Höfuðstaðurinn - 21.12.1916, Qupperneq 4
'æatú
HÖ^UÐST AÐURINN
Frh. frá 1. síðu.
1903, 1905 og 1907 og var forseti neðri dedilar á þing-
unum 18Q7 og 1899. Voru búnaðarmálin og menta-
málin aðaléhugamál hans á þingí. þótti hann einn af
mikilhæfustu þingmönnum og framúrskarandi samvinnu-
þýður á þingi sem annarstaðar.
Formaður Búnaðarfélags íslands var hann 1900—
1907 og s ðan altaf i stjórn félagsins. Einnig var hann
formaður milliþinganefndarinnar í búnaðarmálum, sem
skipuð var árið 1604.
í 18 ár sat hann í bæjarstjórn Reykjavíkur (1888
—1906) og vann þar mikið að umbótum á barnaskóla
Reykjavíkur, auk margvíslegra annara mála.
Eg kyntist þ. B. fyrst veturinn 1883— 1884, Var
hann þá nýkominn frá Kaupmannahöfn sem kandidat
og var þann vetur stundakennari í latínuskólanum.
Kom hann þar fram sem hið gáfaða, lipra og ástúðlega
glæsimenni, er hafði góð tök á ungum mönnum. Til
hlítar kyntist eg honum ekki síðar fyr en hann var
orðinn biskup. Reyndi eg þá hve ljúft honum var og
eðlilegt að standa í persónulegu sambandi við presta
sína með bréfaskriftum. Voru bréf hans jafnan ein-
kennileg, stutt og kjarnyrt og engum orðum eytt að
ó^örfu en ávalt ástúðleg og yfirlætislaus, eins og hann
var sjálfur í allri framgöngu.
Helstu æfiatriði þórhalls biskups eru annars þessi:
Hann er fæddur að Laufási í Suður þingeyjarsýslu. For-
eldrar hans voru sálmaskáldið Björn próf. Halídórsson
og kona hans Sigríður Einarsdóttir. — Gekkárið 1871 í
lærða skólann í Reykjavík og útskrifaðist þaðan 1877
með I. einkun. Gekk á háskólann í Kaupmannshöfn
og varð kandidat í guðfræði 23. janúar 1883 með I.
einkunn. Vígðist að Reykholti 18. maí 1884 og var
jafnframt settur prófastur í Borgarfjarðarprófastsdæmi.
Hafði næsta ár brauðaskifti við séra Guðmund Helga-
son prest á Akureyri, en var þar að eins sumarlangt,
því að haustið 1885 var hann settur 1. kennari við
prestaskólann og fékk veitingu fyrir því embætti 1886.
Fardagaárið 1889—1890 þjónaði hann ásamt embætti
sínu dómkirkjubrauðinu með séra Stefáni Thorarensen.
í ársbyrjun 1894 var hann settur og 30. jan. s. á. skipaður
forstöðumaður prestaskólans. — Riddari af Dannebrog
varð hann 9. des. 1902, en dannebrogsmaður 31. júií
1906. Prófessorsnafnbót var honum veitt 9. ág. 1907.
— 16, sept. 1887 kvongaðist hann Valgerði Jóns-
dóttur bónda á Bjarnastöðum í Bárðardal, fósturdóttur
fyrv. bankastj. Tryggva Gunnarssonar. Hún andaðist
28. jan. 1913. Fulltíða sonur þeirra, Björn bústjóri hjá
föður sínum, andaðist í sumar. En 3 af börnum þeirra
eru á lífl: Síra Tryggvi, prestur til Hestþinga í Borg-
arfjarðarprófastsdæmi, nú settur dócent við háskólann,
Svava, kona Halldórs skólastjóra Vilhjálmssonar á
Hvanneyri og Dóra, heitmey Ásgeirs Ásgeirssonar, cand.
theol., er nú dvelur við framhaldsnám erlendis með
styrk frá Háskóla Islands.
I ávarpskveðju sinni til prestanna á nýársdag 1909
komst þórhallur biskup meðal annars svo að orði:
»Skoðanir manna á kirkju- og trúarmálum hljóta jafnan
að vera töluvert mismunandi, þar sem andlegt frelsi er
og einhver lífshreyfing. Og reynum þá umfram allt
að skilja hverir aðra, áöur en vér dæmum hverir aðra“.
þessi orð hygg eg að einkenni vel iunderni þórhalls
biskups. Hann vildi skilja aðra, en var ekki fljótfær í
dómum um aðra. Umburðarlyndið og frjálslyndið ein-
kendi hann öðru fremur, ásamt viðkvæmri lyndiseink-
unn. Kom viðkvæmnin oft iram í tali hans og þá ekki
síður í ræðum hans, einkum í tækifærisræðunum, sem
oft þóttu ágætar.
20. des. 1916.
S. P. Sívertsen.
í dag opna eg undírrituð s ö I u b ú ð í húsi mínu Lauga-
vegi 24 C, Verður þar margt að sjá og úr mörgu að velja:
Allskonar ÁT-CHOCOLADE.
SUÐU CHOCOLADE:
Consum og fleiri tegundir.
BRJÓSTSYKUR — CARAMELI.UR
CONFECT — Ailskonar KÖKUR
MJÓLK í dósum (Lybbys).
Besta mjóikin í borginni.
VINDLAR margar tegundir.
CIGARETTUR margar teg.
MUNNTÓBAK
NEFTÓBAK skorið.
KERTI — SPIL
ÖL og GOSDRYKKIR
og ótal margt fleira.
#
Hver vili ábyrgjast að þér náið f þann rélia hlut tli
JÓLANNA
ef þér dragið lengur að líta inn f fjölskrúðugustu
sesr JÓLA-SÖLUNA
f bænum.
Komið heizt fyrri hiuta dags þá er minst ösin.
Virðingarfylst.
Kristín Hagbarð.
Öræfaljóð
eftir Einar P. Jónsson fást í Bóka-
búðinni á Laugavegi 4.
SKfni 1
iríksson
i
HÚSNÆÐI
I
Útgefandi Þ. Þ. Clementz. Prentsmiðja Þ. Þ. Cíementz. 1916.
J
Herbergi vantar einhleypan mann
nú þegar. Afgr. vísar á.