetningu og mörgu gáfulegu ummælum biskupsins. Tilgangur biskupsins með því að hafa blaðið sem fjölbreyttast mun hafa verið sá, að ná sem bezt til alþýðunnar, einnig til þeirra, sem ekki fengjust til að lesa ítarlegar ritgerðlr eða hugleiðingar um kristileg eða kirkjuleg efni. En jafnframt því að hið fjölbreytta efni blaðsins hafði þennan tilgang, bar það einnig vott um hinn víð- • feðma anda biskupsins. því hann batt ekki hug sinn við kirkjunar mál eln. Nýtt kirkjublað bar yfirskriftina „fyrir kristindóm og krlstilega menning". I því vildi ritstjórnln láta felast, að blaðið ætli að gefa sig að mentamálum þjóðarinnar og þá sérstaklega að alþýðu- mentuninni. þar var eitt ai áhugamálum biskupsins. Unni hann mjög alþýðumentun og notaði hvert tæki- færi, sem honum gafst. til að vinna mentamálunum gagn bæði á alþingi og með afskiftum sínum afskóla- málfim og skólabyggingu í Reysiavík. í þarfir skóla- anna gaf hann út „Skólaljóð, k\ æðasafn handa ung- lingum tll að lesa og nema°, og „Fornsöguþættí“, er hann bjó til prentunar ásamt Palma yfirkennara Páls- syni. Einnig var hann einn i útgáfunefnd „Lesbókar- innar°. í stjórnmálum tók hann mikinn þátt. Var þing- maður Borgfirðina 1894—99 og 1902—1907. Sat hann alls á 8 þingum, árin 1894. 1895, 1897, 1899, 1902, (Frh, i 4. síðo).

x

Höfuðstaðurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Höfuðstaðurinn
https://timarit.is/publication/188

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.